29.01.1947
Efri deild: 60. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (3893)
143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Þetta frv. ákveður, að kvikmyndarekstur skuli allur tekinn til starfrækslu af ríkissjóði og einkaeigendum sé bannað að reka kvikmyndastarfsemi. Þær ástæður, sem færðar eru fram fyrir þessu, eru í fyrsta lagi, að þetta er talin mjög mikil tekjulind, sem eigi að liggja hjá ríkissjóði einum, en ekki hjá þegnum landsins. Nú er það vitanlegt, að þessu má að sjálfsögðu einnig ná á annan hátt og hefur verið náð á annan hátt; með því að taka eins stóran hluta af þessum tekjum frá einstaklingum og ríkinu þykir eðlilegt á hverjum tíma, svo að ég tel ekki þessa ástæðu út af fyrir sig veigamikla. Það er á valdi Alþ. á hverjum tíma, hversu mikinn hluta það kynni að taka af þeim gróða. Næsta ástæðan, sem færð er fyrir þessu, er sú, að það ætti að vera á valdi ríkisins, hvaða myndir séu sýndar, hvort það séu myndir til menningarauka eða gagnstætt. Ég hygg, að þessu sé einnig hægt að ná eftir öðrum leiðum, svo sem gert hefur verið í öðrum löndum, t.d. Bretlandi, með því að setja allar myndir undir strangt eftirlit ríkisins, þannig að ekki sé leyft að sýna annað en það, sem talið er hafa menningargildi fyrir þjóðina, svo að ég tel ekki heldur, að þessi ástæða sé veigamikil. Ég vil svo í sambandi við fjáröflunina leyfa mér að minna á það, að ef 3. gr. er samþ. eins og hún er í frv., þá tel ég nokkuð mikið gengið á hagsmuni sveitarsjóðanna, a.m.k. þar sem nú er rekinn kvikmyndarekstur. Sveitarsjóðirnir hafa haft drjúgar tekjur af þessu, og nú er ætlazt til þess, að þessir tekjustofnar séu felldir burt, með því að ekki má leggja skatt á reksturinn til sveitarfélaganna. Ég vil einnig í sambandi við þetta benda á það, að stefnan hefur verið sú mörg undanfarin ár að ganga jafnt og þétt á tekjustofna bæjanna og sveitarfélaganna, sumpart með hækkandi tekjuskatti, viðaukaskatti og öðrum sköttum, svoleiðis að sveitarfélög og sýslufélög stynja þegar undir þessum ákvæðum, og er mér ljóst, að samband íslenzkra sveitarfélaga mun hafa mótmælt nokkuð stranglega þessum aðförum og krafizt þess, að snúið verði við á þessari leið.
Það má hins vegar segja, að það breyti ekki miklu, þótt skattar séu ekki teknir til ríkisins, þar sem ætlazt er til þess, að ríkissjóður fái allan ágóðann, þótt það sé hins vegar bundið í þessu frv., að þeim ágóða skuli varið í alveg sérstöku augnamiði. Ef aftur á móti þess er gætt að fella þá niður tilsvarandi styrk frá ríkissjóði til menningarmála, þá má segja að allt komi í sama stað niður, en þessu verður ekki til svarað um það, sem lýtur að tekjumissi bæjar- og sveitarfélaga. Því hefur verið haldið fram af hv. flm., að hér væri um mjög mikið menningarmál að ræða, þar sem kvikmyndir væru, og skal ég síður en svo andmæla því. En ég vil í sambandi við þetta benda á það, að það kynni að verða skammt á milli þess að banna einstaklingum að starfrækja slík menningartæki eins og kvikmyndasýningar eru og hinu, að banna þeim bókaútgáfu. Bókaútgáfa er menningaratriði og sömuleiðis blaðaútgáfa, og hvort tveggja getur verið stórkostlegt áróðurstæki. En blaðamennska og bókaútgáfa er engan veginn líkt því annað eins áróðurstæki og kvikmyndir geta verið. Það getur verið, að það sé hollt að taka upp þá stefnu, að ríkið hafi með höndum starfrækslu áróðurstækja, svo sem bókaútgáfu, kvikmynda, útvarps o.fl., en ég efast um, að við séum enn þá komin á það stig, að þjóðin sé sammála um, að rétt sé að fara inn á þá braut. Vil ég í sambandi við þetta benda á það, að þótt reynt hafi verið hvað eftir annað að setja um útvarpið reglur, að það skuli ekki vera notað til áróðurs fyrir ákveðinn flokk, þá minnist ég þess, að svo að segja á hverju þingi síðan 1942 hafa komið fram umkvartanir um það, að þetta hlutleysi hafi verið brotið, og tel ég þá vafasamt, hvort það væri rétt leið, að ríkið tæki að reka aðra stofnun — áróðursstofnun — og gefa enn tilefni til þess að hafa um það deilur, hvort ekki verði einnig brotið hlutleysi þeirrar stofnunar. Ég vil benda á það atriði, að um útvarpið er svo þröngt í þessum efnum, að það má ekki senda þakkarskeyti gegnum útvarpið. Maður nokkur átti 60 eða 70 ára afmæli og vildi senda þakkarskeyti í útvarpinu, en fékk það ekki. Svona þröng er þessi stofnun, að hún leyfir ekki að þakka fyrir það, sem vel er gert.
Ég hygg að það sé mjög varhugavert að reyra þannig í dróma menningartæki þjóðarinnar, og eins og ég sagði, er þá skammt til þess, að einnig sé bannað að gefa út blöð nema af ríkisstj. og þó einkum, þegar hægt er að ná eftir öðrum leiðum svo að segja öllu fjármagni, sem hér er ætlað að ná, og ekki er hægt að neita því, að einnig er hægt að ná því eftir öðrum leiðum, hvort hér séu sýndar þær kvikmyndir, sem hafa menningargildi, og stöðva hinar, sem ekki þykja boðlegar. Ég skal ekki fara lengra út í þetta atriði.
En það var ekki eingöngu þetta, sem gerði það, að ég vildi hreyfa þessu máli við þessa umr., því að ég hygg, að það verði mjög rætt í menntmn., heldur var það grg. þessa frv., sem olli því. Ég held, að þetta sé í annað skipti, sem hv. 3. landsk. hefur hagað sér þannig á þinginu, að fullkomlega er vítavert. Hann leyfir sér að brjóta þinghelgina með því að láta fylgja þessu þskj. gersamlega óviðeigandi ummæli, og hann notar útvarpið til þess að útbásúna um allt land þau atriði, sem hann setur fram í grg. Það er óvirðing fyrir þessa stofnun, að hv. þm. skuli nota sér þann rétt, sem alþm. á til þess að semja grg., vitandi það, að hún verður lesin upp í útvarpið, og gæta ekki betur virðingar sinnar en hér, eiga það svo allt undir Helga Hjörvar, hvort hann stöðvi slík ummæli, vegna þess að þau séu ekki hæf til þess að lesa þau í útvarp. Gerð hv. þm. verður nákvæmlega sú sama, þó að Helgi Hjörvar gæti borgið virðingu hans. Hann segir, að kvikmyndareksturinn hafi verið notaður að féþúfu. Nú veit hv. þm. það, að kvikmyndahúsin eru rekin undir alveg sérstökum ákvæðum skattalaganna, eins og hver annar atvinnurekstur. Það er því algerlega ósæmilegt að leyfa sér að segja, að kvikmyndahúsin séu notuð fyrir féþúfu frekar en annar atvinnurekstur í landinu. Ef ekki er nóg tekið af þessum atvinnurekstri, þá ber ekki að saka þá menn, sem reka hann, heldur þá, sem hafa samið l., og ef ekki er fylgt skattal., þá ber að saka skattayfirvöldin.
Hv. þm. veitist hér m.a. mjög ósæmilega að manni, sem hefur starfað hér að bíórekstri í 35 ár, og segir, að hann hafi notað þessa atvinnugrein sem féþúfu og síðan flutt úr landi til kóngsins Kaupmannahafnar og njóti þar nú gróðans, sem hann hafi fengið hér óleyfilega af þessum atvinnurekstri. Ég tel þessa málfærslu óviðeigandi hér á Alþ. Ég veit ekki betur að þessi maður hafi sama rétt til þess að flytja með sinn gróða, hvort heldur er til Danmerkur eða annarra landa, og eyða honum þar, eins og t.d. einn ágætur embættismaður, fyrrv. vitamálastjóri, Þorvaldur Krabbe, og held ég, að enginn hafi álitið, að hann hafi gert rangt, þótt hann á sínum elliárum eyði gróða sínum annars staðar en á Íslandi, þótt hann hafi fengið allan sinn gróða frá íslenzka ríkinu. Ég vil leyfa mér að mótmæla mjög harðlega slíkum ádeilum á fjarverandi óviðkomandi menn. Ég vil einnig benda á það, að það var sannarlega enginn gróðavegur, þegar þessi maður byrjaði að efla menninguna í Reykjavíkurbæ með myndum, sem hann sýndi fyrir 30 árum, en hann endaði með því að byggja upp veglegasta samkomuhúsið, sem Reykjavík hefur enn átt, svo að ég sé ekki, að það réttlæti ummælin í grg. frv. og aðdróttanir í sambandi við, að maðurinn flyzt til Danmerkur. Þann tíma, sem hann dvaldist hér, var hann undir íslenzkum skattayfirvöldum eins og aðrir á hverjum tíma.
Á bls. 3 í grg. er komizt svo að orði, að kvikmyndagerð og kvikmyndarekstur hafi fallið í ræningjahendur. Hvers konar hugsunarháttur liggur hér á bak við? Þetta segir maður, sem gert hefur það að lífsstarfi sínu að ala upp börn og unglinga og tekur laun úr ríkissjóði í því skyni. Ég held, að það þyrfti að athuga, hvort ekki sé varhugavert að hafa slíka menn fyrir skólastjóra. Enn fremur segir hann í sömu málsgr., að kvikmyndirnar hafi í reyndinni verið notaðar í menningarfjandsamlegum tilgangi. Ég hefði gaman af að sjá hv. þm. standa við þessi orð sín, ef hann segði þau utan þinghelginnar hér. Ég held hann ætti að prenta þetta í blaði sínu og sjá, hvort slík ummæli yrðu þá ekki dæmd. Hann ætti að reyna það.
Þá segir hann í grg., að kvikmyndir hafi oft verið valdar með það fyrir augum, að þær höfðuðu til lægstu hvata fólks og væru umfram allt æsandi og tryllandi eins og áfengt vín. Hann ætti að sjá mynd, sem sýnd hefur verið að undanförnu í Tjarnarbíó, „Glötuð helgi“. Hefur hann séð hana? Ég held, að hann hefði átt að skrifa þennan pistil sinn, meðan hann horfði á þessa mynd. Eiga þessi ummæli hans við þessa mynd t.d.?
Hv. þm. sagði í framsöguræðu sinni, að eins og flestar kvikmyndir væru nú, væri jafnvel nauðsynlegt að halda börnum frá þeim eins og víni og tóbaki. Þarna er ekki lítið tekið upp í sig. Ég held það verði erfitt fyrir hann að finna þessum orðum sínum stað. Ég er honum að vísu sammála um það, að sumar myndir eru betur ósýndar en sýndar, en mikill meiri hluti kvikmynda gerir allt annað en spilla fólki, og kvikmyndirnar hafa leitt marga menningarstrauma inn í landið. Auk þess er það á valdi hins opinbera eða löggjafans, hvað sýnt er, og gæti ég verið með hv. þm. í því að setja strangari reglur um það, en einnig strangari reglur um það, hvað hér mætti segja og prenta í þskj., svo að það væri ekki til hreinnar smánar eins og ummæli hans sjálfs.
Ég vænti þess, að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, athugi það gaumgæfilega, ekki sízt ákvæði 3. gr., sem ég hef bent á — ef frv. þetta á að fara hér í gegn —, hvert stefni, ef tekjulindum bæjar- og sveitarfélaga er kippt þannig burt. Ég mun síðar ræða þetta mál nánar, þegar það er komið úr n.