02.12.1946
Efri deild: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í C-deild Alþingistíðinda. (3927)
91. mál, fiskiðjuver á Ísafirði
Gísli Jónsson:
Ég vil einnig leiðrétta þennan misskilning hjá hv. þm. Hver vegarspotti, sem lagður er í landinu, hefur komið að gagni og komið að gagni á þennan hátt, annars vegar til að stytta ófæru vegina hjá fólkinu í þeim byggðarlögum, sem við þá eiga að búa, og það, sem er enn þýðingarmeira, að halda uppi voninni hjá þessu fólki um að einhvern tíma fái það veginn. Ef enginn vegur væri lagður, mundi það þýða, að það væri úti um þessa von. Það er þess vegna misskilningur hjá hv. 10. landsk., að þessir vegir komi ekki að gagni. En það þarf að leggja miklu meiri áherzlu á þessi mál til þess að halda uppi voninni hjá þessu fólki um það, að einhvern tíma fái það sinn rétt, hjá Alþ. Mér þótti rétt að gera þessa aths. við þennan kafla ræðunnar, sem ekkert kom þessu máli við.