14.10.1946
Neðri deild: 3. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (4000)

7. mál, brúargerðir

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Það er rétt, sem hv. þm. Borgf. segir, að þessum málum mörgum var á síðasta reglulegu þingi vísað til stjórnarinnar til athugunar, og sú athugun hefur að nokkru leyti farið fram og sennilega að mestu leyti, en þó hef ég ekki enn þá fengið niðurstöðurnar hjá vegamálastjóra. Ég hef gert ráð fyrir því, að þegar þessar niðurstöður frá vegamálastjóra lægju fyrir, yrði tekið til athugunar, hvernig bezt væri að taka málin til afgreiðslu, og vildi ég um það hafa samvinnu við hv. samgmn. deildanna. Ég er alveg á sömu skoðun og hv. þm. Borgf. um það, að heppilegast væri á alla lund, að hægt væri að afgr. þessi mál með samkomulagi, en ekki verði tekin út úr einstök mál, eins og byrjað er á. Hins vegar virðist mér einfaldast, að þessum tveim málum, sem hér liggja fyrir í dag, verði vísað til samgmn., sem hefði þau til athugunar fyrst um sinn, þangað til séð yrði, hvaða till. stj. mundi bera fram í málinu. Ósk mín er sú, að málinu verði vísað þangað.