21.02.1947
Neðri deild: 79. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í C-deild Alþingistíðinda. (3796)
17. mál, þingsköp Alþingis
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég er n. þakklátur fyrir þær undirtektir, sem málið hefur fengið í henni. Mér virtist á þeim, sem töluðu, að þeir væru sammála um, að í þessu máli væri þörf breyt. og að minni hl. flokka ætti kröfu á að láta rödd sína heyrast. Á hitt atriðið var hins vegar ekki minnzt, að umr. mættu halda áfram, eftir að útvarpsumr. er lokið.
En frv. þetta er tvíþætt. Í fyrsta lagi felst það í því, að umr. haldi áfram, þó að útvarpsumr. séu, og að minni hl. hafi nokkurn rétt, og þó takmarkaðan. Ég get vel fallizt á það, að þetta atriði sé athugað nánar, en hitt atriðið hefur n. leitt hjá sér. Eins og menn muna, var útvarpað síðari umr. um flugvallarsamninginn í haust. Þá átti ég þess engan kost að mæla með brtt., sem ég flutti, þar sem um þál. var að ræða, en um þær eru ekki nema 2 umr. En fram hjá þessu atriði virðist n. hafa gengið, en um hitt atriðið get ég fallizt á, að nánari athugun fari fram á málinu, og er þakklátur n. fyrir undirtektirnar.