28.01.1947
Efri deild: 59. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (3891)

143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins

Flm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Þessu frv. mínu fylgir nokkuð ýtarleg grg., og ætti því í raun og veru ekki að vera þörf að fylgja því úr hlaði með langri ræðu. En þar sem í frv. eru nokkur nýmæli, sem ekki er víst, að allir geri sér fulla grein fyrir án nokkurra skýringa, vil ég fara nokkrum orðum um efni þess.

Frv. er í raun og veru í tveimur meginköflum að efni til, og er fyrri kaflinn um innflutning kvikmynda. Nú er þessu hagað svo, að meginhlutinn af innflutningi kvikmyndanna er í höndum stærstu kvikmyndahúsanna hér á landi og þá hér í Reykjavík. Þessi kvikmyndahús leigja síðan aftur út þessar myndir til kvikmyndahúsa annars staðar á landinu, og á hverjum stað taka þau fyrir notkun kvikmyndanna allháa leigu, og ég hygg, að það sé nokkuð mikið fé, sem kvikmyndahús, sem bezta aðstöðu hafa til kvikmyndareksturs, moka inn á því einu að leigja myndir í hringferð kringum landið og taka leigu fyrir á hverjum stað. Það mætti segja mér, að oft hefðu þau upp með þessum leigumáta þá leigu, sem þau í raun og veru þurfa að greiða fyrir myndirnar.

Það liggur í hlutarins eðli, að það er í raun og veru á valdi þeirra kvikmyndahúsa, sem hafa nú innflutning kvikmynda með höndum, hvers konar kvikmyndir eru sýndar í íslenzkum kvikmyndahúsum. Það er ekkert undarlegt, þó að eigendur kvikmyndahúsanna velji þær fyrst og fremst út frá því sjónarmiði, hve miklum hagnaði þær geta skilað, því að í raun og veru er það sá eini tilgangur með rekstri kvikmyndahúsa nú í landinu, að þau séu fyrst og fremst gróðafyrirtæki.

Hér er lagt til, að ríkið eitt skuli hafa með höndum innflutning kvikmynda og rekstur kvikmyndahúsa og verði stofnun sett á fót, sem heitir Kvikmyndastofnun ríkisins, til þess að annast þetta tvíþætta hlutverk. Ég tel það fullvíst, að með þeirri breyt., að ríkið eitt sjái um innflutning kvikmynda, sé hægt að ráða því, að þær kvikmyndir, sem sýndar yrðu hér á landi, yrðu annars eðlis en þær, sem nú verða fyrir valinu. Ég hygg, að það ætti að vera hægt að framkvæma þetta á þann veg, að kvikmyndir hefðu miklu meira menningarlegt gildi en nú er, einkum ef sá aðilinn, sem hefði þetta vald með höndum, væri á ábyrgð menntmrh. í landinu. Það er því lagt til í þessu frv., að innflutningi kvikmyndanna verði hagað á þennan hátt, hann verði tekinn úr höndum hinna ýmsu kvikmyndahúsa og látinn heyra undir menntmrh. með það meðal annars fyrir sugum að tryggja, að þær myndir, sem sýndar eru, hafi menningarlegt gildi og séu þjóðinni til gagns og gleði um leið, en ekki siðspillandi og menningarsnauðar. Auðvitað er það ætlun mín, að kvikmyndir verði eftir sem áður skemmtitæki, en ekki einungis menningartæki, og ég tel, að þótt tekið sé fullt tillit til menningarlegs gildis kvikmyndanna, þá sé fullkomlega hægt að fullnægja þessu sjónarmiði. Nú hefur það oft viljað vera svo, að kvikmyndir hafa verið valdar meira með það fyrir augum, að hægt væri að fá sem allra mesta peninga fyrir þær, heldur en að þær væru góð skemmtun fyrir óspilltan huga almennings. Þær hafa verið langt fyrir neðan það oft og tíðum. Ég ætlast til, að kvikmyndir verði fyrst og fremst fræðslutæki og það betra fræðslutæki en þær hafa verið til þessa, en fyrst og fremst óbrigðulla menningartæki en þær hafa verið, hjá okkur að minnsta kosti. Og menningartæki eiga kvikmyndir að geta verið á borðvið góðar bækur eða jafnvel þeim fremri.

Þá kem ég að hinum meginþætti frv. Fyrir honum er gerð nokkur grein í 4. gr. frv., en þar segir: „Kvikmyndastofnun ríkisins skal keppa að því að gera kvikmyndir að sem almennustu og þjóðlegustu menningartæki, hliðstæðu útvarpi og skólum. Í þessu skyni skal kvikmyndastofnunin m.a.:

1. reka kvikmyndahús sem víðast um landið, en halda uppi ferðasýningum kvikmynda, þar sem ekki eru skilyrði fyrir rekstri fastra kvikmyndahúsa;

2. sjá skólum landsins fyrir fræðslukvikmyndum og aðstoða þá við sýningar slíkra kvikmynda;

3. vanda sem bezt val þeirra erlendra kvikmynda, sem fluttar eru inn í landið til sýningar, með tilliti til þess að bægja burtu siðspillandi, óþjóðhollum og menningarsnauðum kvikmyndum;

4. gera íslenzka texta við erlendar kvikmyndir, eftir því sem föng verða á;

5. efla innlenda kvikmyndagerð og gera íslenzkar kvikmyndir.

Af rekstrarhagnaði kvikmyndastofnunar ríkisins er heimilt að styrkja leiklist, hljómlist og aðrar skyldar listgreinir.“

Í næstu gr. frv. er svo rætt um fyrirkomulag á stjórn og rekstri kvikmyndastofnunarinnar, og skal ég geta þess, að þar er gert ráð fyrir, að svipað fyrirkomulag verði þar og stjórn útvarpsins er fyrir komið, enda er ætlazt til, að þessi menningarlega stofnun, sem hér er um að ræða, verði mjög að starfi til í sama anda og útvarpsrekstur ríkisins.

Þá er að síðustu ákvæði um það í þessu frv., að kvikmyndastofnun ríkisins skuli ein hafa rétt til að reka kvikmyndahús á Íslandi, eftir að þessi l. ganga í gildi, og hafi rétt til þess að taka þau kvikmyndahús, sem nú eru í landinu, eignarnámi. Nú er það kunnugt, að nokkur kvikmyndahús eru í landinu, sem ekki eru í einstaklingsrekstri og eru í opinberum eða hálfopinberum rekstri, eins og t.d. Tjarnarbíó, sem ríkið hefur kostað, svo og kvikmyndahús í Hafnarfirði og á Akranesi, sem bærinn rekur. Þá er gert ráð fyrir því í þessu frv., að slík hús megi áfram verða rekin með sama formi með samningi við stjórnendur kvikmyndastofnunar ríkisins og þau ekki tekin eignarnámi, fyrr en þá að öll kvikmyndahús, sem rekin eru af einstaklingum, hafa áður verið tekin undir stjórn kvikmyndastofnunar ríkisins.

Þessu næst vil ég þá, þar sem ég hef nú gert nokkra grein fyrir meginefni frv., fara nokkrum orðum um þær helztu breyt., sem af því mundu leiða, ef frv. yrði að l.

Nú eru kvikmyndahúsin lítið útbreidd nema í aðalkaupstöðum landsins. Það eru óvíða kvikmyndahús í kauptúnum og þorpum, og þar sem þau eru, þá búa þau við mjög þröngan kost. Sýningar fara mjög víða fram í lélegum pakkhúsum, og gefur að skilja, að það umhverfi, sem kvikmyndahúsgestum er þar boðið, er mjög óaðlaðandi og menningarsnautt. En í sveitum landsins eru þess vart dæmi, að kvikmyndahús séu rekin, nema þar hafi þorpsmyndun átt sér stað. Og ég tel mjög miður farið, að ekki skuli hafa verið hægt að gera allan landslýð aðnjótandi kvikmyndasýninga, einkum ef hægt væri að sjá um, að kvikmyndir, sem sýndar væru, væru ekki aðeins skemmtandi og fræðandi, heldur líka göfgandi og mannbætandi. Ég tel það alveg auðsætt mál, að með því fyrirkomulagi, sem í þessu frv. er farið fram á, væri slíku marki hægt að ná, ekki sízt ef hægt væri að koma á samfelldu kvikmyndahúskerfi, ekki aðeins í kaupstöðum og kauptúnum, heldur líka í sveitum landsins, a.m.k. þar sem samgönguskilyrði eru sæmileg. Þó veit ég, að í allra strjálbýlustu sveitum og þar sem samgöngumálin eru í mestum ólestri yrði föstum kvikmyndahúsrekstri vart við komið, og hef ég viðvíkjandi þeim sveitum gert ráð fyrir, að kvikmyndastofnun ríkisins héldi uppi ferðasýningum kvikmynda, og mætti slíkt þá vera hliðstætt við það fyrirkomulag ríkisins að hafa farskóla í hinum strjálbýlustu og fámennustu sveitum. Þarna væri þá varið nokkrum hluta af þeim mikla gróða, sem kvikmyndahúsin raka saman á stöðum eins og Reykjavík, til þess að auka menningu úti um byggðir landsins, þar sem aðstaðan er miklu erfiðari og ekki er hægt að halda uppi kvikmyndasýningum, nema með kostnaði annars staðar frá.

Því hefur verið haldið fram, og sjálfsagt ekki að ástæðulausu, að ein aðalástæðan til þess, að fólkið flykkist svo mjög til kaupstaðanna, sé hinn mikli möguleiki til skemmtana, og mætti þá einkum ætla, að það væri unga fólkið, en úr þessari hættu mætti ef til vill bæta með þessu móti.

Þá er hér gert ráð fyrir því, að kvikmyndastofnunin sjái skólum landsins fyrir fræðslukvikmyndum. Skólarnir hafa nú á síðustu árum eignazt fræðslukvikmyndir og hafa líka átt þess nokkurn kost að fá erlendar fræðslukvikmyndir, sem fræðslumálastjóri hefur útvegað, aðallega frá Svíþjóð. En aðstæður til þess að nota þessar kvikmyndir eru mjög óvíða fyrir hendi. Það er aðallega í byrjun þessa árs, að heitið geti, að möguleikar hafi verið til þess að sýna þessar fræðslukvikmyndir. Notkun fræðslukvikmynda er á byrjunarstigi hér hjá okkur, en kunnugt er frá öðrum löndum, að kvikmyndir eru að taka alláhrifaríkan þátt í kennslu erlendis.

Það munu allir geta verið sammála um það, að fyrst og fremst beri að fræða Íslendinga um sitt eigið land, gróður og dýralíf. En þetta er ekki hægt, fyrr en við höfum fengið einhvern aðila til þess að búa til íslenzkar fræðslukvikmyndir. Það er hætt við, að erfitt yrði að fá á fjárl. styrk til þessa, ef ekki væri hægt að fá þær fyrir það fé, sem aflast við sýningu kvikmynda, en það væri einmitt mjög æskilegt, að einhverju af þeim ágóða yrði einmitt varið til töku íslenzkra fræðslukvikmynda handa skólum landsins.

Þá er eitt af þeim verkefnum, sem þessari kvikmyndastofnun er ætlað að hafa á hendi, val þeirra kvikmynda, sem fluttar eru inn í landið til sýninga.

Ég held, að það sé ekki ofmælt, að flestir foreldrar í kaupstöðum og þorpum, þar sem kvikmyndahús eru, eigi nú í erfiðu stríði með að halda börnum sínum frá villtri kvikmyndahúsafíkn, eins og foreldrar eiga í baráttu við það að verja börn sín frá drykkjuskap og tóbaksreykingum. Og ég viðurkenni, að eins og kvikmyndahúsreksturinn er nú, er full ástæða fyrir uppalendur barna að reyna að verja þau fyrir mörgu því, sem sýnt er í kvikmyndahúsunum nú. En væru kvikmyndahúsin orðin að menningarstofnun, þá væri ekkert nema gott um það að segja, að börnin væru sólgin í að fara þangað til þess að afla sér fræðslu og menntunar.

Í 4. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að kvikmyndastofnuninni verði lagt það á herðar að gera íslenzkan texta við erlendar kvikmyndir. Ég hugsa mér það helzt þannig, að gerður yrði íslenzkur texti við beztu erlendar kvikmyndir, áður en þær væru sendar í hringferð sína kringum landið. Íslenzkir kvikmyndahúsagestir hafa ekki heyrt íslenzkt orð í kvikmyndum, þar eð tal allt er þar á erlendum málum, og vitanlega verður því ekki breytt með þessu fyrirkomulagi, en það má hafa íslenzka lesmálstexta, og er það mjög nauðsynlegt, því að flestir eru ekki það færir í erlendum málum, að þeir tapi ekki meira og minna, ef svo er ekki. Með íslenzkum texta má fá mikil aukin not kvikmynda, og er það enn meiri nauðsyn, ef kvikmyndirnar verða gerðar að alþjóðareign og farið að sýna þær út um sveitir, þar sem enn minna er um málakunnáttu.

Þá er og gert ráð fyrir, að kvikmyndastofnunin láti taka innlendar kvikmyndir, fréttamyndir, sögulegar kvikmyndir, landfræðilegar kvikmyndir og myndir af íslenzkum öndvegisskáldverkum, svo sem áður er getið.

Nokkur íslenzk skáldverk hafa verið valin til kvikmyndagerðar erlendis. Ég minnist t.d. Fjalla-Eyvindar, sem leikinn var af sænskum og dönskum kvikmyndaleikurum, en sviðið var Lappland. Þegar horft er á þá mynd, fylgir sænsku og dönsku máli — Svíarnir töluðu sænsku og Danir dönsku — útlent fólk í annarlegu landslagi, og svo er einnig í kvikmyndinni af Sögu Borgarættarinnar. Ef íslenzk öndvegisskáldverk eru valin til kvikmyndatöku, tel ég engri stofnun það skyldara en þeirri stofnun, sem hér um ræðir, og það er einnig skylda íslenzkra leikara að stuðla að þessari starfsemi. Þá mundum við eignast listrænar kvikmyndir á okkar eigin máli og með innlendri hljómlist.

Þá er líka hugsanlegt að semja við erlend kvikmyndatökufélög um töku á myndum af skáldverkum okkar í íslenzku landslagi, en suðvitað þá á erlendu máli, og gæti það verið eigi lítil landkynning. Það er talað um, hve erfitt það sé fyrir íslenzka rithöfunda, hve fámenn þjóðin sé, en með þessu móti er hægt að koma verkum þeirra út um víða veröld.

Ég skal játa það, að kvikmyndirnar hafa ekki að öllu leyti fært okkur ómenningu. Á einu sviði hafa þær fært okkur menningu, en það er á sviði tónlistar. Frægustu söngvarar og hljómlist heyrast hvergi hér nema í kvikmyndahúsum. Því er svo kveðið á í frv., að kvikmyndastofnuninni sé heimilt að styrkja leiklist, hljómlist og aðrar skyldar listgreinar, og mætti jafnvel standa skylt.

Þegar málum eins og þessu hefur verið hreyft hér á hv. Alþingi, hefur venjulega verið miðað að því að taka kvikmyndahúsin úr eigu einstaklinga og fá þau í hendur bæjarfélaga. Og vissulega er það betra en ekki, en ýmisleg menningarleg not verða ekki með bæjarrekstri, sem fást með þeirri aðferð, sem hér er lagt til. Með því móti er skylt að verja því fé, sem fæst af kvikmyndahúsum, til ýmiss konar menningarstarfsemi í þágu alþjóðar. Þegar einstaklingar eiga kvikmyndahúsin, ráða þeir því alveg sjálfir, en þegar þau eru í eigu sveitar- eða bæjarfélaga, er ágóðanum varið til ýmissa gagnlegra hluta á takmörkuðu svæði, en hefur ekki það almenna gildi, sem hér er ráð fyrir gert. Ég sá það nýlega, að Bretar væru nú að þjóðnýta kvikmyndahús hjá sér og hyggjast gera það í tveim áföngum. Nú fyrst annan helming þeirra og síðar hinn helminginn.

Ég mun nú ekki hafa fleiri orð að sinni, en ég heiti á þm. að líta á það menningargildi, sem þetta mál hefur, og kynna sér það rækilega, því að það er aðalatriði málsins.

Ég legg svo til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn.