28.10.1946
Neðri deild: 6. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (3712)
26. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Hermann Guðmundsson:
Herra forseti. Hv. 5. landsk. þm. hefur tekið af mér það ómak að tala margt um þetta mál, þar sem hann tók margt fram af því, sem ég vildi sagt hafa. En ég get þó ekki stillt mig um að segja nokkur orð, bæði vegna þess, að ég er forystumaður þeirrar stofnunar, sem þetta mál snertir, og einnig vegna þess, að hv. flm. hefur látið mig verða þess heiðurs aðnjótandi að geta mín í sambandi við framsöguræðu sína. Nú vil ég taka það fram, að ég er þessu frv. andvígur, fyrst og fremst vegna þess, að ég álít, að verkalýðshreyfingin eigi sjálf að ákveða um þetta, en ekki löggjafarvaldið. Hv. flm. gat þess, að þetta frv. væri fram komið til þess að skapa jafnrétti innan verkalýðshreyfingarinnar. Það er svo innan verkalýðshreyfingarinnar, sem og margra annarra samtaka, að það er mjög um það deilt, hvaða fyrirkomulag skuli gilda um val trúnaðarmanna, en verkalýðshreyfingin hefur til þessa ráðið því sjálf. En þegar rætt er um það að skapa jafnrétti innan verkalýðshreyfingarinnar, þegar menn eru svo sannfærðir um, að slíkt þurfi að gera, að þeir semja frv. eins og þetta, þá er vert, að menn athugi betur hugmyndir sínar um jafnrétti og svo verk sín.
Ég verð að segja það, að mér virðist kenna mikils ósamræmis milli þeirrar hugmyndar, sem ég hef um jafnrétti, og þess, sem fram kemur í frv., og vil ég í því sambandi benda á, að samkvæmt frv. á 1/5 hluti félaganna að binda alla félagsheildina undir ákveðið form. Í. d. ef deilt er um það í einu verkalýðsfélagi, hvaða stjórnarform skuli hafa, og 4/5 vilja hafa það fyrirkomulag, sem nú gildir, en 1/5 vill annað, þá á 1/5 að ráða, en hinir ekki. Þetta finnst mér ekki jafnrétti.
Hv. flm. gat um það, að fram hefðu komið kröfur um það, að hlutfallkosningar yrðu teknar upp í verkalýðsfélögunum, og að þær ættu vafalaust fylgi að fagna, og hann gat um það, sem eins konar réttlætingu fyrir þessu frv., að slíkar kröfur hefðu víða komið fram, en ekki náð fram að ganga. En ég vil spyrja hv. þm.: Hvar hafa þessar kröfur komið fram og hvenær, í hvaða verkalýðsfélögum, og í hvaða verkalýðsfélögum hafa þær verið felldar? Það fór eins og ég reiknaði með, að enda þótt hv. flm. sé lögfræðingur, þá veittist honum erfitt að færa heim ummæli sín um jafnréttið í þessu frv., sem hefur inni að halda ójafnrétti í orðsins fyllsta skilningi og er freklegt brot á viðurkenndu félagafrelsi í landinu. Ég get ekki fengið annað inn í mitt ferkantaða höfuð, ef svo mætti segja, en að 1/5 hluti geti samkvæmt því ákveðið það form, er 4/5 verði að sætta sig við, hvernig sem þeim líkar það, eða m. ö. o. að það sé minni hlutinn, sem ráði, en ekki meiri hlutinn. Hv. flm. virðist líta þveröfugt á þetta. En að því athuguðu, hvaða fyrirkomulag gilti um fulltrúaval, ef frv. hans næði samþykki, er það þó einkum jafnréttið, sem yrði fyrir borð borið, er 1/5 hluti atkvæða réði fyrir 4/5 hlutum.
Hv. flm. vildi gefa í skyn, að ég hefði snúist mjög í þessu máli, að ég hefði haft aðrar skoðanir, er ég var í Sjálfstfl. Það er ekkert leyndarmál, að í dag hef ég aðrar skoðanir á mörgum þjóðfélagslegum málum en ég hafði, meðan ég var í Sjálfstfl. Þess vegna er ég hér í dag sem þm. fyrir Sósfl. Þó hef ég í dag nákvæmlega sömu skoðun og ég hafði 1939 á því, að verkalýðsfélögin eiga sjálf að ráða sínum innri málum og þar á meðal, hvaða kosningafyrirkomulag þau hafa í sambandi við val sitt á mönnum í trúnaðarstöður. Flm. virtist leggja á það mjög mikla áherzlu, og var sem hann skoðaði það sem einhver rök fyrir framgangi frv. síns, að málfundafélagið Þór í Hafnarfirði átti þátt í frv. Bjarna Snæbjörnssonar 1939, og gaf hann raunar í skyn, að ég hefði verið formaður þess félags, er samþykkt þess var gerð, sem hann minntist á. Hér kemur fram sama þekkingarleysið hjá hv. flm. og líklega er orsök þessa frv. hans. Ég var nefnilega ekki formaður málfundafélagsins Þórs 1939.
Hv. flm. virðist ekki gera mun á ástandinu í verkalýðsfélögunum þá og nú. Honum virðist sjálfsagt að grípa nú, er eining ríkir innan verkalýðshreyfingarinnar, til sömu ráða og nefnd voru 1939, er sundrung og hjaðningavíg veiktu verkalýðssamtökin.
Ég sé ekki ástæðu til að fara nánar út í ræðu hv. flm. að svo stöddu. Ég óska þess eindregið, að frv. þetta verði fellt af þeim sökum, að það er ekki Alþingis að ákveða um innanfélagsmál verkalýðsfélaganna, þótt flm. hafi á þessu aðra skoðun og vitni í því sambandi m. a. í vinnulöggjöfina. Ég get ekki séð, að neitt það hafi skeð, er réttlæti það, að Alþ. þurfi að grípa á róttækari hátt inn í málefni verkalýðssamtakanna en með vinnulöggjöfinni 1938, eða 1939 undir þeim kringumstæðum, er þá voru. Þá var svipuðu máli vísað frá hér, af því að þm. vildu ekki grípa inn í starfsemi verkalýðshreyfingarinnar, og ég vænti, að sá skilningur sé ennþá fyrir hendi og frv. þetta verði fellt.