24.02.1947
Efri deild: 79. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í C-deild Alþingistíðinda. (3804)
76. mál, iðnskóli í sveitum
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Þetta mál var fyrir hv. d. á síðasta aðalþingi, og var þá afgr. frá meiri hl. allshn. með rökst. dagskrá. Nú hefur n. fengið þetta mál á ný til umhugsunar, og hún hefur heldur ekki í þetta skipti getað orðið sammála um afgr. þess. Málið hefur þó verið rætt mjög gaumgæfilega á mörgum fundum n. Þar að auki hefur það verið sent til ýmissa aðila iðnstéttanna, og er umsögn þeirra aðila prentuð hér sem fskj. með nál. á þskj. 423.
Minni hl. n., hv. 1. þm. N-M. (PZ), vildi leggja til, að frv. væri samþ. með nokkrum breyt. Á þetta sjónarmið gat meiri hl. n. ekki fallizt, og liggja til þess þau rök, er ég skal greina.
Það er þá í fyrsta lagi, að á meðan iðnfræðslan almennt byggist á því, að iðnnemar læri hjá meisturum, eins og iðnlöggjöfin gerir ráð fyrir, allt að því fjögur ár, þá getur meiri hl. n. ekki fallizt á það að raska þeim grundvelli, sem öll iðnlöggjöfin í landinu er byggð á, en það er í raun og veru gert með þessu frv.
Í öðru lagi getur meiri hl. n. ekki fallizt á að stuðla að því, að sveitirnar fái aðra og lakari iðnaðarmenn en kaupstaðirnir eða landið almennt, en að því er bókstaflega stefnt með þessu frv., þar sem hugsað er, að nemendur frá þessum skóla starfi ekki einungis í sveitum, heldur líka í þorpum með undir 300 íbúa, en hafi ekki réttindi til þess að starfa sem fullgildir iðnaðarmenn á hvaða stað sem er á landinu.
Meiri hl. n. getur ekki fallizt á, að hús, sem byggð eru í sveitum, sumpart fyrir fé þegnanna sjálfra, en sumpart fyrir fé ríkisins, eins og nú á sér stað með fjöldamargar byggingar í sveitum, séu byggð undir umsjá þeirra manna, sem hafa miklu minna nám og þar af leiðandi lakari hæfni til þess að standa fyrir byggingu heldur en almennt er gert ráð fyrir samkv. iðnlöggjöfinni.
Þá telur n., að sá fjöldi, sem árlega kæmi frá þessum skóla, sem hér er gert ráð fyrir, mundi fljótt dreifast út um landið, og það væri ógerningur að halda jafnmörgum mönnum í sveitunum aðeins, og það mundi valda ýmsum erfiðleikum í sambandi við iðnaðarmenn, og að því vill n. ekki stuðla, að svo verði.
Að síðustu vill svo meiri hl. n. benda á, að kostnaðurinn við að koma upp slíkum skóla, sem hér er farið fram á, er gífurlegur, þar sem ætlazt er til þess; að þarna séu svo og svo margir í heimavist. Það mundi kosta stórfé að byggja slíkan skóla og verkstæði, sem þarf í sambandi við hann: Og með tilliti til þeirra réttinda, sem gert er ráð fyrir, að þessi skóli veiti, þykir meiri hl. n. ekki rétt að leggja til, að komið verði upp slíkum skóla.
Umsagnir viðkomandi aðila, m. a. frá Landssambandi iðnaðarmanna, og fleiri umsagnir hníga allar í sömu átt, að þeir telja ekki rétt, að slíkum skóla sem þessum verði komið upp, og í því sambandi vil ég leyfa mér að vísa í fskj. 1. frá Landssambandi iðnaðarmanna. Það telur, eins og meiri hl. n., að það séu á þessu svo margháttaðir erfiðleikar, að ekki sé ráðlegt að leggja út í slíkt.
Umsögn frá iðnsveinasambandinu fer í sömu átt, og sama má segja um umsögn frá iðnnemasambandinu, sem leggur á móti því, að frv. verði að l. Umsögn þess er á fskj. 2. Iðnsveinasambandið bendir á það á fskj. 3, að ef á frv. væru gerðar stórar breyt., þá væri hér um merkilegt mál að ræða. En til þess að hægt væri að leggja til, að frv. yrði samþ., þyrfti helzt að setja n. til þess að athuga málið miklu meir en gert hefur verið. Mér skilst á þessum umsögnum, að ef fara á að breyta þessu, þá þurfi í raun og veru að gerbreyta fræðslukerfinu þannig, að almennt sé farið að kenna iðnir í skólum landsins, en ekki hjá meisturum, og ef það væri gert almennt, horfir málið öðruvísi við, en þá þarf málið miklu meiri undirbúning en það hefur fengið á þessu stigi. Að síðustu er það fskj. 4. Það er umsögn trésmíðameistara á Akureyri, sem iðnn. hefur verið sent, án þess að hún óskaði eftir henni. En það þótti rétt að láta það skjal fylgja með.
Þegar mál þetta var afgr. á síðasta aðalþingi, þá var vísað til l. nr. 26 13. jan. 1938, um bændaskóla, um heimild til þess að taka upp kennslu við þá skóla í mörgum greinum, sem ætlazt er til, að kenndar séu samkv. þessu frv. Og þá var á það bent, að það væri innan handar fyrir hæstv. ríkisstj. að láta auka svo þá kennslu, að það mætti inna þar af hendi mikinn hluta af því, sem hér er ætlazt til með þessu frv. Þá hafa einnig verið samþ. l. nr. 38 7. maí 1946, þar sem gert er ráð fyrir að koma upp verknámsdeildum við héraðsskólana, og er ætlazt til, að kennt verði nokkuð af þeim smíðum, sem gert er ráð fyrir í þessu frv.
Sé það aðaltilgangur frv. að gera menn búhaga í sveitum landsins; þá virðist hægt að ná þeim árangri samkv. þessum l., sem þegar eru fyrir hendi, og þarf því ekki ný lagafyrirmæli til þess að framkvæma það. En sé það tilgangur frv. að koma upp iðnaðarmannastétt, sem kann miklu minna heldur en nú er krafizt samkv. núgildandi l., þá er ekki hægt að ná þeim tilgangi nema með því að setja upp slíkan skóla, en það telur meiri hl. n. ekki til bóta á neinn hátt, hvorki fyrir sveitir landsins né fyrir landið yfirleitt, og meiri hl. n. er algerlega á móti því, að inn á þá braut verði lagt.
Það hefur svo ekki verið tekin nein endanleg afstaða til þess í n., hvort rétt væri að stuðla að því að gerbreyta fyrirkomulagi um kennslu í iðnaði í sambandi við þetta mál.
En ég vil í þessu sambandi benda á, að nú liggur fyrir þinginu frv. um breyt. á iðnlöggjöfinni: Og eftir því sem ljóst er um fylgi fyrir því á þessu stigi málsins að gerbreyta fyrirkomulagi um iðnfræðslu í landinu almennt, svo sem gert er ráð fyrir í þessu frv., þá virðist meiri hl. n. meðal annars af þeim ástæðum ekki rétt að mæla með því, að þetta frv. verði samþ. Meiri hl. n. leggur því til, að frv. verði afgr. með rökst, dagskrá, eins og kemur fram á þskj. 423.