14.11.1946
Neðri deild: 17. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (4095)
70. mál, ríkisborgararéttur
Flm. (Sigurður E. Hlíðar):
Herra forseti. Ég er ekki alls kostar ánægður með það, sem hv. þm. Eyf. sagði í ræðu sinni. Ég álít, að það eigi vissulega ekki að veita hverjum, sem sækir um, ríkisborgararétt, og vera kann, að menn geri það stundum í hagnaðarskyni, en þegar um er að ræða þennan gamla mann, sem um langan tíma hefur unnið störf sín hér á landi með prýði og verið ágætur þegn, þó að hann hafi ekki haft ríkisborgararétt, þá álít ég, að hann eigi fullan rétt á að fá bæði ríkisborgararétt og eins eftirlaun og þær bætur, sem menn öðlast á gamals aldri.
Hv. form. allshn. lýsti því yfir, að þessi mál verði ekki afgr. í bráðina. Ég verð að segja það, að mér finnst þetta undarleg yfirlýsing í byrjun þings, og ég er ekki ánægður með þá yfirlýsingu. Ég er ekki ánægður með slíka fyrirframafgreiðslu eða yfirlýsingu um afgreiðslu á máli. Ég ætla að vonast til þess, að þetta mál fari til hv. allshn. og verði afgr. þar á sínum tíma.