14.03.1947
Efri deild: 94. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (3871)
126. mál, verbúðir
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Í sambandi við ræðu hv. 6. landsk. þm. vil ég benda á, að hér í brtt. er talað um, að þetta sé nú aðeins gert þar, sem viðhlítandi hafnarskilyrði eru fyrir hendi. En einmitt þar, sem komið væri upp viðhlítandi hafnarskilyrðum, þá er a.m.k. þeim þættinum lokið, og það er þá á eftir ekki eins aðkallandi fyrir viðkomandi hafnarstjórn að nota fé til áframhaldandi framkvæmda til þess að bæta hafnarskilyrði, ef lausn verbúðamálsins er orðin meir aðkallandi en að bæta höfnina. Og úr því að það á ekki að koma þessum verbúðum upp almennt, þá finnst mér þetta vera rök á móti því að samþykkja frv., að þessum byggingum á að koma upp þar, sem viðhlítandi hafnarskilyrði eru fyrir hendi, þ.e.a.s. á móti því, að ríkisstj. eigi að hafa frumkvæðið í þessum efnum. Eða ber þá hv. 6. landsk. þm. það traust til núverandi ríkisstj., að hún muni frekar hrinda þessu í framkvæmd en þeir menn heima fyrir, sem finna bezt, hvar skórinn kreppir að? Ég skal í sambandi við það benda honum á það, að fyrrv. ríkisstj., sem hann ásamt mér studdi vel og dyggilega, hún hefur ekki framkvæmt það að koma upp verbúðum í þeirri einu höfn, sem skylt hefur verið að koma upp verbúðum í, þ.e. í landshöfninni í Njarðvíkum. Ég held, að hægt sé að benda á, að miklu minni framkvæmdir hafi verið gerðar í hafnarmálum í þessari landshöfn en í höfnunum, sem báðum megin liggja. T.d. Vogarnir hafa afkastað miklu stærri mannvirkjum í hafnarframkvæmdum á síðasta ári, síðan landshöfnin var samþ. í Njarðvík, en hefur verið gert í sjálfri landshöfninni. Sama er að segja um Sandgerði. Og mér er ekki kunnugt um annað en að dregið hafi úr hafnarframkvæmdum í Keflavík, síðan hún var innlimuð í landshöfnina. Var þar þó unnið áður myndarlega að hafnarframkvæmdum á hverju ári. Ég held þess vegna, að það mundi ekki flýta neitt sérlega mikið fyrir byggingu verbúða, þó að þetta frv. yrði samþ. og þó að brtt. yrðu samþ. við það, sem minni hl. n. ber fram. — Ég hef getið um það, að það er miklu meir sótt á heiman að frá útgerðarstöðunum um að fá framlög til hafnarframkvæmda úr ríkissjóði, þegar aðilarnir heima fyrir eiga að sjá um þetta, heldur en þegar þeir, sem eiga að fara með stjórn landsins, eiga að sjá um þetta og vita, að ekki er hægt að uppfylla allar þær kröfur í þessum efnum, sem uppfylla á samkv. lögum.
Hv. 6. landsk. þm. sagði, að alþýðusambandið, fiskifélagið og farmanna- og fiskimannasambandið hefðu mælt með samþykkt þessa frv. Það er rétt. En þessir aðilar höfðu ekki mætt hjá n. til þess að athuga þetta mál í sambandi við hafnarl. almennt. Þeir hafa þess vegna, að ég held, ekki gert sér grein fyrir því, hvort þetta frv., ef að l. verður, spillir ef til vill ekki fyrir framkvæmd hafnarl. heima fyrir á hverjum útgerðarstað með því að opna þessa sérstöku leið og hvort það mundi ekki tefja fyrir öðrum hafnarframkvæmdum í landinu eftir hafnarl. Farmanna- og fiskimannasambandið og alþýðusambandið vilja að sjálfsögðu, að komið sé upp sem mestu af verbúðum, hver eða hverjir sem gera það. Og alþýðusambandið hefur kannske verið undir áhrifum frá hv. 6. landsk. þm., þegar það mælir með því, að ríkið geri þetta, því að hann álítur, að það sé bezt. Fiskifélagið hefur hins vegar sagt, að það hafi auglýst eftir bátum, sem óskuðu viðlegu hér við Faxaflóa, en enginn hafi gefið sig fram. Og það frekar staðfestir hitt, að á þessari vertíð hafi ekki verið vöntun á verbúðum við Faxaflóa. Þó vil ég ekki skoða þetta sem fullkomna staðfestingu á, að svona sé.
Ég vil umbætur í þessum málum. Og ég veit, að sumir eru komnir langt í umbótum í þessum efnum í sínum hafnarframkvæmdum, eins og í Vestmannaeyjum, þar sem svo langt er komið, að hæstv. samgmrh. hefur samþ., að byggja mætti verbúðir þar fyrir eina millj. kr. samkv. hafnarl. En ég efa mjög, að nokkuð hefði verið búið að gera í þessum málum þar, ef ríkisstj. hefði átt að hafa frumkvæðið að því að ráðast í að byggja á einum stað, eins og í Vestmannaeyjum, a.m.k. ætla ég, að ekki væru þar verbúðir fyrir eina millj. kr. Ef ríkisstj. ætti að koma upp slíkum verbúðum í verstöðvum úti um land, meira og minna, þá verður slíkt ekki gert á stuttum tíma og miklu minna en ef menn á hverjum stað fyrir sig eiga að hafa sjálfir með þetta að gera.
Hv. 6. landsk. þm. sagði, að það mundi draga nokkuð úr framkvæmdum í þessum efnum, að til eru gamlar verbúðir á sumum stöðum. Ég get ekki séð, að slíkt geti komið til greina, nema því aðeins, að þessar verbúðir séu í eigu hafnarsjóðanna sjálfra. Ég efast um, að gamlar verbúðir séu nokkurs staðar í eigu hafnarsjóðanna, heldur held ég, að þær séu mest í eigu einstaklinga, en slíkt á alls ekki að geta torveldað það, að hafnaryfirvöldin á hverjum stað geti komið sér upp nýtízku verbúðum, nema síður sé, svo að ég held, að ekki sé ástæða til þess að samþykkja þetta frv. eða brtt. við það með tilliti til þessa atriðis. Ég tel það mjög óheppilegt fyrir málið sjálft, þ.e. uppfyllingu þeirrar þarfar, sem er fyrir verbúðir í verstöðvum kringum landið, að taka úr hafnarl. þann þátt, sem þar er um byggingu verbúða og framlög til þeirra, og gera um það sérstök l. á þann hátt, sem hér er stefnt að í þessu frv. Ég segi þetta ekki af því, að með núverandi fyrirkomulagi telji ég framkvæmd á þessu ódýrari fyrir ríkissjóð. En það kom til af því, að þörfin fyrir að byggja verbúðir, þar sem komin væru hafnarskilyrði, var mönnum ljós, að ákvæði var sett inn í hafnarl. um, að veita skyldi fé og ábyrgð af hálfu þess opinbera til þessara framkvæmda, eins og til annarra hafnarframkvæmda, þannig að bætt væri aðstaða þessara manna, sem eiga að búa í verbúðunum. Þetta var þannig tekið inn í l. af beinni þörf og látinn sami styrkur og ábyrgð til þessara mannvirkja eins og til annarra hafnarmannvirkja. En ef þetta atriði væri tekið þannig út úr, eins og lagt er til í þessu frv., þannig að um þetta atriði ætti ríkisvaldið að hafa frumkvæði, þá gæti það orðið til þess, að hafnarl. yrði breytt og það látið vera alveg á valdi ríkisvaldsins, hvar í kringum landið verbúðum væri komið upp með tilstyrk þess opinbera. En það teldi ég spor stigið aftur á bak.
Ég vildi því mjög mælast til þess, að hv. minni hl. sjútvn. tæki sína brtt. til baka og fylgdi hinni rökst. dagskrá.