19.03.1947
Neðri deild: 99. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (4020)
20. mál, vinnumiðlun
Sigfús Sigurhjartarson:
Ég ætla mér ekki að blanda mér inn í þær umr., sem um þetta mál hafa verið, út af fyrir sig, en mér finnst rétt að vekja athygli á því, þar sem hæstv. forsrh. hefur staðhæft, að sú regla væri alger um skólamálin okkar, að ríkisvaldið hefði íhlutun um formann skólan. eða þá menn, sem stjórna skólamálum heima í héraði, að þetta er ekki með öllu rétt. Í l., sem afgr. voru frá hv. Alþ. í fyrra um fræðslumál, er gert ráð fyrir því, að í hverju fræðsluhéraði sé starfandi svo kallað fræðsluráð. Í l. þessum er líka gert ráð fyrir því, að ef fræðslumálastjóri mælir svo fyrir og hlutaðeigandi sýslun. samþykkir, þá taki þetta ráð við störfum skólan. í héraðinu. Nú breytti hv. Alþ. því frv., sem lagt var fram um þetta mál, í það horf, að fræðsluráð yrði kosið alveg af hlutaðeigandi bæjarstjórnum og sýslun., og hefur fræðslumálastjóri nú fyrir skömmu lagt svo fyrir, að fræðsluráð kaupstaðanna skuli taka alveg við störfum skólan. þeirra. Fræðslumálastjóri getur að vísu ekki gert þetta upp á sitt eindæmi. Til þess þarf samþykki bæjarstjórna, og bæjarstjórnin í Reykjavík hefur þegar samþ. þessi fyrirmæli fræðslumálastjóra, að fræðsluráð skuli taka við störfum skólan. allra barnaskóla og gagnfræðaskóla í Reykjavík, og er í þeim skólum komið svo, að ríkisvaldið hefur enga íhlutun um skipun þessara skólamála í Reykjavík.
Með þessu hefur hv. Alþ. skapað fordæmi fyrir því að láta héruðin ein um það að skipa n., sem eigi að fara með framkvæmd þeirra mála, sem ríkið ber kostnað af að langsamlega mestu leyti, eins og einmitt á sér stað í skólamálunum, svo að það er ekki alls kostar rétt, að hér sé verið að ganga inn á braut, sem eigi sér engin fordæmi.