03.02.1947
Efri deild: 63. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (3979)

28. mál, iðnfræðsla

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. — Frsm. n., hv. þm. Barð., gat þess í upphafi máls síns, er hann lagði það hér fyrir hv. d., að þetta mál hefði legið hér fyrir áður og treglega gengið um afgreiðslu þess, og þetta er — ég vil segja því miður — rétt, því að það er hvorki í fyrsta né annað sinn, sem málið hefur strandað hér, heldur hefur það, eins og hann sagði, legið fyrir þrisvar sinnum. Þó virðist mér svo sem þannig sé frá því gengið og það hafi verið það vel undirbúið, að ekki ætti að þurfa að standa svo lengi á því að fá það afgreitt.

Hér er komin fram rökstudd dagskrá frá hv. 1. þm. N-M., sem byggir hana á því, að þörf sé nánari endurskoðunar hjá þeirri mþn., sem hann segir, að sé starfandi til þess að athuga þessi mál, og helztu rök hans fyrir þessari rökst. dagskrá skilst mér því vera þau, að allan þennan undirbúning þurfi að betrumbæta frá því, sem nú er. En um undirbúninginn á þessu máli er það að segja, að hér kom fram frv. á Alþ. um nokkrar lagfæringar á iðnfræðslul., sem var afgr. á þann hátt, að því var vísað til ríkisstj. til þess að fá það athugað. Og það var gert. Skipuð var n., sem vann að því verki, og var hún skipuð fulltrúum frá ýmsum helztu samtökum iðnaðarmanna, sem lögðu í það mikla vinnu að fá l. afgr. í því formi, að allir aðilar mættu vel við una. Ég hefði kannske óskað persónulega, að eitt og annað í frv. væri ofurlítið öðruvísi. En þar sem mér er kunnugt um, að þar er um að ræða samkomulagsafgreiðslu, hef ég ekkert við það að athuga og mundi hafa sætt mig við frv. eins og það lá fyrir. En þeim mun erfiðara er líka að gera á því róttækar breyt., þar sem frv. er nokkurs konar samkomulagsatriði milli þeirra aðila, sem um það hafa fjallað.

Iðnfræðslan er, eins og kunnugt er, tvenns konar. Hún er verklegt nám hjá meisturum, sem þetta frv. ræðir um, og hún fer einnig fram bóklega í skólum, sem ekki gilda um nein l. eða lagasetningar aðrar en þær, sem í þessu frv. standa. Hér hefur verið lagt fram áður frv. um iðnskóla, sem hefur heldur ekki fengið afgreiðslu og ég gæti gengið inn á, að yrði athugað betur, en það ætti ekki að þurfa að verða til þess, að þetta frv. næði ekki afgreiðslu fyrir því. Ég tel sem sagt, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, um verklega iðnfræðslu, sé það vel úr garði gert, að ekki þurfi vegna frekari athugunar að slá því enn á frest.

Iðnn. hefur hér á þskj. 311 borið fram nokkrar brtt., eða alls tólf að tölu, og ég get sagt það í heild um allar þessar brtt., að ég get fyrir mitt leyti vel fellt mig við það til samkomulags, að þær verði samþ. Þær valda ekki neinni gerbyltingu á frv. Þær eru lagfæringar og til samræmingar, og sem sagt, án þess að fara út í einstaka liði þeirra, get ég sagt, að í heild sætti ég mig við, að þær verði samþ.

Þá hefur hv. þm. Barð. borið fram á þskj. 312 nokkrar brtt. Um þær vildi ég segja það, að l. brtt. fjallar um atriði, sem náttúrlega getur alltaf orkað nokkuð tvímælis, þ.e., hvernig skuli kjósa í iðnfræðsluráð. Í frv. er gert ráð fyrir því, að 4 ráðsmanna skuli skipaðir samkv. tilnefningu: 2 tilnefndir af Landssambandi iðnaðarmanna, tveir tilnefndir af iðnsveinaráði Alþýðusambands Íslands, og ráðh. skipi svo formann án tilnefningar. Hv. þm. Barð. leggur til, að þessu verði breytt þannig, að allir þessir 5 menn skuli kosnir hlutfallskosningu á Alþ. Út af fyrir sig má segja, að þetta geti eins komið til álita eins og allt annað, en ég teldi þó heppilegra að hafa áfram samband við iðnaðarsamtökin og láta þau hafa einhver áhrif á skipun ráðsins. Þau eiga mikið undir því, að vel takist um skipun í ráðið. En hins vegar mundi, ef ráðið væri kosið af Alþ., meira og minna gæta persónulegra áhrifa frekar en annars, og gæti þá kannske farið svo, að þeir menn, sem þannig veldust, yrðu ekki eins heppilega valdir eins og ef iðnaðarsamtökin sjálf hefðu fengið að tilnefna þá. Einkum er þó einn aðili, sem komið gæti til greina að tilnefna þarna fulltrúa, en það eru iðnnemasamtökin sjálf, sem eru skipuð fyrir allt landið, og gæti ég því gengið inn á, að brtt. á þskj. 350 væri tekin til greina, í stað þess að samþ. l. brtt. á þskj. 312.

2. brtt. frá hv. þm. Barð., við 18. gr., er um námstímann, og má vera, að hún geti komið til greina ekki síður en ákvæði frv. með brtt. n., en upp úr því legg ég ekkert sérstaklega mikið. Ég get fellt mig við hvort sem er. Aftur á móti tel ég brtt. við 2. gr. mjög vafasama, að taka ætti kaup frá nema, sem verður frá verki vegna vinnustöðvunar, sem er nemanum að sjálfsögðu alveg óviðráðanleg. Hann getur ekki ráðið um það, hvort vinnustöðvun verður, þar sem hann vinnur, og engin áhrif haft á gang þeirra mála, en í l. er gert ráð fyrir, að á meðan á vinnustöðvun stendur, megi hann vinna að ýmsum verkum, sem tilheyra ekki framleiðslunni sjálfri, t.d. viðgerð á vélum o.fl., og mætti því hafa af honum mikið gagn, ef hann héldi því starfi áfram, og það teldi ég betra en að láta hann hætta og taka af honum kaupið og skapa þannig möguleika til að segja honum upp.

Á þskj. 320 hefur hv. 1. þm. N-M. borið fram 2 brtt., þar sem fyrri till. fer fram á nokkuð aðra skipun á trúnaðarmönnum úti um land en gert er ráð fyrir í frv. Ég tel hana á engan hátt til bóta og get því ekki lagt til, að hún verði samþ. Aftur á móti tel ég 2. brtt. sérstaklega hættulega, þar sem lagt er til, að mönnum sé þar leyft að ganga undir próf og síðan að fá full réttindi, þó að þeir hafi ekki stundað nám hjá ákveðnum meisturum. Ég tel, að með þessu væri öllum grundvelli kippt undan því skipulagi, sem nú er á þessum málum, og mundi horfa mjög til hins verra, ef út á þessa braut væri farið. Það er yfirleitt svo, að þó að gert sé ráð fyrir prófi iðnnema, þá kemur í prófinu ekki fram nema lítill hluti af því, sem þeir verða að kunna í sínu fagi. Kunnáttu á ýmsum sviðum er ekki hægt að prófa, svo að í fullkomnu lagi sé, með einföldu sveinsprófi, heldur verður að stikla á stóru, taka einstaka liði. Annars er ekki hægt að gefa nægilega tryggingu fyrir því, að maðurinn sé fullfær iðnaðarmaður. Sú vissa getur ekki fengizt, nema maðurinn hafi verið ákveðinn tíma að verki. Ef þessu væri breytt og fært yfir í það horf, að hver maður, sem teldi sig geta uppfyllt prófsskilyrðin, gæti orðið löggiltur starfsmaður í faginu með því að taka próf, þá tel ég, að maður væri kominn út á mjög hála braut.

Ég veit ekki, hvort ástæða er til þess fyrir mig að tala um þetta lengra mál en þegar er orðið. Ég hef lýst skoðun minni á þessum brtt., sem hér liggja fyrir, og teldi mjög æskilegt, ef frv. næði fram að ganga, bæði vegna þess að ég tel, að það feli í sér ýmsar endurbætur frá gildandi l. í þessum efnum, og í öðru lagi sé það ekki vansalaust fyrir Alþ., að frv. dagi uppi, og þá afgreiðslu að láta það daga uppi í n., álit ég, að eigi ekki að taka upp á Alþ., heldur reyna að ganga frá málinu á annan hvorn veginn.

Það minntist einhver þdm. á það, að iðnaðarmanna. félag Reykjavíkur, elzta iðnfélagið á Íslandi, ætti í dag 80 ára afmæli. Fyndist mér vel viðeigandi, að það væri á þeim degi, þótt af tilviljun sé, að Alþ. féllist á málið í höfuðatriðum.