14.11.1946
Neðri deild: 17. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (4093)
70. mál, ríkisborgararéttur
Flm. (Sigurður E. Hlíðar):
Herra forseti. Ég hef nú fengið leyfi til að bera þetta frv. fram í d. og þar með fara fram á, að Jóhanni Stefáni Thorarensen verði veittur ríkisborgararéttur.
Eins og menn muna, kom fram á síðasta Alþ. frv. um ríkisborgararétt, en eins og hv. dm. muna, strandaði málið á misklíð milli d., svo að ekkert varð úr veitingu ríkisborgararéttar. Einn þeirra manna, sem þá sóttu um ríkisborgararétt, var Jóhann Stefán Thorarensen. Hér er um íslenzkan mann að ræða, mann af ágætum íslenzkum embættismannaættum, sem einnig hefur sjálfur verið embættismaður hér á landi. Hann dvaldist í Ameríku um árabil, og hlaut þar ríkisborgararétt. Hann kom svo hingað heim til Íslands fyrir um það bil 15–16 árum, og er hann nú 74 ára gamall. Ég óska þess eindregið, að hv. þdm. sjái sér fært að veita þessum aldna heiðursmanni ríkisborgararétt.