02.05.1947
Efri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í C-deild Alþingistíðinda. (3912)

143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Ég álít, ef hin skrifl. brtt. hv. 6. landsk. verður samþ., að þá sé það til baga nál., sem fyrir liggur, og einnig brýtur hún í bága við orðalag dagskrártill., sem fyrir liggur. Í upphafi dagskrártill. segir:

N. hefur athugað frv. þetta og rætt það á nokkrum fundum. Munu allir nm. sammála um það, að vinna beri að því, að innflutningi kvikmynda og rekstri kvikmyndahúsa verði hagað á þann hátt, að af því verði sem mest menningarleg not fyrir þjóðina, en sá er tilgangur flm. með frv.

Hins vegar munu þó skoðanir nm. nokkuð skiptar um það, hvaða leiðir beri að velja til að ná því marki.“

Hér er því ekki neinu slegið föstu, og ef hv. þm. vill, að þetta mál fái nú þegar framgöngu, þá ætti hann að bera fram nýtt frv. Brtt. hv. 6. landsk. stangast því á við rökst. dagskrána, og er ekki hægt að samþykkja brtt. við hana í þessu formi.