02.05.1947
Efri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í C-deild Alþingistíðinda. (3917)
143. mál, kvikmyndastofnun ríkisins
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. — Ég get ekki fallizt á röksemdafærslu hv. frsm. n. um það, að brtt. mín feli í sér nokkra mótsögn varðandi upphaf dagskrártill., eins og hún er nú orðuð. Þótt því sé slegið föstu, að koma skuli á fót kvikmyndastofnun ríkisins, þá er eins þörf fyrir það, að athugað verði, á hvern hátt menningarleg not þjóðarheildarinnar af kvikmyndasýningum verði sem bezt tryggð, eins og talað er um í upphafi till. Það er ýmislegt, sem getur komið til greina. Það felst engin mótsögn í því að ákveða að koma upp stofnun og fela ríkisstj. að láta fara fram athugun á því, hvernig þeirri stofnun skuli haga, svo að tilganginum yrði náð, og undirbúa jafnframt fjárhagslega að koma þessari stofnun á fót. Það hefur verið minnzt á, ég held af hv. l. landsk., að hann vilji ekki ákveða þetta, því að bæjarfélög mundu vilja hafa kvikmyndareksturinn með höndum. Ég álít, að síður en svo sé fyrir það girt, að bæjarfélög geti haft þennan rekstur með höndum, þótt ákveðið sé að koma kvikmyndastofnun ríkisins á fót. Það væri ekki óeðlilegt, að slík stofnun annaðist innflutning kvikmynda og allt val mynda, sem fluttar væru til landsins, og hefði einnig með höndum framleiðslu á íslenzkum kvikmyndum, en aðrir ekki. Með því móti væri tryggt eftirlit ríkisins með allri framleiðslu og innflutningi kvikmynda. En þrátt fyrir þessa tilhögun væri alls ekki óeðlilegt, að bæjarfélög fengju kvikmyndir hjá kvikmyndastofnun ríkisins til að sýna á þeim svæðum, sem bæjarfélögin ná yfir. Og ýmislegt fleira gæti komið til greina í þessu sambandi. Það er því fullkomin ástæða til að fela hæstv. ríkisstj. að láta fara fram athugun á þessu máli í heild og undirbúa löggjöf um það. Aftur á móti finnst mér brtt. hv. 2. þm. Árn. aðeins vera útþynning á dagskrártill. og minni brtt., ef hún yrði samþ. Það ber nokkuð að sama brunni með hana og það, sem virðist vaka fyrir ýmsum, er um málið hafa fjallað, að ekki sé hugsað fyrir miklum framkvæmdum í þessu efni.