12.11.1946
Neðri deild: 15. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (4058)
50. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. — Skattamál okkar Íslendinga eru í miklum ólestri. Munu flestir um þetta sammála, enda minnir mig, að allir stjórnmálafl. hafi haft það á stefnuskrá sinni við síðustu kosningar að færa þau mál til betri vegar. — Ég tel, að fyrirkomulagi og framkvæmd skattamálanna, eins og það nú er, sé ábótavant einkum í fjórum atriðum.
Í fyrsta lagi er tekjum skotið undan skatti í mjög stórum stíl með beinum skattsvikum. Í öðru lagi er tekjum komið undan skatti með því að sniðganga skattal. Í þriðja lagi eru ýmis meginatriði skattal. þannig, að þau orka mjög tvímælis. Og í fjórða og síðasta lagi eru ýmis ákvæði skattal. í innbyrðis ósamræmi.
Um fyrsta atriðið, beinu skattsvikin, er það að segja, að erfitt er að koma í veg fyrir þau með beinum lagafyrirmælum. Þó hygg ég, að gera mætti skattal. þannig, að skattsvik yrðu torvelduð miklu meir en nú á sér stað, og að þessu miðar ein af þeim fjórum breyt., sem gert er ráð fyrir í frv., þ.e. í 3. gr. frv. — Nú er það svo, að framteljendur geta dregið skuld frá eign án þess að gefa upp, hver sé skuldareigandi. Það er engin trygging fyrir því, að krafan sé hins vegar gefin upp sem skattskyld eign. Sérstaklega mun þetta gilda um handhafaskuldabréf. Sú upphæð handhafaskuldabréfa, sem talin er fram sem eign, mun vera miklu lægri en sú, sem talin er fram sem skuld. Það tíðkast hér og, að fyrirtæki taki lán rétt fyrir áramót og telji þau til skuldar, en lánsupphæðin er ekki talin sem eign. Við þessu er nauðsynlegt að reisa rönd með ákvæðum í skattal. Og sérstaklega er nauðsynlegt að reisa rönd við því, að handhafaskuldabréfum sé skotið undan við eignaframtal, en það er tiltölulega einfalt að gera, þ.e.a.s. með því að ákveða að banna að draga skuld, sem handhafaskuldabréf er fyrir, frá eign, nema nafns skuldareiganda sé getið. Og svo mætti ganga úr skugga um það, hvort krafan hafi verið talin fram sem eign hjá skuldareiganda. Að þessu miðar ein af fjórum breyt. þessa frv.
Tvær af þeim breyt. á l., sem þetta frv. gerir ráð fyrir, miða að því að koma í veg fyrir, að skattal. séu sniðgengin. Hér er gert ráð fyrir, að með reglugerð, sem fjmrh. setur, skuli ákveða, eftir hvaða reglum greidd laun hjá fyrirtækjum skuli talin til rekstrarkostnaðar, þ.e.a.s. til frádráttar tekjum. Það er nú á allra vitorði, sem nokkuð þekkja til skattamála hér, að einkafyrirtæki greiða mjög há laun forstjórum sínum og ýmsu öðru starfsfólki og miklu hærri laun en tíðkast fyrir sambærileg störf hjá hinu opinbera. Ef leitað er eftir ástæðunum fyrir þessu, virðast þær liggja nokkuð í augum uppi. Skattstigarnir íslenzku eru mjög háir, og mörg fyrirtæki hafa svo góða afkomu, að þau lenda í háum skattstiga. Er auðskilið, að sú upphæð, sem dregin er frá sem rekstrarkostnaður, rýrir ágóðann hjá fyrirtækinu um sömu upphæð, þar af leiðandi skattskyldar tekjur þess og þá um leið skattinn, kannske að mjög verulegu leyti og þeim mun meira, sem ágóði fyrirtækisins er meiri og fyrirtækið lendir í hærri skattstiga. Það má því segja, að fyrirtæki, sem hafa mjög háar tekjur og lenda í háum skattstiga, geti sér að kostnaðarlitlu hækkað laun forstjóra sinna og starfsfólks. Meiri hluti launanna, sem þannig er greiddur, er þá raunverulega ekki greiddur af fyrirtækinu, heldur hinu opinbera, af því að skattur fyrirtækisins lækkar svo tiltölulega mikið við þessa launahækkun. Þetta hygg ég, að sé ástæðan til þess, að einkafyrirtæki láta sig það minna máli skipta, hversu mikil laun þau greiða, heldur en opinber fyrirtæki. Af þessu leiðir tvennt. Einkafyrirtæki standa betur að vígi en fyrirtæki hins opinbera í samkeppninni um hæfa starfskrafta, og mun það hafa komið greinilega fram á stríðsárunum, að forstjórar opinberra fyrirtækja hafa átt erfitt með að ráða til sín hæfa starfsmenn, vegna þess að um mjög há yfirboð einkafyrirtækja var að ræða. Og það er óeðlilegt og ástæðulaust, að einkafyrirtæki greiði mun hærri laun en hið opinbera telur hæfilegt að greiða fyrir hliðstæð störf, sérstaklega þegar svo háttar, að ríkisvaldið gerir þeim þetta kleift með skattaákvæðum, og verulegur hluti af þeim umframlaunum, sem þau greiða, er raunverulega tekinn frá því opinbera.l)