02.05.1947
Efri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í C-deild Alþingistíðinda. (3913)
143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins
Sigurjón Á. Ólafsson:
Herra forseti. — Út af brtt. þeirri, sem fram er komin við rökst. dagskrána, vil ég segja þetta. Ég get tekið undir þau rök, sem hv. frsm. hefur flutt hér í málinu, og ég tek líka fram, að þetta er stórt mál, og ég hef þá skoðun, að kvikmyndahús skuli rekin af bæjar- og sveitarfélögum, og mörg bæjarfélög hafa líka tekið upp þetta fyrirkomulag, og ég tek bæjarrekstur fram yfir ríkisrekstur á þessu sviði, og mun ég því greiða atkv. gegn brtt. hv. 6. landsk. þm.