07.02.1947
Efri deild: 66. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í C-deild Alþingistíðinda. (3992)

28. mál, iðnfræðsla

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. — Ég vil aðeins með nokkrum orðum gera grein fyrir afstöðu minni til þessa frv., eftir að samþ. voru við 2. umr. þær breytingar, sem gerðar voru, sérstaklega við 14. gr. Ég tel, að með þessari breytingu hafi grundvellinum verið mjög kippt undan þessari lagasetningu. Þar er gert ráð fyrir, að hver maður fái að ganga undir próf og geti fengið full réttindi iðnnema. Ég tel tilgangslaust að koma með brtt. hér að þessu sinni, en mun bera fram í Nd. brtt. í þá átt að fella þessa gr. niður.