20.01.1947
Efri deild: 53. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í C-deild Alþingistíðinda. (3733)
130. mál, almannatryggingar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Mér þykir rétt að fara nokkrum orðum um þetta mál á þessu stigi, þótt málið sé hv. þm. mjög kunnugt. Það, hvað fáir hlusta á umr. um það, bendir og til þess. Hv. þm. hafa vikið af fundi, af því að þeir telja málið, að því er maður skal ætla, sér svo kunnugt, að þeir treysta sér til að taka ákvörðun um það án þess að hlusta á umr. varðandi það. Ég átti sæti í heilbr.- og félmn. á þingi því, sem hafði með þetta mál að gera. Mér er því kunnugt um, hver meðferð var á því á síðasta þingi. Ég vildi í sambandi við það segja nokkur orð, einkum þar sem ég á ekki sæti í heilbr.- og félmn. að þessu sinni. Í raun og veru er ekkert nýtt í þessu frv. á þskj. 290 frá því, sem sett var fram af Sósfl., þegar gengið var frá þessum 1. Og allar þessar till. voru ræddar fram og til baka. Í raun og veru fékkst samkomulag um þetta mál að öðru leyti en því, að flm. þessa frv. gat ekki fellt sig við lausn málsins. Skil ég því tilgang hans með því að bera fram þetta frv. nú. Ég tel þrátt fyrir það, þótt nokkur breyt. hafi orðið á skipan Alþ. síðan 1. voru sett, að þá sé vafasamt, að þær brtt., sem hér eru settar fram, nái fram að ganga vegna þess. Ég held, að ekki sé fullkomlega réttmætt enn sem komið er að gera þær breyt., sem hér er farið fram á. Ég skal játa það, að ég hef rætt við nokkra menn úti um landsbyggðina í sambandi við 11. gr., og ég hef ekki orðið var við þessa agnúa, sem flm. var að lýsa á 1. En hins vegar hef ég orðið var við það, að viðkomandi mönnum hefur fundizt það nokkuð þunglamalegt, að n. skuli vera kosnar eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar á sameiginlegum fundi. Þeir telja, að í þessu sé nokkur kostnaður, þar sem allar sveitarstjórnir þurfa að fara á einn stað til þess að velja þessa menn, og hefðu þeir því kosið að hafa annan hátt á þessu, ef hægt væri. Annað í sambandi við þessa gr. hef ég ekki heyrt. En ég get skilið, að fyrir þessu eru nokkur rök, þar sem víða er erfitt um samgöngur og af þeim ástæðum æskilegt að hafa á þessu annan hátt. Samt hygg ég ekki sé rétt að gera þessa breyt. fyrr en tryggingastofnunin hefur starfað undir þessum lögum a. m. k. í eitt ár, til þess að hægt væri að sjá, hvernig bezt væri að koma þessu fyrir. Ég get ekki fallizt á rök þau, sem flm. hélt fram hér um, að ekki væri fylgt lýðræðisreglum varðandi þessa skipan málanna og hagsmunir hinna tryggðu væru bornir fyrir borð. Við skulum aðeins líta á 11. gr. 2. málsgr. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta: „Tryggingastofnunin hefur skrifstofur eða umboðsmenn á þeim stöðum, sem bezt henta og þörf krefur eftir ákvörðun tryggingaráðs.“ Og síðar stendur: „Hlutverk tryggingan. er að fylgjast með rekstri trygginganna í umdæminu, gera till. um framkvæmd þeirra, gæta hagsmuna hinna tryggðu og benda á atriði, er mættu verða til sparnaðar í rekstri trygginganna.“ (StgrA: Þetta eru valdalausir menn.) Það eru ekki valdalausir menn, sem eiga að gæta hagsmuna hinna tryggðu og benda á atriði, sem mættu verða til sparnaðar í rekstri trygginganna. Það er áreiðanlegt, að ef tryggingan. færi fram á lagfæringu á rekstri trygginganna, til þess að auka eða bæta öryggi hinna tryggðu, þá gæti tryggingastofnunin ekki gengið fram hjá þeim bendingum. Ég sé bara ekki, að tryggingan. samkv. þessu frv. hafi nokkuð meiri völd. Það er hér sagt, að hlutverk þeirra skuli vera að starfrækja skrifstofur fyrir tryggingastofnunina, þar sem þær eru, og annast rekstur trygginganna í viðkomandi umdæmi í umboði tryggingastofnunarinnar. Ég sé ekki mikla breyt. hér. Ég mótmæli þeirri skoðun eða skýringu flm. á 11. gr., að hér sé um valdalausar n. að ræða. Hv. flm. sagði, að gert hefði verið samkomulag á Alþ. um það, að kaflinn um sjúkrabætur skyldi felldur niður. Þetta er rangt. Sjúkrasamlögunum er falið þetta vald nú, vegna þess að ekki var hægt að koma í framkvæmd heilsuverndarkaflanum. Mér er ókunnugt um, að gert hafi verið nokkurt samkomulag um þetta atriði. Því var neitað í n., þegar l. voru samþ., að samþ. breyt., sem kom frá Sósfl. og var sótt af miklu kappi. Þessu var neitað vegna þess, að samkomulag var um það hjá meiri hl. n., að gr. skyldi sett í l. eins og hún er nú. Þessar fullyrðingar um samkomulag í þessu sambandi eru því ekkert annað en staðhæfingar út í bláinn. Alþ. hefur ekki fallizt á neina slíka lausn, og þetta var aðeins gert vegna þess, að heilsuverndarkaflanum var frestað um eitt ár. Ég tel óráð að breyta þessari gr.
Þá skal ég víkja að hækkun lífeyrisgreiðslnanna um 25%. Um þetta atriði má deila. En ég vil benda flm. á, hvort hann hefur ekki orðið var við það, að frá miklum fjölda sveitarstjórna hafa borizt umkvartanir um það, hversu þung gjaldabyrði væri á þeim eins og 1. væru nú. Ég fyrir mína parta hef fengið mörg bréf um þetta atriði, þar sem færð eru þung rök að því, að það sé mjög þung byrði lögð á sveitarfélögin með þessum greiðslum, eins og þær eru nú ákveðnar í 1., þótt gjaldið sé nú ekki hækkað um 25%. Ég tel ekki, að þessi rök séu að fullu veigamikil. Mér finnst víða vera horft um of á þau iðgjöld, sem viðkomandi sveitarsjóður verður að greiða, en hins vegar sé lokað augunum fyrir þeim kjarabótum, sem sveitirnar fá með bótunum. En samt hygg ég, að ekki sé rétt, fyrr en a. m. k. er komin eins árs reynsla á þessi mál, að fara að hrófla við iðgjöldum og bótum. Ég geri ráð fyrir, að stefnt verði að því og tel æskilegt að gera landið að einu verðlagssvæði. Það var rætt mikið um þetta í heilbr.- og félmn., þegar. málið var til umr. En ein aðalástæðan fyrir því, að fallið var frá að gera landið allt að einu verðlagssvæði var, að frá sveitarstjórnum komu ábendingar um, að hinir ýmsu fátæku hreppar væru þess ekki megnugir að standa undir sínum hluta. En ég hygg samt, að þróunin verði í þessa átt. Ég get skilið það, að fyrir þá, sem ekki hafa neinar tekjur aðrar en bæturnar, þá verði ákaflega þröngt í búi. En þessar greiðslur, sem eru lögboðnar, eru greiddar öllum og jafnt mönnum sem hafa aðrar tekjur. Ég tel rétt að láta ekki fara fram breyt. á þessu nú, þótt ég sé fylgjandi því, að bæturnar til þeirra, sem ekki hafa annað til að lifa á, verði hækkaðar. Ég get ekki fallizt á að miða við verkamannatekjur fyrir 8 stunda vinnudag með 25% álagi. Ég hygg þetta sé nokkuð fyrir neðan það lágmark. En hins vegar er ekki útilokað, að fjölmargir hafi ýmsar aðrar tekjur en þessar bætur, a. m. k. ef um heilbrigð gamalmenni er að ræða. Þessar tekjur eru því stór bót.
Viðvíkjandi breyt. á ekknabótunum, þá var þetta mál mikið rætt í n. og var hv. flm. kunnugt um það. En ég vil sérstaklega leyfa mér að mótmæla þeim hl. grg. frv., þar sem fjallað er um þetta atriði. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta: „Það skilningsleysi meiri hl. Alþ. á aðstöðu ekkna og einstæðra mæðra, sem fram kom í afgreiðslu þess á þessu atriði trygginganna, vakti almenna gremju og allmiklar umr. utan þingsins.“ Mér er ekki kunnugt um að þetta hafi vakið neina gremju eða umr. En sjálfur Sósfl. hefur reynt að vekja þessa gremju við síðustu kosningar. Og það lagðist lítið fyrir kappann, þegar hann hafði ekkert annað til þess að reyna að vekja upp gremju en þetta atriði. Það er ákaflega auðvelt að fara með þetta til fátækra ekkna, umturna því, snúa sannleikanum við og koma svo og segja, að það hafi vakið mikla gremju utan þingsins vegna skilningsleysis Alþ. á þessu máli. Ég vil spyrja hv. þm.: Hver er munurinn á aðstöðu ekkna nú miðað við það sem var áður en þessi l. voru samþ.? Ég hygg, að ef þetta væri borið saman, þá væru engin vandræði að hrekja allan þann óhróður, sem Sósfl. hefur beitt sér fyrir út af þessu atriði. Það var honum engan veginn sæmandi. Sannleikurinn er sá, að Sósfl. átti ekki lítinn þátt í því, að þetta mál fór ekki betur á síðasta Alþ. Og það var vegna þess, að hann lýsti yfir, að hann mundi aldrei fella sig við, að ekki væru nákvæmlega sömu bætur greiddar til ógiftra kvenna, sem ættu börn, og ekkna. Og þegar það er vitað, að samkv. skýrslum er 25% barna fædd utan hjónabands, þá varð að taka það til athugunar, hve mikil fjárfúlga þetta væri, ef ætti að greiða bætur til þeirra kvenna eins og þær væru ekkjur. Það gat komið til þess, að tryggingastofnunin yrði að greiða frá 10 og upp í 70 þús. kr. í heimanmund til hverrar þeirrar stúlku, sem giftist eftir að hún hafði barn alið. N. gat ekki fallizt á að fara þær leiðir, sem Sósfl. vildi fara. Það er fjöldi kvenna, þótt aðeins sé eftir hernámið, sem hafa átt eitt og tvö börn ógiftar. Og mundi því hvenær, er þær giftust, eiga að greiða þeim heimanmund miðað við 3 ára bætur. Það getur vel verið, að þetta sé ekkert athugavert frá sjónarmiði flm., en það eru hér aðrir menn, sem álitu, að ríkissjóður ætti ekki að stuðla að því, að fjöldi barna utan hjónabands væri aukinn. En það liggur í augum uppi, að það mundi ekki stemma stigu við slíku, ef menn vissu, að þeir gætu fengið 20 þús. kr. með viðkomandi stúlku, ef hún hefði fært þeim 1 eða 2 börn áður en þau giftu sig. Hins vegar leyndi hv. flm. því, að það voru aðrar bætur, sem vega upp á móti þessu. Það voru sett ákvæði í 1. um, að konur skyldu fá bætur, ef þær hættu að taka barnalífeyri eftir að þær yrðu 50 ára. Og það gildir jafnt fyrir ekkjur og konur með eitt barn, þótt þær væru ekki giftar. Þetta er mikil bót og vafasamt, hvort þetta ákvæði er ekki heppilegra fyrir viðkomandi konur en ákvæðin, sem voru fyrir í 1. varðandi þetta. Auk þess var engin trygging fyrir því, þótt kona gifti sig og fengi 10–70 þús. kr. í heimanmund, að það nýstofnaða hjónaband héldi. Þetta gat því komið aftur á ríkissjóð. Þetta var mikið vandamál, en um það vildi Sósfl. aldrei ræða eða viðurkenna.
Varðandi breyt. iðgjaldanna þá var ég alltaf fylgjandi þessu atriði. Ég tel það eðlilegt, að í stað þess að hafa persónugjaldið svona hátt, þá skyldi heldur miðað við tekjur manna. Og mun hv. flm. vita það frá umr. um það, þótt ekki yrði samkomulag um það á síðasta Alþ. En ýmsar orsakir lágu til þess, að það tókst ekki, og það kannske helzt, að um svo margt þurfti að semja og var samið varðandi þetta stóra mál. En ég tel ekki rétt á þessu stigi málsins að fara inn á víðtæka breyt. á l. Ég tel réttara að bíða með slíkt, þangað til tryggingastofnunin er búin að starfa a. m. k. eitt ár undir þessum l. Þá sjá menn, hvaða agnúar koma fram og hvaða áhrif l. hafa á þjóðfélagið.
Það er svo annað atriði, sem e. t. v. kemur ekki þessu máli við, en þetta mál er að langmestu leyti auglýsingamál fyrir Sósfl. Margar þessar gr. í frv. eru svo að segja teknar orðréttar upp úr l. En það á að líta svo út sem hér sé þessi flokkur að koma með nýmæli. Sannleikurinn er sá, að hér er flest tekið upp úr l., nema tölur o. þ. h. Þetta er gert til þess að láta lesa frv. upp í útvarpið, svo að þannig líti út sem hér sé nýmæli á ferðinni, sem þessi þverrandi flokkur sé að taka upp og berjast fyrir.