06.12.1946
Neðri deild: 33. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í C-deild Alþingistíðinda. (3773)

90. mál, búnaðarmálasjóður

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður byrjaði á því, að hér væri verið að stofna til langvarandi rifrildis að ástæðulausu. Það er ekkert nýtt, þegar sá, sem rangindum er beittur, vill rétta sinn hlut, að sá, sem rangindunum beitir, telji það rifrildi að ástæðulausu og kalli slíka menn óróaseggi. Hv. þm. A-Húnv. tók það atriði upp eftir þm. S-Þ. og jótraði á því, þegar hann, þm. S-Þ., skírskotaði til fylgis síns á aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands. Það sanna í þessu máli er það, að Guðmundur gamli á Hofi, sem illu heilli hafði tekið málstað þessara manna — og verður að teljast elliglöp af hans hálfu, — var endurkjörinn í stjórn félagsins. En þess ber að gæta, að kosning þessi fór fram á öndverðum fundi þessum og áður en raunveruleg deila um þetta mál varð. Og það hef ég eftir greinargóðum manni, sem sat þennan fund, að hann teldi mjög vafasamt, að kosningin hefði farið á þessa leið, hefði hún farið fram í lok fundarins, enda ber það heim við undirtektir fundarmanna í þessum umræðum. Þá sannaði það mjög andstöðu bænda við þetta mál, hvernig kosningar fóru til búnaðarþings. Enda þótt í broddi þeirrar fylkingar, sem var í andstöðu við Búnaðarfélag Íslands, væri maður einkar vinsæll, Bjarni Bjarnason skólastjóri, varð sú fylking undir við kosningarnar og fékk ekki nema tvo menn af fimm, þrátt fyrir mikinn áróður.

Ég get ekki elzt við að svara hv. þm. S-Þ., enda hefur 1. þm. Skagf. gert það rækilega. Þó get ég ekki varizt að minnast á eitt atriði, sem er algert nýmæli hjá þm. S-Þ., en það er það, að Búnaðarfélag Íslands sé ekkert félag, en eins og kunnugt er, hélt það upp á 100 ára afmæli sitt nú fyrir nokkru. Með öðrum orðum, ég veit ekki, hvort nokkurt félag í þessu landi er eldra. Um það, hvernig Búnaðarfélag Íslands er byggt upp, get ég skýrt nokkuð, ef einhver hefði glapizt á að trúa því, sem þm. S-Þ. var að segja. Búnaðarfélag Íslands hefur deild í hverju hreppsfélagi, þar sem bændur hverrar sveitar ráða ráðum sínum og kjósa sér stjórn. Þá hafa þessi hreppabúnaðarfélög með sér sambönd, sem í eru ein eða fleiri sýslur. Þessi sambönd hafa sín þing og ráða ráðum sínum, en á þeim eiga sæti fulltrúar allra hreppabúnaðarfélaganna. En svo er Búnaðarfélag Íslands samband allra búnaðarsambandanna. Ég efast því um, að það sé nokkurt félag á Íslandi, sem byggt er upp á lýðræðislegri hátt, en þó leyfir þessi hv. þm. sér að koma fram fyrir allan þingheim og segja, að Búnaðarfélag Íslands sé ekkert félag. Hitt er annað mál, að ríkið hefur falið Búnaðarfélagi Íslands að annast ýmis mál, sem víða í öðrum löndum munu heyra undir ráðuneyti ríkisins, eins og t. d. sandgræðslu, jarðrækt o. fl., og til þessarar starfsemi fær það fé úr ríkissjóði, og til ráðstöfunar á þessu fé þarf samþykki landbrh., eins og eðlilegt er, þar sem þetta fé er ákveðið í fjárl. af Alþ., þó að Búnaðarfélag Íslands ráðstafi því fyrir hönd ráðuneytisins. En Búnaðarfélag Íslands er samt frjáls félagsskapur, hvað sem þessu líður. Þó að öll þessi starfsemi væri tekin og sett undir ríkið, þá er Búnaðarfélagið til eftir sem áður og er sambandsfélag allra búnaðarfélaga á landinu og getur hagað allri sinni starfsemi eftir vild sinni, en að vísu þá starfað þess minna, og slíkt starf hefur nú verið og verður að vera til, hvernig sem ríkið hugsar sér að búa að búnaðarfélaginu. Búnaðarfélag Íslands er því hreinn stéttarfélagsskapur, sem bændur landsins eru í, og er ekki síður lýðræðislega byggt upp heldur en Alþýðusamband Íslands. Hitt er annað mál, að Búnaðarfélag Íslands hefur lengst af ekkert skipt sér af þeim venjulegu stéttarmálum, sem verkamannafélög landsins yfirleitt hafa með höndum, sem er m. a. vegna þess, að bændur hafa verið fráhverfir því að skipa sér í slík félög og hafa ekki talið það nauðsynlegt allt til þessa. En svo kom fyrir atburður á þingi árið 1943, þar sem það sýndi sig, að þetta var ekkert hégómamál, að þarna vantaði hlekk í félagakerfið í landinu, og hæstv. Alþ. fann þetta, þegar Alþ. þurfti að leysa vandamál, sem varðaði alþjóð. Og þá löggilti það Búnaðarfélag Íslands sem venjulegt stéttarfélag til þess að semja við fulltrúa frá verkalýðsfélögunum og ríkinu um vandamál landbúnaðarframleiðslunnar og landbúnaðarvöruverðið. Búnaðarfélag Íslands tók að sér þessa starfsemi og gekk til samninga við áðurnefnda aðila, og var það hið alkunna sexmannanefndarstarf, og þeir aðilar, sem að því stóðu, leystu það starf, svo að til fyrirmyndar má þykja, með fullkomnu samkomulagi. — En eftir að þetta gerðist, var öllum bændum ljóst, að þeir urðu einnig að taka upp sinn þátt í félagsstarfi samhliða þeirri starfsemi, sem Búnaðarfélag Íslands hefur haft með höndum. Það var nauðsynlegt, eins og nú var komið. Þarna vantaði þá hlekk í félagakerfi stéttarfélaga landsins. Þá kom upp nokkur ágreiningur meðal bænda um það, hvort það nýja stéttarfélag ætti að vera algerlega laust í tengslum við Búnaðarfélag Íslands og fara sínar eigin götur eða hvort Búnaðarfélag Íslands ætti að taka að sér þessa starfsemi, og bændur litu á þetta ýmsum augum. Um tíma horfði til nokkurs óefnis um þetta, og klofningur varð í bændastéttinni út af þessu máli. Þá var það á haustþinginu 1945, að Búnaðarfélag Íslands beitti sér fyrir því að sameina þessi tvö sjónarmið, að finna millileið út úr þessu máli, sem allir gætu sætt sig við. Og sú millileið var í höfuðatriðum ákveðin þannig, að stéttarsamband íslenzku bændanna skyldi að vísu vera sjálfstæð stofnun innan búnaðarfélagsskaparins, sem væri alls ráðandi yfir þeim málum, sem það færi með, en það væri þannig taug á milli þessa félagsskapar og búnaðarfélagsins, að ákveðin væri verkaskipting þar á milli, til þess að hvor þessara tveggja starfsgreina færi ekki með sömu mál, sem leitt gæti af sér árekstra og óþægindi í afgreiðslu þessara mála. Og eftir allmikil átök, sem má kalla fæðingarhríðir þessa nýja félagsskapar, fór svo að lokum, að á framhaldsstofnfundi stéttarsambands bænda á s. l. hausti á Hvanneyri var fullkomið samkomulag allra fulltrúa á fundinum um þetta, bæði þeirra, sem andstæðastir höfðu verið því áður, sem þar var samþ., um það, hvernig þessum málum skyldi skipað, og hinum, sem frá öndverðu höfðu verið með því, sem þar var samþ. Og nú er stéttarsamband bænda þannig stofnað með fullkomnu samkomulagi allra þeirra manna, sem áður höfðu deilt um þessi mál. Þetta samband er nú svo byggt upp, að í l. beggja félaganna er ákveðin verkaskipting milli þeirra að öllu leyti og hvort félagið fyrir sig er sjálfrátt um þau mál. En þó að nokkur ágreiningur væri um það um skeið, hvernig ætti að byggja þetta stéttarsamband upp, þá var aldrei ágreiningur um það, að bændur yrðu, um leið og þeir hæfu þessa starfsemi, að afla fjár til starfsemi síns eigin stéttarfélags, í þeirri vissu, að það er sjálfsagður hlutur í hverju stéttarfélagi, að þeir, sem í félaginu eru, standi sjálfir straum af starfsemi félags síns fjárhagslega. Og þá var það, að farið var að leita að eðlilegum leiðum til þess að koma fjárhagshlið þessarar starfsemi á fastan grundvöll. Og það varð ofan á að grípa til hugmyndar, sem hefur fæðzt í landbn. hv. Nd. — eins og hv. þm. A-Húnv. minntist lítillega á —, að leggja gjald á söluvörur bænda, sem þeir gætu ráðstafað sjálfir. Og þessi hugmynd var víkkuð það út af búnaðarþingi, að það var ákveðið, að einmitt þessi aðferð skyldi við höfð til þess að afla þessari stéttarstarfsemi eigin tekna. En það var undirskilið, að þeir réðu sjálfir og einir meðferð þessara mála. Þannig var frv. borið fram á Alþ., og þannig var frá því gengið af búnaðarfélagsskapnum í landinu. — Það er því ekki sambærilegt hinu, þegar hv. þm. A-Húnv. er að reyna að réttlæta það, að ráðh. eigi að hafa íhlutun um það, hvernig fé er varið, sem Búnaðarfélag Íslands fer með fyrir ríkið. Það er alveg sitt hvað og eins ólíkt eins og hvítt og svart. —

Nú gerist það á Alþ., að bændur eru gerðir ómyndugir um það, hvernig þeir verji því fé, sem þeir höfðu sjálfir ákveðið að leggja á sig til sinnar eigin starfsemi, og ég verð að segja það, að meðferð Alþ. á félagsskap bænda í þessu máli er svo óheyrileg, að ekkert dæmi er til í íslenzkri þingsögu um annað slíkt ofbeldi viðkomandi frjálsum félagsskap í landinu. Ef við eigum að fá dæmi um annað slíkt hjá stjórnarvöldum landa, verðum við að sækja þau til Þýzkalands og Ítalíu, frá þeim tíma, er nazistar og fasistar fóru þar með völd, því að þarna eru svo þverbrotnar allar lýðræðisreglur, sem gilda í félagsskap yfirleitt í landinu, að það er ekkert til hliðstætt því í neinu lýðræðisþjóðfélagi. Í þessi tuttugu ár, sem ég er búinn að sitja á Alþ., hef ég aldrei vitað öðru eins ofbeldi beitt í neinu máli gegn neinni stétt, eins og bændasamtökin í landinu voru beitt í þessu máli, og ég veit með vissu, að allir þeir bændur, sem hugsuðu út í þessi mál og fundu til eins og menn, voru hneykslaðir út af þessari framkomu — og fleiri en þeir, allir menn í landinu, sem gerðu sér grein fyrir því, á hvaða leið Alþ. var í þessu máli. — Ég skal segja eitt lítið dæmi um þetta úr mínu kjördæmi við síðustu kosningar. Þar er kona, sem alin er upp í alþýðusamtökunum í Reykjavík og beitti sér mjög mikið fyrir þeim, meðan hún átti þar heima. Eftir að hún flutti í Mýrasýslu, gat hún ekki haldið þeirri starfsemi áfram, en svo mikla tryggð hefur hún haft við sinn flokk, að hún kaus Alþfl. alltaf, þótt hún flyttist úr Reykjavík. Svo gerðist það á framboðsfundi í vor, að þegar frambjóðandi Alþfl. var að stíga niður úr ræðustóli og skoraði á alla frjálst hugsandi menn í landinu að kjósa Alþfl., að þá segir þessi kona hátt og snjallt þarna á fundinum: „Við þessar kosningar á allt sveitafólk, sem ekki vill láta traðka á sér, að kjósa Framsóknarflokkinn.“ — Vegna uppeldis þessarar konu fann hún til þess, hver óréttur hafði verið sýndur í þessu máli, nefnilega gagnvart bændasamtökunum í landinu. En því miður hefur ekki öll sveitaalþýða í landinu verið jafnnæm fyrir þeim órétti, sem beitt var gagnvart henni, eins og þessi kona, ef dæma skal eftir kosningaúrslitunum, sem urðu s. l. vor í sveitakjördæmunum. Ég veit að vísu, að ekki allir, sem hafa kosið þá menn, sem stóðu að þessari ofbeldisframkvæmd á þessari löggjöf, hafa gert það með ljúfu geði vegna þessara mála, heldur voru ýmis gömul bönd, sem bundu þá við þessa frambjóðendur. En hitt er annað mál — og er sorglegt til þess að vita — að vitanlega er því eins farið í bændastéttinni, sem finnst í öllum löndum og öllum stéttum og félögum, að til eru menn, sem svo eru skapi farnir, að þeir þola að láta bjóða sér ýmislegt, menn, sem Þorsteinn Erlingsson kveður um:

„Það er hart, að hróður þann

hundar af manni drógu,

að þeir flatar flaðri en hann

framan í þá, sem slógu.

Þrælslund aldrei þrýtur mann,

þar er að taka á nógu.

Hann gerði allt, sem hundur kann,

hefði hann aðeins rófu.“

— Og það er kannske vel til fallið, að hv. 2. þm. Rang. gerist formaður þeirra bænda í landinu, sem segja mætti, að þessi kveðskapur Þorsteins Erlingssonar að einhverju leyti ætti við.