09.01.1947
Neðri deild: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í C-deild Alþingistíðinda. (3723)
26. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Frsm. minni. hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Það er ekki langt mál, sem ég þarf að tala. Ég verð að segja það um síðustu ræðu hv. 1. þm. Árn., að hún var að ýmsu leyti sanngjörn, og komu fram ýmis sjónarmið í henni, svo sem það að hann mundi liðsinna minni hl., þótt síðar væri. En það er eitt atriði, sem ég þarf að leiðrétta. Hann gerir ráð fyrir því. að í frv. mínu sé miðað við 1/3, sem geti krafizt hlutfallskosninga. en í frv. er það 1/5 en það er atriði, sem ég hefði verið tilleiðanlegur til að breyta. ef út í þá sálma hefði verið farið. Annars er aðalatriðið í ræðu hv. þm. staðfesting á því sem fram kom í minni ræðu, að því er snertir afstöðu Framsfl. Mér fannst full ástæða til þess vegna fyrri afstöðu og vegna svipaðra ákvæða í jarðræktarl. um búnaðarsamböndin, að þetta mál hefði mætt betri skilningi hér en nú hefur orðið. Hv. hm. virðist byggja afstöðu sína á því, að það sé ekki vilji fyrir því hjá verkalýðsfélögunum nú að breyta þessu og vilji þeirra hefði komið fram í ályktunum alþýðusambandsþingsins. Í minni ræðu syndi ég fram á, að með þeirri ályktun, sem afgr. var á alþýðusambandsþinginu, var ekki málefnalega tekið á málinu og ekki á þann hátt, að ég telji það sannfærandi fyrir þm., það eru allt of greinileg fingraför kommúnismans á þeirri ályktun. En varðandi ákvæðið í jarðræktarl. þá segir hv. þm., að þegar þau voru samin á sínum tíma, þá hafi þeim, sem að þeim stóðu, þótt rétt að hafa í þeim opna leið til hlutfallskosninga — tilgangurinn hafi verið að skapa sterkari stofnun —, að þeir hafi talið viðurhlutamikið að útiloka hlutfallskosningar. Menn, sem þannig tala, hefði ég viljað sjá í flokki mínum, af því að ég get ekki betur séð en hann viðurkenndi, að þetta væri sambærilegt málefni, því að það segir í 7. gr. 1., að það skuli viðhafa hlutfallskosningar, ef fram koma fleiri en einn listi, og það er tilskilið, að það verði að vera 40 félagar, sem standa að honum. Það er rétt að þetta er ekki að öllu leyti sambærilegt sveitarstjórnarkosningum, en þetta er þó ekki óskylt, og ég gat þess að þeir menn, sem lögðu kann á að koma á hlutfallskosningum þar, gætu ekki fellt það í þessu máli nú að koma á hlutfallskosningum innan stéttasamtakanna. Ég hef svo ekki fleiri orð um ræðu þessa hv. þm.
Ég taldi fortíð hv. frsm. meiri hl. í sambandi við þetta mál þess eðlis, að full ástæða hefði verið til að ætla, að hann hefði betur á málinu tekið en nú hefur komið í ljós.
Það er eitt atriði í ræðu hv. 11. landsk., sem ég vil sérstaklega staldra við. Hann vildi bera brigður á það, að ég hefði farið rétt með samtal, sem hann vitnaði til, að hefði farið fram á milli okkar, hann kvaðst ekki hafa reynt mig að óorðheldni, en vildi bera brigður á, að ég hefði farið rétt með. Samtal þetta fór fram milli okkar eftir 1. umr. og var á þá leið, að hv. 11. landsk. spurði mig, hvort ég mundi þá taka mitt frv. til baka, ef hann beitti sér fyrir því, að ákvæðið um hlutfallskosningar yrði tekið upp á frjálsum grundvelli innan verkalýðssamtakanna. Með tilvísun til þessa samtals hefði verið hægt að búast við annarri afgreiðslu en þeirri, sem fékkst á alþýðusambandsþinginu. Í sambandi við ummælin um það, hvort hann hafi verið með lögskipun á hlutfallskosningum eða ekki, þá langar mig að vitna til ummæla hans sjálfs í blaðinu „Lýðfrelsið“. sem hann gaf út og þar sem hann var formaður útgáfustjórnar. Í fyrstu grein blaðsins, sem er eftir Hermann Guðmundsson, 11. landsk. er vitnað til málsins, þegar það var fyrir þinginu 1928. Þar segir svo: „Á Alþ. berjast þm. Sjálfstfl. fyrir því, að stéttarfélögin verði gerð að hreinum fagfélögum. sbr. frv. Bjarna Snæbjörnssonar á haustþinginu 1939. Það er því ekki neitt undrunarefni heldur eðlileg afleiðing jákvæðrar stefnu. að Sjálfstfl. á svo miklu fylgi að fagna meðal verkamanna sem raun ber vitni.“ Ég verð að biðja menn að taka eftir því, að hér er enginn fyrirvari gerður um neitt atriði í frv. Bjarna Snæbjörnssonar, en þar var eitt ákvæði um að lögskipa hlutfallskosningar með sömu skilmálum og gert er í mínu frv.
Það var svo annað atriði hjá þessum hv. þm., að hann gerði mikið úr einróma samþykki alþýðusambandsþingsins, þessari ályktun, sem ég hef gert að umtalsefni og átti að sýna, að enginn væri með þessu máli. Ég tók það fram í minni ræðu, að þetta er ekki vitnisburður um það, að enginn hefði viljað líta við þessu máli, heldur vitnisburður um ofurvald Sósfl. á þessu þingi. Ég talaði við fulltrúa á þessu þingi, sem fylgja Sjálfstfl., og allir þeir fulltrúar, sem töluðu við mig, voru sammála um það, að rétt væri að taka upp hlutfallskosningar, en tveir vildu ekki fara lögskipunarleiðina. Það er aftur skiljanlegt, að það er dálítið erfitt fyrir fáa menn og umkomulitla að rísa upp á samkomu eins og þessari, þar sem menn vita að ofurkaup og yfirgangur kommúnista er í algleymingi. Ég tek þetta fram vegna ummæla hv. 11. landsk., og ég tel það á engan hátt nein ámæli í garð þessara manna, þó að þeir hafi ekki verið mjög skeleggir í að halda á lofti sinni sannfæringu, þar sem þeir vissu hve fáliðaðir þeir voru og lítils megandi á þessu þingi.
Að lokum sagði hv. þm., að ég hefði átt að kynna mér betur eðli samtakanna, áður en ég flutti þetta frv: Í sambandi við það, að hann talar um eðli samtakanna, vil ég segja það, að ég hef aldrei talið óeðlilegt, þó að pólitík væri tekin til meðferðar innan verkalýðssamtakanna, en ég talaði um skinhelgi þeirra manna, sem vildu gera verkalýðssamtökin að pólitískum leiksoppi. Ég talaði um það, að á sama tíma og þessir menn væru að segja, að þessi málefni ættu að vera ópólitísk, þá væru þeir að berjast fyrir því að innleiða pólitík innan verkalýðssamtakanna.