03.03.1947
Efri deild: 83. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í C-deild Alþingistíðinda. (3833)
76. mál, iðnskóli í sveitum
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Mér skilst, að hér sé verið að deila um það, hvort betur muni henta íslenzkum atvinnuþörfum, að menn stundi verklegt nám undir hinu gamla meistarakerfi, eða farið verði inn á nýja leið í þessum efnum, skólaleiðina. Í þriðja lagi finnst mér það svo koma hér til greina, hvort ekki megi fara báðar þessar leiðir, sem er það sjónarmið, er ég tel eiga mestan rétt á sér.
Það er ekkert að undra, þótt meistarakennslan sé farin að verða úrelt, þar eð hin verklega tækni hefur tekið slíkum stakkaskiptum á síðustu áratugum, sem raun ber vitni um og öllum er ljós. Iðnaðurinn áður fyrr var eingöngu framkvæmdur með handverkfærum í smiðjunum og á vinnustöðvunum, en nú er vélaiðnaður rekinn á gersamlega ólíkan hátt við það, sem áður var. Það hefur nú verið upplýst hér, að sú hin mikla iðnaðarþjóð, Svíar, hafi öðrum þræði farið inn á skólaleiðina á þessu sviði. Hæstv. samgmrh. upplýsti, að í Svíþjóð gengju menn til skipasmíðanáms sem verkamenn, en gætu síðan öðlazt réttindi í skipasmíðaiðn eftir ákveðinn tíma. Hins vegar hafa íslenzkir verkamenn, er stunda vinnu á skipasmíðastöðvum — hina sömu vinnu og nemarnir í þessari grein og hjá sömu meisturum —, ekkert tækifæri til að öðlast slík réttindi sem sænskir verkamenn, eins og l. er nú háttað. Fæ ég ekki séð, að nokkur hætta sé á því, að iðnaðarlöggjöfin hrynji í rústir, þótt öllum þeim, sem hafa langa reynslu og kunnáttu í hinum ýmsu iðngreinum, verði veitt tækifæri til að sanna hæfni sína með prófi. Ég þekki t. d. vélfræðing, sem stundaði nám á sínum tíma hjá vélsmiðju Þingeyrar. Varð hann að hætta námi sökum veikinda og hafði ekki aðstöðu til að ljúka því, er hann hafði fengið heilsu aftur, heldur tók að sér vélgæzlumannsstörf í vélsmiðjunni. Nú er þessi maður almennt talinn einn færasti vélsmiður á Ísafirði, en samkvæmt íslenzkri löggjöf hefur hann ekkert tækifæri til að sanna eða fá viðurkenningu á hæfni sinni. Slíka agnúa sem þessa þarf að sníða af íslenzkri löggjöf, og er það ekki samboðið þjóðfélaginu að standa þannig í vegi fyrir, að þegnar þess fái viðurkenningu á hæfni sinni og kunnáttu. — Þá held ég því fram í sambandi við hina nýju skólalöggjöf um vinnudeildir í héraðsskólum og gagnfræðaskólum, að efnilegum nemendum í verklegum fræðum þar verði gefinn kostur á, eftir að hafa lokið námi við þessa skóla, að halda áfram verklegum fræðum í framhaldsskóla, og tel ég sjálfsagt, að það komist inn í iðnaðarlöggjöfina, að slíkir menn fái iðnréttindi, eftir að hafa verið 2 ár hjá meistara eða í framhaldsskóla, þar eð þeir hafa fengið 4 ára kennslu í meðferð handverkfæra og algengustu vinnuvéla og iðnverkfæra. Leið þessara manna til lokanáms á að stytta með því að veita þeim rétt til að taka próf hjá meistara eftir styttri námstíma. En höfuðsjónarmiðið verður að vera það að meina engum, sem kunnáttu hefur til að bera, að sanna hæfni sína á prófi og hljóta réttindi í samræmi við það.