02.05.1947
Efri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í C-deild Alþingistíðinda. (3901)

143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Hv. frsm. hefur nú gert grein fyrir afgreiðslu n., og hef ég aðeins það að segja, að ég skrifaði undir nál. með fyrirvara og sætti mig við þessa afgreiðslu, úr því sem komið var, þar eð svo áliðið var orðið þings, að litlar líkur eru til þess, að frv. geti náð fram að ganga. Því er málið afgr. til ríkisstj., til þess að hún geti undirbúið það og helzt lagt það fyrir næsta þing. Hins vegar held ég, að málið liggi það ljóst fyrir, að vel hefði mátt afgreiða það efnislega og segja um, hvort eigi að taka kvikmyndareksturinn úr höndum einstaklinga, sem eingöngu reka kvikmyndahúsin sem gróðafyrirtæki. Ef það væri gert, gætu komið til greina tvær leiðir, eins og hv. frsm. benti á, annars vegar bæjarekstur og hins vegar ríkisrekstur. Sá er munur á bæjarrekstri og rekstri einstaklinga, að það fé, sem græðist, lendir í sameiginlegum sjóði þess bæjarfélags, er um ræðir, ef bæjarrekstur er, í stað þess að renna í vasa einstaklinga, og kemur þá til með að verða

notað til menningarframkvæmda fyrir fólkið, en enn fremur til gatnagerðar, skolpræsagerðar o.s.frv. og þjónar þá ekki því menningarhlutverki sem vera ber. Að öðru leyti er bæjarrekstur í sama tilgangi og einstaklingsrekstur, að afla fjár. Í þriðja lagi er ekki með bæjarrekstri séð fyrir því, að landsmenn utan stærri kaupstaðanna verði aðnjótandi kvikmyndarekstrar sem menningartækis. Ríkisrekstur og einungis ríkisrekstur getur losað kvikmyndirnar undan því að vera gróðafyrirtæki og gert þær að menningartæki, sem komi að gagni bæði í dreifbýli og þéttbýli. Mér sýnist því, að ríkisrekstur hafi fyrst og fremst þessa yfirburði: Í fyrsta lagi kemur hann jafnt að gagni þeim, sem búa í kaupstöðum, og þeim, sem búa úti um land. Í öðru lagi er hægt að tryggja betur val mynda með því, að opinber stofnun, sem bæri ábyrgð fyrir menntmrh., hefði innflutning myndanna á hendi. Úr svo miklu er að velja, að fá má gerólíkar myndir út úr því, hvort sjónarmiðið er að græða eða útvega myndir, sem hafa menningargildi. Það er ekki líklegt, að valið yrði það sama, ef það væri gert af aðila, er bæri ábyrgð fyrir menntmrh., og ef það væri gert af einstaklingum með gróðasjónarmið eitt fyrir augum. Í þriðja lagi færi þá allt það fé, sem afgangs yrði af rekstrinum, til að umbæta myndirnar, t.d. að gera við þær íslenzkan texta og enn fremur til að koma íslenzkri kvikmyndagerð í menningarhorf, og það er ekki nær neinum en þeim, sem hefði allan reksturinn með höndum, að verja fé til íslenzkrar kvikmyndagerðar. Með öðru móti er ólíklegt, að íslenzk kvikmyndagerð komist yfir byrjunarerfiðleikana. Enn fremur eru tónlist og leiklist svo nátengdar kvikmyndarekstri, að eðlilegt er, að nokkrum hluta gróðans af kvikmyndunum verði varið til eflingar þessara listgreina, en það mundu hvorki bæjarfélög né einstaklingar telja sér skylt. Kvikmyndarekstur er annars svo auðveldur, að hann krefst ekki mikillar sérþekkingar, og er auðvelt fyrir ríkið að fá menn, sem áður hafa við hann starfað. Mér finnst raunar, að málið liggi svo ljóst fyrir, að óþarfi væri að fresta því til næsta þings. Réttast væri því að afgreiða það efnislega með samþykkt þess, en það mun nú ekki hægt héðan af, þar sem það hefur svo lengi legið í fórum þingsins.

Sumir menn hafa talað um það, að í mikið væri ráðizt og erfitt í framkvæmd að þjóðnýta kvikmyndahúsin. En ég held nú, að það verði því erfiðara sem lengur dregst. Nú eru hér í bænum í smíðum hvorki meira né minna en ? kvikmyndahús eða hallir, því að eitt þeirra a.m.k. mun verða stærsta samkomuhús á landinu. Ég tók eftir því um daginn, að Morgunblaðið var dálítið hneykslað yfir þessum kvikmyndahúsagróðri. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Það eru hvorki meira né minna en sjö kvikmyndahús í uppsiglingu, eftir því sem fróður maður sagði mér í gær. Það er hið glæsilega Austurbæjarbíó, sem verður stærsti samkomusalur landsins og tekið verður í notkun í vor, þá er það Laugavegsbíó, Melabíó, Laugarness- eða Kleppsholtsbíó, Slysavarnarfélagsbíó og hamingjan má vita hvaða bíó.“ Og enn fremur segir blaðið: „Það er vitanlega ekkert við því að segja, að menn byggi bíó eins og annað, og vil ég ekki gera aðra athugasemd við þessar fyrirhuguðu byggingar en þá, að ætli það væri ekki nær að eyða byggingarefni og mannafla í að byggja þak yfir höfuðin á þeim, sem búa í bröggum og óhæfum kjallaraholum?“ Þetta er umsögn Morgunblaðsins um málið. Ég hygg, að ekki verði auðveldara eftir ár að taka kvikmyndahúsin eignarnámi, eftir að ? eru komin í viðbót, og það er annað að taka þau hálfbúin en þegar þau eru komin í rekstur. Þótt ekki væri nema þetta, er það næg ástæða til að afgreiða málið efnislega nú þegar, a.m.k. til að þjóðnýta þau kvikmyndahús, er nú eru í uppsiglingu.

Ég minntist á það fyrir nokkru í Sþ., er rætt var um vandamál í sambandi við rekstur þjóðleikhússins, að vandinn væri bezt leystur með því að láta leiklistarstarfsemina þar byggjast á kvikmyndahúsagróðanum, og held ég, að erfitt muni á annan hátt að sjá sómasamlega um þjóðleikhúsið. Mér virðist því augljóst, að ríkisrekstur á kvikmyndum tryggi bezt not almennings af rekstrinum, geri mögulegt að láta alla þjóðina njóta kvikmyndanna, geti innt af hendi mikilvægt hlutverk í þjónustu íslenzkrar kvikmyndagerðar og séð borgið listgreinum, sem ríkið kostar nú, og síðast, en ekki sízt, er eingöngu með ríkisrekstri hægt að hafa áhrif á val kvikmyndanna. T.d. er ríkisrekstur alveg nauðsynlegur, ef taka á kvikmyndirnar í þjónustu skólanna, en hingað til hafa kvikmyndir í skólum aðeins verið smátilraunir og til skemmtunar. En ef taka á kvikmyndirnar sem kennslutæki, sem vissulega getur verið mjög hagkvæmt, þá verður það ekki gert nema með allmiklum tilkostnaði af hálfu ríkisins, en þyrfti ekki að kosta skólana, ef ríkið ræki kvikmyndahúsin.

Nú liggur aðeins fyrir að vísa málinu til hæstv. ríkisstj. til heppilegrar lausnar, og geri ég ráð fyrir, að hæstv. menntmrh. láti athuga bæði fjárhagslega og menningarlega hlið málsins, og vona ég, að niðurstaða hans verði sú, að hér þurfi bragarbót á, og óska ég þess, að fyrir næsta þing liggi fyrir álit um það, hvaða rekstur sé heppilegastur. Mér þætti vænt um, ef hæstv. menntmrh. vildi segja álit sitt á málinu við þessa umr. Ég sem sagt mun greiða atkv. með rökst. dagskránni í trausti þess, að ríkisstj. athugi málið og að við nánari athugun verði ljóst, að þjóðinni sé tryggt meira gagn af kvikmyndunum með ríkisrekstri en einkarekstri. Ég sé svo ekki ástæðu til að segja meira um þetta, þar sem ekki er hér um efnislega afgreiðslu að ræða.