28.10.1946
Neðri deild: 6. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í C-deild Alþingistíðinda. (3710)

26. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Flm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Frv. það, sem ég hef leyft mér að bera hér fram til breyt. á 1. um stéttarfélög og vinnudeilur, á þskj. 39, fjallar um málefni, sem ekki er með öllu nýtt hér í þinginu, þar sem það kom fram ásamt fleiri brtt., sem fluttar voru og fjallað var um hér á Alþ. árið 1939. Ég hef vikið að þessu í grg., en þær breyt., sem þá var lagt til, að gerðar yrðu á 1. um stéttarfélög og vinnudeilur, voru tvíþættar, annars vegar það, að félagsskapur verkalýðsins yrði gerður óháður pólitískum flokkum hér á landi, og hins vegar, að menn nytu jafnrar pólitískrar aðstöðu innan félagsskaparins sjálfs. Fyrra atriðið hefur þegar náð fram að ganga, og mun ég ekki víkja að því hér. Það var almennt viðurkennt, að rétt og sjálfsagt hefði verið að breyta því skipulagi, sem þá var, að 1. Alþýðusambandsins og 1. Alþfl. væru hin einu og sömu, og var það gert með lagabreyt., sem gerðar voru innan stéttasamtakanna. Þetta náði fram að ganga á grundvelli samkomulags, sem gert var milli stjórnmálaflokkanna.

Þetta frv., sem miðar að því að skapa mönnum jafnrétti innan sjálfra samtakanna, er á svipuðum grundvelli og brtt., sem flutt var 1939. Samkvæmt því er skylda að viðhafa hlutfallskosningu innan verkalýðsfélaganna, þegar tiltekinn fjöldi manna óskar þess. Ég hygg, að mönnum blandist naumast hugur um réttmæti þessa máls, enda háværar óskir um það frá verkamönnum sjálfum, þótt það hafi ekki náð fram að ganga með samkomulagi innan verkalýðsfélaganna, þar sem nokkur skoðanamunur er um þetta atriði. Stéttarfélögin eru þannig, að það er eðlilegt, að menn séu knúðir til þess að vera í þeim vegna aðstöðu sinnar í þjóðfélaginu, og verður það þá þannig, að í þeim verða menn af öllum pólitískum flokkum og með skiptar skoðanir. Hins vegar er það svo, að ekki er óeðlilegt, að pólitískar skoðanir einstaklinga hafi áhrif á það, hverja þeir vildu kjósa til stjórnarstarfa og trúnaðarstarfa. Og ég held, að það sé almenn og augljós staðreynd, að mikið af þeim kosningum, sem þarna fara fram, eru þess eðlis, að menn skiptast í flokka eftir stjórnmálaskoðunum. En þegar t. d. á að kjósa marga menn til trúnaðarstarfa og eingöngu eru viðhafðar meiri hl. kosningar, verður það meiri hl., sem ræður öllu, og réttur minni hl. verður fyrir borð borinn.

Nú að undanförnu hafa hlutfallskosningar verið að ryðja sér til rúms, og menn hafa skoðað þær réttilega sem spor í þá átt að fullnægja grundvallarstefnu lýðræðisins, og síðan þetta mál var flutt á Alþ. hafa víða verið teknar upp hlutfallskosningar, þar sem þær voru ekki áður, bæði í félögum og til þings. Ég vil leyfa mér að minna á, að teknar hafa verið upp hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum, til búnaðarþings og í stéttarsamtökum bænda, og er því á sama hátt eðlilegt, að þetta væri tekið upp til kosninga í trúnaðar- og stjórnarstörf innan stéttarfélaga verkalýðsins. Það er þess vegna ekki ástæða til þess að vera að fjölyrða um réttmæti þessa máls, því að það er augljóst, að ef á að reyna að fullnægja þeirri grundvallarhugsjón lýðræðisins, að tekið sé tillit til minni hl. í félagsmálum, þá verður að viðhafa svipaðar reglur og hlutfallskosningar áskilja. Það mætti að vísu varpa fram þeirri spurningu, hvort ástæða sé til að lögskipa slíkt sem þetta, það ætti að vera á valdi félaganna sjálfra, hvort þau viðhafa slíkt kosningafyrirkomulag eða ekki. En það er staðreynd, að 1. um stéttarfélög og vinnudeilur kveða svo á, í 3. gr., að stéttarfélög ráði málefnum sínum sjálf með þeim takmörkunum, sem eru sett í 1. þessum, og gera þannig ráð fyrir því, að löggjafinn gæti sett ýmsar reglur um starfsemi þessara félaga. Og þegar málunum er nú komið eins og er, þá finnst mér naumast réttmætt að ætlast til þess, að þetta fari eingöngu eftir frjálsum vilja félaganna á hverjum tíma og á hverjum stað, vegna þess að það getur skapað hið mesta handahóf í þessum málum. Sums staðar er meiri hl. það frjálslyndur að hverfa að þessu ráði, en sums staðar ekki, og þá hefur minni hl. ekki aðstöðu til þess að ná rétti sínum, þótt hann vilji fá fram breyt. á lögunum.

Í þessari brtt., sem ég hef flutt hér, er ekki gert ráð fyrir því, að það sé skylt að viðhafa slíkar hlutfallskosningar, nema tiltekinn hluti félaganna óski þess, og er það að sumu leyti eðlilegt, því að stéttarfélög starfa við nokkuð mismunandi skilyrði og aðstöðu, sum eru smá, í litlum byggðarlögum og hreppum, en önnur aftur stór, í kaupstöðum og kauptúnum. Það geta verið þær kringumstæður, að það liggi ekki fyrir óskir manna um það að hafa annað en einfaldar meiri hl. kosningar. En ef fyrir liggur vilji 1/5 hl. félaga í viðkomandi félagi um það að viðhafa hlutfallskosningar, þá er rétt að taka tillit til þess. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að þetta mál megi mæta góðum skilningi í þessari hv. d. Það er einnig vitað, að það nýtur víða annars staðar fylgis Það er vitað, að Sjálfstfl. hefur gert almenna flokkssamþykkt um það hjá sér að vinna að því, að það megi takast að koma á slíku kosningafyrirkomulagi innan verkalýðssamtakanna. Það er einnig vitað, að við síðustu kosningar til alþýðusambandsþings í Dagsbrún var samkomulag milli verkamanna innan Sjálfstfl. og Alþfl. um að standa saman um fulltrúaval, og það samkomulag byggðist á því, að takast mætti að koma á hlutfallskosningum innan verkalýðsfélaganna og innan Alþýðusambandsins. Þá er einnig að vænta þess, að sumir hverjir, sem eiga sæti hér í d. og hafa einmitt fjallað um málefni stéttarfélags bænda og búnaðarsambandanna, þar sem slíkar reglur eru þegar komnar á, ljái lið sitt þessu máli, sem hér um ræðir. Ég held þess vegna, að það sé ástæða til að ætla, að málið eigi fylgi að fagna í öllum flokkum hér á þingi. Málefni eins og þetta er í eðli sínu réttlætismál, sem verður ekki stöðvað, og nær því fyrr eða síðar fram að ganga.

Ég vil bæta því við um það, að málið eigi fylgi að fagna í öllum flokkum, að það vill svo til, að núverandi forseti Alþýðusambands Íslands, hv. 11. landsk., hefur barizt fyrir því, að þetta skipulag yrði tekið upp innan verkalýðsfélaganna. Við höfum verið í þeirri aðstöðu að vinna sameiginlega að því, meðan við störfuðum báðir á vegum Sjálfstfl., að komið yrði á hlutfallskosningum innan verkalýðsfélaganna. Ég vil einnig með hliðsjón af þessu vænta nokkurs stuðnings úr þessari átt. Ég ætla svo ekki að svo komnu að hafa þessi orð fleiri, en vil mega leggja til, að þessu máli verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.