12.04.1947
Efri deild: 115. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

219. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Fjárlfrv. hefur verið blandað inn í þetta mál, sem eðlilegt er, og þykir mér því rétt að gera grein fyrir afstöðu minni til málsins.

Hæstv. fjmrh. hefur lýst yfir því hér, að tekjum af þessu tollafrv. skuli alveg sérstaklega varið til niðurgreiðslu á dýrtíðinni, enda er í grg. tekið fram, að þetta skuli fara til þess, þó að það sé ekki tekið fram í sjálfu frv. Hins vegar hefur frsm. n., hv. 7. landsk. (GÍG), lýst yfir því, að þetta fé skuli notað til þess að mæta halla á fjárl. þessa árs. Að vísu má segja, að litlu skipti, hvort er, en þó þykir mér það skipta máli. Ég vildi, að hæstv. fjmrh. vildi endurtaka, að þetta eigi að nota til þess að greiða dýrtíðina niður. Mér þætti vænt um þetta. Í fyrsta lagi af því, að ég legg áherzlu á, að sérstöku fé sé varið til þess að greiða niður dýrtíðina, því að frá mínu sjónarmiði er aðeins með því, að samkomulag fáist um það, hægt að fá þjóðina til þess að taka upp baráttu gegn dýrtíðinni. Hins vegar hefur þjóðinni ekki skilizt, að svo væri. Í öðru lagi, að sé þetta fé eingöngu tekið af þjóðinni til þess að greiða niður dýrtíðina í landinu og tryggja atvinnu og lífskjör þjóðarinnar, ber líka að verja hverri krónu til þess, þó að það fari fram úr þessum 35 millj. kr., sem áætlaðar eru á frv. En ég álít, að þetta frv. gefi meira en áætlað er, og álít, að ekki eigi að nota það til nokkurs annars, en bara til þess að borga niður með því dýrtíðina í landinu. Ef hins vegar þetta er ætlað til þess að mæta halla á fjárl., eins og frsm. gat um í ræðu sinni. þá vildi ég spyrja, hvernig stj. ætli að ná því, sem á vantar, því að þessi frv., sem hér liggja fyrir, eru ekki líkleg til þess að vega upp á móti þeim greiðsluhalla, sem virðist ætla að verða á fjárlögum.

Þá vildi ég gjarna heyra, hvort hæstv. ráðh. hugsar sér að taka þessi gjöld inn á 2. gr. og hækka viðkomandi liði frá því, sem þeir eru á þskj. 571, eða, ef það á ekki að koma inn á ríkissjóðinn, hvort það á að fella það úr 9. gr., en það veltur á leiðinni, sem stj. velur, hvort hún ætlar að halda þessu sem sérstökum sjóði til dýrtíðarráðstafana.

Hæstv. ráðh. taldi, að orsakirnar til dýrtíðarinnar hefðu aðallega verið tvær, sú, að greidd var vísitöluuppbót á öll laun, og sambandið milli landbúnaðarvara og vöruverðs. Ég held, að líka séu aðrar tvær orsakir, sem ekki megi gleyma. Önnur er gjaldeyrisflóðið, sem flæddi frá setuliðinu, og var það viðurkennt, að dýrtíðarl. sem sett höfðu verið, varð að afnema vegna þeirra peninga, sem streymdu inn. Ég held ekki, að það hefði verið rétt að hindra landsmenn í því að njóta þeirra kjara, sem þá buðust, en hins vegar verður þjóðin að taka erfiðleikunum nú, enda stendur hún betur að vígi eftir þetta.

Í öðru lagi vildi ég benda hv. 4. landsk. á það, að aðalástæðan til þess. að dýrtíðin hélt áfram að vaxa, var brigðmælgi Sósfl. um stjórnarsamstarfið. Og án þess að ég vilji vera að telja upp, hvenær hann og hans flokkur hafa ekki uppfyllt sín loforð, þá vil ég minna á, að þetta loforð hefur ekki verið uppfyllt, en það var loforð um að stöðva kaupgjaldskröfurnar, til þess að hægt vært að stöðva dýrtíðina. Það er meginástæðan til þess,. að dýrtíðin hefur vaxið til þessa dags. Ef hv. 4. landsk. (BrB) hefur fundizt sjálfsagt að svíkja þetta loforð, til þess að umbjóðendur hans gætu fengið betri kjör, verður hann að gera sér ljóst, að hann verður að taka fyrir hönd þeirra manna. afleiðingunum af þessu, sem nú eru að koma fram á þjóðinni. Ég held, að þetta hafi verið meginástæðan fyrir því, að stjórnarsamstarfið gat ekki haldið áfram, svikin á að halda niðri kaupgjaldinu í landinu, því að það var álitið, að boginn væri orðinn svo spenntur, að atvinnuvegirnir þyldu það ekki. Kaupgjaldið var þó ekki aðalbölið, heldur hitt, að ekki var hægt í atvinnurekstrinum að reikna út, hvað kaupgjaldið yrði þann og þann mánuðinn. Atvinnureksturinn varð alltaf að taka áhættunni, sem var af því, að kaupgjaldið hækkaði. Það er fyrir þetta, sem komið er út í það öngþveiti, sem nú er í þessum málum.

Ég vil þá fara nokkrum orðum um fjárl., að svo miklu leyti, sem þau snerta þetta mál, og leyfi mér að benda á, að á 19. gr. eru settar inn 35 millj. kr. til dýrtíðarráðstafana sem gjaldaliður. Þegar þetta var rætt í n., var mér ekki kunnugt um, að þm. sósíalista þar hefðu nokkuð mælt því í gegn, og veit ég ekki til, að nokkur fundur hafi verið haldinn í n., sem ég hef ekki verið á, svo að ég kannast ekki við nein mótmæli viðvíkjandi þessum gjaldalið. Ég man ekki betur, en að þeir greiddu þar atkvæði með þessum lið, að setja 35 millj. kr. inn til dýrtíðarráðstafana, og ég minnist þess ekki, að rætt hafi verið um þetta við 2. umr. fjárl. í Sþ. Fyrirvari þeirra var um það, að ekki væru nógu margar gjaldaupphæðir á frv. Ég minnist þess ekki, að Sósfl. bæri fram nokkra sérstaka till. til hækkunar á öðrum gr. frv. til þess að mæta þessum útgjöldum, og hef ekki orðið var við, að þeir hafi komið fram með nokkrar till. til þess að mæta þessum gjöldum né öðrum gjöldum, sem þeir vildu fá inn.

Ég hef orðið þess var, að menn hafa bent á hin háu gjöld, sem nú eru á fjárlagafrv. Við umr. um hin frv. kom það fram, og sérstaklega hjá hv. þm. Str. (HermJ), þar sem hann lýsti yfir því, að hann mundi ekki þola að sitja hér þetta þing út, án þess að gerðar væru róttækar tilraunir til stjórnarmyndunar á þeim grundveili að laga fjármálin í landinu. Og ég hef orðið var við það þessa dagana í Morgunblaðinu, Vísi og ekki sízt í Tímanum, að hér sé einhver hætta á ferðum, fyrst fjárlfrv. er komið upp í 200 millj. kr. Þetta sé verra en Heklugos, drepsóttir, fiskileysi og allir erfiðleikar, sem geti steðjað að þjóðinni, og Vísir segir í dag, að nú sé ekki hægt að bjóða þjóðinni annað, en blóð og tár, líkt og Churchill sagði, þegar Englendingar fóru í stríðið. En ég segi, að það velti ekki á upphæðum útgjalda um velferð ríkissjóðs, heldur á því, til hvers upphæðin er notuð. Og ég held, að öll öfl, sem sameinast nú um það að ávita Alþ. fyrir þessi háu fjárl., sem verið er að reyna að afgreiða, ættu heldur að sameinast og gera kröfur um það, að þeir, sem stjórna landinu og þjóðinni, noti fé3 til þess, sem það ætti að notast til, og einskis annars, og ég vil sanna mál mitt.

Árið 1944 voru útgjöldin 94 millj. kr., þá var 3 millj. kr. tekjuafgangur. 1945, þegar fyrrv. stj. hafði ríkt í eitt ár, þá komust útgjöldin upp í allt annað, þá var 22,6 millj. kr. tekjuafgangur. og það var einmitt vegna þess, að fyrrv. stj. gætti þess, að hver króna, sem áætluð var til útgjalda, kæmi með aðra krónu með sér. Og 1946 er fjárlfrv. afgr. hér með 127 millj. kr. útgjöldum, og þá skilaði ríkissjóður 25 millj. kr. rekstrartekjum. Af því að þessari stefnu er enn haldið hjá fyrrv. stj., að greitt er fé til þeirra hluta, sem geta forvaxtað féð, þá eru greiddir vextir og afborganir af því, sem borgað er í. Ég ber engan kviðboga fyrir því, að þau 200 millj. kr. útgjöld, sem eru á fjárlfrv. fyrir árið 1947, komi ekki aftur — og meira til, ef þess er gætt, að atvinnuvegir þjóðarinnar séu lífrænir og það sé ekki, settur fjötur um fót þeirra. Ég minnist þess, þegar hér var rekin sú fjármálaspeki að senda kartöflur til Eskifjarðar fyrir atvinnulausa menn, svo að þeir gætu haft atvinnu við að rækta kartöflur, en þeir fóru þá inn á þá óheillabraut, að í stað þess að setja þær niður, þá átu þeir þær. Og það er hægt að finna fleiri dæmi frá þeim tíma, þegar hin dauða hönd afturhaldsmanna lá yfir atvinnuvegunum, — um það, hversu mörg tækifæri þá glötuðust fyrir íslenzku þjóðina til að vinna sig upp úr fátæktinni, af því að fénu var ekki veitt í lífræna hluti. Ég held, að samanburður á þessu tvennu ætti að vera þjóðinni nokkur leiðarvísir nú í erfiðleikunum um það, hvort heldur eigi að skera niður eða hvort eigi að halda áfram nauðsynlegum og eðlilegum útgjöldum til þess að skapa enn nauðsynlegri og eðlilegri og meiri tekjur fyrir þjóðfélagið. Hv. 7. landsk. gat þess, að þetta frv. væri til þess að mæta halla fjárl., og hann gat þess einnig, að það væri nauðsynlegt að koma öllum rekstri ríkisins í fastara form. Stjórn og rekstur hins opinbera væri komið í það ástand, að ekki væri lengur við það unandi. Ég var dálítið hissa á þessum upplýsingum frá þessum þm., því ég hef ekki vitað til þess. að hann sjálfur eða flokkur hans í fjvn. hafi viljað leggja hönd á plóginn á þessu þingi til þess að ná þessum árangri. Ég vildi mega í sambandi við þetta spyrja: Hvers eigum við að vænta á næstunni um það, sem á vantar til þess að ná hallalausum fjárl.? Því að þetta dugir ekki til þess. Eftir að búið var að afgreiða fjárl. til 3. umr., þá hefur verið lagður fram í fjvn. nýr listi upp á 9 millj. kr., og hann er engan veginn tæmandi. Ef nokkuð samræmi á að vera milli þess og hins, sem á vantar, þá er gert ráð fyrir, að það verði að bæta 15 millj. á fjárl. Meðal annars er ekki á þessum lista 300 þús. kr. nauðsynlegar greiðslur. Það er ekkert ætlað til rafmagnsborana, ekkert til nauðsynlegra brúa, eins og Þjórsárbrúar. Þegar svo fjvn. hefur óskað eftir því, að menn færu inn á alvöru í þessum málum, og spurt, hvað þeir vildu skera niður, þá hafa þeir mennirnir verið ófúsastir til að hlusta á þau mál, sem nú standa mest á móti auknum tekjum annars vegar og mest hafa ráðizt á fjármálaástandið í landinu hins vegar. Ég verð að segja það, að þessum mönnum veitist erfitt að vera bæði giftir og ógiftir.

Ég tel það vera skyldu form. Framsfl., eftir þá yfirlýsingu, sem hann gerði í þessari hv. d., að knýja flokk sinn til þess að skera niður og spara eitthvað af þeim 9 millj., sem ég hef lýst. Og ég verð að segja það, að þeir menn, sem undanfarin ár hafa staðið hér í að krítisera ýmis l.. sem hafa verið sett, eins og fræðslul., en strax þegar á að fara að framkvæma þau, þá krefjast þeir þess, að ekkert sé gert og þetta megi bíða — ég tek ekki þeirra gagnrýni hátíðlega. Það er ekki svo að skilja, að fjvn. hafi átt í neitt meiri erfiðleikum við hann (þm. Str.), en hæstv. núv. menntmrh. um framlag til þeirra mála.

Nú er ég ekki að segja, að það eigi að byrja að skera þau niður, en sannleikurinn er sá, að Íslendingar eru nú að verða á hverju sviði svo stórhuga, að þeir telja sér fært að gera ýmislegt, sem þeir ekki gátu gert áður, og reynslan hefur sýnt, að þeir hafa getað gert það. Og mér dettur ekki í hug að halda, að þeir menn, sem undanfarin 2 ár hafa sent út frá sér stórkostleg lagafyrirmæli, hafi gert það í hugsunarleysi að setja á t.d. tryggingalöggjöfina, sem kostar 18–20 millj. kr. Og mér dettur ekki í hug að halda, að það sé gert í hugsunarleysi, að Sósfl. vill hækka þetta nú um 6–8 millj. kr. Þeir hafa gert þetta af því, að þeir hafa trú á, að það sé rétt og sjálfsagt að gera það. Mér dettur ekki í hug að halda, að alþm. séu svo samvizkulausir að leyfa sér að greiða atkv. með þessum 30 millj. á þessu frv. nema af því að þeir vita og viðurkenna, að búið er að undirbyggja atvinnuvegina, svo að þeir þola það, og það er þá einnig tákn þess, að hvenær sem við sýnum stórhug, þá komi það fé aftur, og það þarf ekki annað, en lita á landsreikningana til þess að sjá, að það hefur gert það.

Hv. 4. landsk. kom hér með ýmsar ábendingar um aðrar leiðir. sem hann benti á hér, en hefur þó ekki sett beint fram í tillöguformi. Hann kom með þá leið, sem einnig hv. 3. landsk. hefur bent hér á áður við aðra umr., þar sem hann lýsti yfir því, að hann gæti ekki fylgt þessari stj. og mundi aldrei treysta sér til að fylgja höfuðandstæðingum sínum, sem ég hélt að væru sósíalistar, en mér skildist á ræðu hans að ætti að vera Sjálfstfl., því að hann óskaði hér eingöngu að halla sér til vinstri, en var búinn að gleyma útreiðinni, sem flokkur hans fékk 1934–1939, þegar hann týndi helmingi af sínum þm. En þeir voru sammála um þetta, að það væri hægt að ná öðrum og meiri tekjum með einkasölu og með rekstri arðbærra fyrirtækja. Nú vil ég benda á, til að vísa þessum hv. þm. veginn, hvort þeir vilja ekki líta til baka og sjá, hvernig reksturinn hefur verið síðustu ár á Pósti og síma. Það er rekið af því opinbera. Fyrstu árin, sem Póstur og sími tapar fé, eru það 5 millj. kr., og það er m.a. fyrir það, þó hv. 4. landsk. og flokkur hans sviku loforð sin í sambandi við stjórnarsamninginn. Launahækkanirnar urðu svo gífurlegar eftir að búið var að setja nýju launal., að menn fengu þar milli 20 og 30 þús. kr. í aukavinnu og komust upp í 60 þús. kr.

Þá skulum við taka Landssmiðjuna, það er eitt af stórgróðafyrirtækjum. Meðan allar viðgerðarstöðvar hér í Rvík eru þvingaðar til að greiða hundruð þúsunda í skatta í ríkissjóð og bæjarsjóð, og byggja sig upp, þá hefur Landssmiðjan farið þannig, að hún sækir nú vinnulaun á viku hverri í ríkissjóð. Hún skuldar ríkissjóði hundruð þúsunda í skatta og ætti í rauninni að gerast upp sem gjaldþrota fyrirtæki. Það er ekki óefnilegt að setja upp nokkur fyrirtæki eins og þetta. því var haldið fram í umr. hér um daginn, að þetta væri af því, þó forstjórinn í þessari smiðju hefði ekki verið nógu duglegur og hagsýnn. Nú vil ég upplýsa það, að þessi forstjóri hefur verið við fyrirtækið allan tímann síðan það var stofnað, og þessu fyrirtæki hefur verið stjórnað af prýðilegum mönnum, m.a. hefur hæstv. núv. samgmrh. stjórnað því í mörg ár, vegamálastjóri og Pálmi Loftsson, allt prýðilegir menn, sem allir hafa unnið hjá ríkinu. En svona hefur þetta fyrirtæki verið rekið. Það væri ekki lítið að sækja þangað til þess að greiða niður dýrtíðina.

Þá er Skipaútgerð ríkisins. S.l. ár varð hún í 450 þús. kr. undirballans við það að skipa upp vörum í Rvík. Nú veit ég ekki til þess, að ríkið skipi nokkurs staðar upp vörum nema í Rvík. En hvernig færi, ef svona stjórn væri alls staðar á þessu og jafnmikið tap væri alls staðar annars staðar á þessum atvinnurekstri. Ég er hæddur um, að það þýddi lítið fyrir skipin að koma þar. Þetta er annar ríkisrekstur. Þá skulum við taka leiguskip ríkisins. Veit hv. 4. landsk., hvernig þeir reikningar standa? Ég ætla að geyma að hrella hann með því. Við skulum athuga Flugvallargistihúsið, Fiskiðjuverið og fiskimálan. Ég veit ekki betur, en að það sé búið að þurrka allan fiskimálasjóð. Það eina, sem vonir standa til er, að þeir geti orðið aðilar að láni úr stofnlánadeildinni eins og þeir væru einstaklingar, öðruvísi treysta þeir sér ekki til að reka þetta fyrirtæki. Svo skulum við taka síldarbræðslurnar. Veit hv. 4. landsk. það, að beztu samkeppniaðilarnir við einkafyrirtækin eru síldarverksmiðjurnar, því að ef ekki væru Síldarverksmiðjur ríkisins, þá yrðu hinar verksmiðjurnar að greiða hærra síldarverð, en þær ráða síldarverðinu. En vegna þess, að þær eru ekki eins vel reknar og verksmiðjur einstaklinga, þá hafa sjómenn aldrei getað fengið það hámark fyrir málið eins og þeir hefðu annars fengið. Og svo getur hann grennslazt eftir því, hvernig útkoman er á síldarbræðslu með 80 þús. mál og séð, hvort hann muni geta fengið þar mikið fé til þess að greiða með hallann á fjárl. Svo álitur hv. 4. landsk., að hann gæti með því að geyma að samþykkja þetta frv. skrapað saman jafnmargar millj. með því að láta frv. um Innkaupastofnun ríkisins ná fram að ganga á undan. Ég vil í þessu sambandi benda á 3. gr. þessa frv. Þar stendur, að ríkissjóður leggi stofnuninni til nauðsynlegt starfsfé. Ég held þess vegna, að fyrsta árið verði þetta frekar til að auka hallann á fjárl. — Ég vil einnig í sambandi við þetta benda hv. þm. á Viðtækjaverzlunina, sem ríkissjóður á. Það var í fyrstu ákveðið, að tekjur af þeirri stofnun gengju til útvarpsins. Í fjárlfrv. nú stendur, að 570 þús. kr. eigi að renna til útvarpsins frá því fyrirtæki. En þegar spurt var um það, hvað mikið fé útvarpið hefði fengið þaðan, þá kom í ljós, að það er sáralitið fé, sem þaðan fæst. Nú hefur hv. 4. landsk. verið menntmrh. í 2 ár og veit kannske, hvað mikið fé hefur komið þaðan. En ég hef fengið þær upplýsingar, að allt það fé liggi hjá þessari stofnun sjálfri, og hún sé ekki fær um að greiða þangað þá upphæð, sem ætlazt er til á hverjum tíma. Svo að ég held, að það verði ekki pósitívt að setja upp svo og svo mikið af einkasöluverzlunum í landinu til þess að ná tekjum, því að í raun og veru verða landsmenn alltaf að greiða fyrir þær tekjur, sem koma af þeim verzlunum. Ef ríkisverzlun getur ekki gert annað tveggja eða hvort tveggja, að hafa betri innkaup og minni rekstrarkostnað, en einstaklingar, þá getur hún ekki heldur haft lægra verð, því að ef einstaklingar þéna jafnstórkostlegar fúlgur og hv. 4. landsk. lýsti, að heildsalarnir hefðu gert, þá eru þær fúlgur teknar aftur að langmestu leyti til ríkissjóðs, svo að ríkisverzlun getur ekki verið hagkvæmari fyrir landsmenn nema hún geri betri innkaup á sama tíma, en einstaklingar og rekstrarkostnaðurinn sé minni. Og þá vil ég benda hv. 4. landsk. á tvennt. Annars vegar, að gamla landsverzlunin er ekki enn þá búin að innkalla sínar skuldir að fullu, og svo hins vegar, að ríkið keypti eik, sem kostar um 2 millj. kr. Hvernig er með þau viðskipti? Menn héldu, að það væru ekki vandræði á þessum tímum að verzla með timburvörur. En ég hygg, að það hafi verið ofraun hjá þeim aðilum, sem með þau mál fóru, að fara svo með þessi mál, að skaðlaust væri, og ég held, að það þyrfti ekkert annað til að drepa alla landsverzlun, en leiða þessa menn að þeim vöruforða, sem þar liggur enn óseldur og verður til stórtjóns fyrir landið.

Ég held, að það sé svo ekki ástæða til þess á þessu stigi málsins að ræða meira um þetta atriði. Ég vildi gjarnan heyra frá hæstv. ráðh. svör við því, sem ég hef spurt um í sambandi við þetta frv., áður en umr. líkur.