20.11.1946
Neðri deild: 20. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í C-deild Alþingistíðinda. (4103)

73. mál, byggingarstofnun ríkisins og byggingarfélög

Flm. (Sigfús Sigurhjartarson):

Herra forseti. Í íslenzkri löggjöf er það viðurkennt, að húsnæðismálin séu mál, sem löggjafinn eigi að láta til sín taka. Árið 1929 voru sett l. um verkamannabústaði, sem vissulega er eitt hið merkasta skref, sem stigið hefur verið í þá átt að leysa húsnæðisvandamál þjóðarinnar með aðstoð löggjafar- og ríkisvaldsins. Þessi l. hafa síðan alloft verið endurskoðuð af hv. Alþ. og gerðar á þeim breyt., sem í hvert sinn hafa vissulega horft til bóta til þess að gera starfsmöguleika þessara félaga meiri en þeir voru áður. Á síðasta fjárlagaþingi voru breyt. loks gerðar á l., og verður ekki annað sagt en að mjög lítið virðist þar vera um endurbætur að ræða. Einnig er vert að minnast þess, að árið 1932 voru sett l. um byggingarsamvinnufélög. Á þeim l. hafa sömuleiðis síðan verið gerðar endurbætur og breytt í það horf, að þessum félögum var veitt meiri og meiri fyrirgreiðsla við byggingarframkvæmdir sínar. Þessi l. voru einnig endurskoðuð á síðasta fjárlagaþingi og þá felld inn í einn lagabálk með l. um verkamannabústaði.

Það virðist nú vera tímabært að velta því nokkuð fyrir sér, hvaða árangri við höfum náð í húsnæðismálunum með því löggjafarstarfi, sem hingað til hefur átt sér stað varðandi þessi mál. Ég ætla, að engum muni blandast hugur um það. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að í öllum kaupstöðum landsins er nú mikill húsnæðisskortur. Það er staðreynd, að á þessum stöðum býr fjöldi fólks í heilsuspillandi húsnæði. Ég hef ekki í höndum skýrslur, sem sýna, hver tala þessara manna er, en fullyrði; að hún sé mjög há, og ég vil ekki láta þess ógetið, að ég hygg, að ástandið í þessum efnum sé engu betra í sveitum landsins. Það má að vísu segja, að þeir, sem þar búa, hafi yfirleitt þak yfir höfuðið, en óhætt er þó að fullyrða, að mikill fjöldi sveitafólks býr við ósæmileg húsnæðisskilyrði. Það væri að sjálfsögðu mjög æskilegt að geta gert sér tæmandi grein fyrir því, hvernig við stöndum í þessum efnum og hvað mikið við þurfum að byggja á næstu árum til þess að ná því marki innan hæfilegs tíma, þannig að allir landsmenn búi í sæmilegum íbúðum, hvort heldur er til sjávar eða sveita. Það hafa líka verið gerðar tilraunir til þess að gera sér grein fyrir þessu, og sú tilraun, sem ýtarlegust hefur verið gerð, var gerð af Arnóri Sigurjónssyni, meðan hann starfaði á vegum skipulagsn. fyrir 2 til 3 árum. Hann rannsakaði þá ýtarlega húsnæðisástandið í landinu, og var gefin út álitsgerð hans og till. um byggingarmál og þeim útbýtt meðal hv, þm., svo að þær ættu að vera þeim kunnar. Þar telur hann, að 10350 íbúðir, sem séu lélegar og ófullnægjandi, verði ekki komizt hjá að endurbyggja á næstu 10 árum, og að á sama tíma verði að reisa 2500 íbúðir vegna fjölgunar íbúanna. Þá telur hann, að á sömu tíu árum verði að reisa 1750 íbúðir vegna minnkandi heimila, og loks telur hann, að 250 íbúðir verði að reisa vegna mannflutninga innanlands. Niðurstaða hans er því sú, að það minnsta, sem komizt verður af með að byggja, séu 14850 íbúðir, eða því sem næst 1500 íbúðir á ári. Það er, eins og allir sjá, gífurlegt verkefni, og veltur því mikið á, að vel sé á haldið og að fjármagn, efni og vinnukraftur verði á réttan hátt notað til þessara framkvæmda. Arnór gengur út frá í sinni skýrslu, að kostnaður þjóðarinnar af þessum nauðsynlegu framkvæmdum muni verða 180–200 millj. króna. Þetta er það fyrsta, sem við okkur blasir, þegar við athugum þetta vandamál, eins og það kemur fyrir í dag. En það eru fleiri myndir, sem við blasa og nauðsynlegt er að athuga, ef maður gerir sér fulla grein þessara mála. Hér í Reykjavík og á nokkrum öðrum stöðum úti á landi hefur vissulega verið byggt mjög mikið á síðustu árum, en það er sannast að segja, áð ekki hefur verið byggt fyrst og fremst með það fyrir augum að bæta úr brýnustu þörfinni. Það er staðreynd, að á þessum árum hefur risið upp fjöldi „Iúxus“-bygginga og ýmiss konar aðrar byggingar, sem þörf hinna húsnæðislausu hefur ekki kallað á. Þetta tel ég með öllu óhæfilegt og samrýmist ekki siðmenningu okkar. Þá kemur það og til athugunar í þessu efni, að hér í Reykjavík er nú í smíðum mikill fjöldi húsa, sennilega nærri 400 hús, en þegar þetta er athugað nánar, þá er það svo, að mikill hluti þessara bygginga er raunverulega stöðvaður eða gengur svo hægt, að heita má, að jafngildi stöðvun. Ástæður fyrir þessari stöðvun eru ýmiss konar. Sumpart vantar byggingarefni, sumpart vinnuafl og sumpart peninga. Það, sem alvarlegast er við þetta, er það, að þessu er svo háttað, að allt of margir aðilar eru að fást við framkvæmdirnar, og hafa þeir oft margar undir í einu, en ef færri aðilar stæðu að þeim, er ég sannfærður um, að hægt væri að koma áfram þeirri byggingarvinnu, sem nú stendur yfir, með miklu meiri hraða. Varðandi fjárskortinn til byggingarframkvæmdanna vil ég nefna nokkur dæmi. Skal ég þá í fyrsta lagi minna á það, að þegar sett voru l. um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum hér á síðasta fjárlagaþingi, þá benti ég rækilega á það, að þar vantaði grundvöllinn, sem sé þann, að tryggt væri fé til framkvæmda byggingarfélaganna. Þetta fékk góðar undirtektir hér á hv. Alþ. í orði, en hins vegar fékkst ekki vilji fyrir því að bæta úr með því að samþykkja brtt., sem fram komu. Mér virtist þá þegar mikil hætta á því, að þær mörgu umbætur, sem gerðar voru á l. um verkamannabústaði og byggingarsamvinnufélög, kæmu ekki að notum, vegna þess að fjármagn skorti til framkvæmdanna. Hvað byggingarsjóð verkamanna snertir, er það staðreynd, að hann hefur nú á þessu ári bjargað sér nokkuð á því, sem kallað er að yfirdraga sína kontó hjá Landsbanka Íslands, og er hann nú yfir 3 millj. kr. Úr hverjum bæ og þorpi á Íslandi liggja nú fyrir beiðnir til framkvæmda, sem ekki hefur verið hægt að fullnægja. Sumum þessara beiðna hefur hann lofað að verða við, og öðrum hefur hann ekki séð sér fært að gefa nein loforð um. Byggingarframkvæmdir verkamannabústaða eru með öðrum orðum að verulegu leyti stöðvaðar eða tafðar, af því að byggingarsjóðurinn getur ekki veitt nein lán. — Hið sama gildir um byggingarsamvinnufélögin. Það öflugasta þeirra, byggingarsamvinnufélagið hér í Reykja.vík, hefur boðið út lán eða leitað eftir láni . að upphæð. 3 millj. kr. Af þessu hefur það fengið hálfa millj. kr., en 21/2 millj. kr. eru ófengnar, og er engin von til, að það fé verði útvegað. Félagið stendur með fjölda íbúðarhúsa í smíðum og sér ekki 'fram á annað en að allt standi fast vegna peningaskorts. Er þetta ekkert einstakt dæmi. Fleira en eitt byggingarsamvinnufélag í Reykjavík og félög víða úti á landi hafa hafið framkvæmdir í meiri eða minni stíl, en sjá nú ekki fram á nein úrræði til að halda verkinu áfram eða ljúka því vegna skorts á fjármagni. Ekki er sagan betri, þegar kemur til einstaklinganna. Það er staðreynd, að fjöldi þeirra einstaklinga, sem nú eru að leitast við að byggja þak yfir höfuðið, hefur þurft að leita til okrara um peningalán og hefur orðið að sæta kjörum, sem eru þannig, að vextirnir eru frá 10 upp í 20% og jafnvel hærri. Ég get nefnt um þetta dæmi, sem ég er persónulega kunnugur. Fjölskyldumaður hér í bæ, margra barna faðir, hefur brotizt í það að koma sér upp íbúðarhúsi inni í Kleppsholti. Fyrir frábæran dugnað þessa manns er húsið nú það langt komið, að það er fokhelt, og hefur hann gengið nokkuð frá því að innan, þannig að hann getur flutt í það með fjölskyldu sína. Kostnaður við húsið er samtals 150 þúsundir króna. Hann tók 37 þús. króna lán hjá okrara, og reiknast mér til, að raunverulegir vextir af því séu 12%. Lánið fellur í gjalddaga í desember, og hefur okrarinn sagt, að hann skuli framlengja lánið, en vextir verði þá 15%. Þessi sami maður hefur gengið í allar bankastofnanir hér og sagt, að hann hafi fokhelt hús, að verulegu leyti innréttað, þannig að hægt sé að búa í því, og hefur hann beðið bankana um lán út á þetta ágæta veð. Það er ekki hægt. Nú eru tveir kostir fyrir þennan mann. Annar er sá, að framlengja lánið hjá okraranum til stutts tíma og sennilega aftur og aftur fyrir hærri og hærri vexti, hinn er sá að missa þetta húsaskjól, sem hann af frábærum dugnaði hefur komið upp fyrir sig og sína fjölskyldu. Fjöldamörg sams konar dæmi er að finna hér í Reykjavík.

Ég ætla nú, að þessar staðreyndir, sem ég hef nefnt, ættu að færa öllum heim sanninn um það, að það, sem við þurfum á að halda í húsnæðismálunum, er fullkomið skipulag. Við þurfum að leysa erfitt vandamál, og við verðum að leysa það með því, að neytt verði allra möguleika, sem fyrir hendi eru, til þess að koma upp eins ódýrum, vönduðum og mörgum íbúðum og þjóðin getur frekast risið undir. Við verðum sem sé að tryggja, að það vinnuafl, sem fært er að leggja fram til íbúðarhúsagerðar, verði fullnýtt. Við verðum að tryggja, að það fjármagn, sem þjóðin telur sér fært að leggja fram til húsagerðar, verði á sama hátt fullnýtt. Og loks verðum við að tryggja, að það efni, sem þjóðin sér sér fært að leggja fram, verði notað á hinn hagkvæmasta hátt. Við verðum að kappkosta það í húsnæðismálunum að fá sem mest og bezt húsnæði fyrir hverja efniseiningu, vinnueiningu og krónu, sem fram er lögð, og tryggja það, að efni, sem keypt er til byggingarframkvæmda, verði notað til hins ýtrasta.

Meginmál þessa frv., er ég hef leyft. mér að flytja á þskj. 107, fjallar um það að koma allsherjarskipulagi á byggingarframkvæmdir þjóðarinnar, en það hygg ég, að bezt yrði tryggt með því að setja á stofn Byggingarstofnun ríkisins. Verkefni þessarar stofnunar yrðu samkv. lögum þessum í aðalatriðum þessi: Í fyrsta lagi að safna skýrslum um húsnæðisástandið í kaupstöðum og kauptúnum og gera tillögur og áætlanir um, hvernig fullnægt verði húsnæðisþörfinni á hverjum stað og tíma. Skýrslusöfnun þessi er mjög nauðsynleg, því að umbætur á sviði húsnæðismálanna verða að byggjast á raunhæfri þekkingu og kunnugleik á ástandinu. Í öðru lagi er byggingarstofnuninni ætlað það hlutverk að gera teikningar að húsum byggingarfélaga, sem lúta l. þessum, og að húsum og mannvirkjum annarra aðila, eftir því sem óskað er og við verður komið. Það skiptir miklu máli, að teikningarnar séu gerðar af lærðum kunnáttumönnum og það sjónarmið sé eitt haft að leysa vandann sem bezt af hendi. Það liggur í augum uppi, að heppilegra er, að þetta annist ein ríkisstofnun, en tilviljun ein ráði, hver þetta hefur með höndum. Þriðja meginverkefni byggingarstofnunarinnar yrði svo að annast byggingarframkvæmdir fyrir byggingarfélög, sem lúta l. þessum, ef þau óska þess, svo og fyrir aðra aðila, eftir því sem óskað er og við verður komið. Ég tel, að mjög óhagkvæmt sé, að byggingarframkvæmdir séu svo dreifðar sem nú er. Enn fremur er það staðreynd, að það skiptir verulegu máli við afköst við byggingarframkvæmdir, að sú tækni, sem við þekkjum og höfum yfir að ráða, sé notuð til hlítar. Ef svo er gert, er hægt að auka stórlega afköstin við byggingarframkvæmdir. Sérstaklega vil ég þó benda á þá höfuðnauðsyn að koma á sérhæfni í ýmsum starfsgreinum, er lúta að byggingarframkvæmdum, svo sem í smíði glugga, hurða og eldhúsbúnaðar o.s.frv. Það er kunnari staðreynd en frá þurfi að segja, að ef einhver verksmiðja sérhæfir sig í einhverri vissri grein, þá nær hún mun betri árangri en ef hún fæst við mörg verkefni og misjöfn. Með því, sem ég hef nú bent á, má spara stórlega fé til byggingarframkvæmda án þess að draga úr gæðum þeirra og magni. Þá hefur byggingarstofnunin það fjórða verkefni að flytja byggingarefni til landsmanna. Gert er ráð fyrir, að hún fái einkainnflutningsleyfi á byggingarefni og selji það beint til notenda eða fyrir milligöngu umboðsmanna, er hún kynni að hafa.

Þegar þrjú síðast töldu atriðin, sem sé að byggingarstofnunin annist hústeikningar, framkvæmdir bygginga og efnisinnflutning til þeirra, eru dregin saman, er ljóst, að af þeim má leiða mikinn sparnað og afkastaaukningu. Varðandi sparnaðinn skal ég geta þess, að ástandið í húsnæðismálum Reykvíkinga er nú þannig, að teningsmetrinn í venjulegu íbúðarhúsi kostar nú 320–330 krónur. En þegar húsabraskarar og okrarar hafa farið höndum þar um, kemst teningsmetrinn upp í 350–360 kr. og oft miklu meira. Ég hef mikið rætt þetta mál við verkfræðinga og vana byggingarmenn, og voru þeir allir á einu máli um það, að mjög mætti draga úr byggingarkostnaðinum án þess að rýra gæði húsanna. Engir þeirra manna, sem hafa kynnt sér þessi mál gaumgæfilega og hafa til að bera þekkingu í þessum efnum, hafa talið það vandkvæðum bundið að lækka kostnaðarverð bygginganna um allt að 1/3, eða með öðrum orðum rúmar 100 krónur á hvern teningsmetra. En til þessa þarf þær ráðstafanir, sem ég hef bent á, en þær eru fullkomnari tækni, sérhæfing í starfsgreinum byggingariðnaðarins og að aflétta okri og braski af efni og húsnæði, og að öllu þessu er stefnt í því frv., sem ég hef leyft mér að leggja hér fram.

Það getur verið álitamál, hversu löngum tíma ber að eyða til skýringa á frv. fyrir tiltölulega fáum mönnum, enda nokkuð skýrt í grg., en geta verð ég þó þess meginatriðis, að ætlazt er til, að allir þeir, er ákveðið hafa að reisa hús í kaupstöðum eða kauptúnum, sendi til byggingarstofnunarinnar fyrir septemberlok ár hvert skýrslu eða grg. um fyrirhugaðar framkvæmdir. Sams konar skýrslur um byggingar í sveitum skal senda nýbýlastjórn, og enn fremur skal senda nýbyggingarráði eða stofnun, sem kynni að taka við hlutverki þess, sams konar grg. um aðrar byggingar og mannvirki í landinu. Að fengnum þessum skýrslum er svo ætlazt til, að nýbyggingarráð eða stofnun, sem kynni að taka við hlutverki þess, geri heildaráætlun um mannvirkjagerð í landinu og athugi og geri áætlun um, hversu mikið byggingarefni sé hægt að flytja inn, hversu mikið fé sé nauðsynlegt og hversu mikið vinnuafl þurfi.

Þessi áætlun byggist því á þessum skýrslum um fyrirhugaðar byggingar og skýrslunum um húsnæðisþörfina. Takmörk eru vitanlega alltaf fyrir því, hversu miklu vinnuafli, fjármagni og gjaldeyri má verja til byggingarframkvæmda, og má þar ekki ganga of nærri framleiðslunni. En hér er gert ráð fyrir, að nýbyggingarráð eða stofnun, sem kæmi í staðinn fyrir það, gerði heildaráætlun um þessi efni, og yrði hún væntanlega liður í heildaráætlun ríkisins, þar sem ákveðin yrðu fjárframlög til eins og annars og gerð yrði grein fyrir skiptingu vinnuaflsins. Gert er ráð fyrir, að nýbyggingarráð flokki byggingarframkvæmdir í þrjá flokka. Í fyrsta flokki yrðu íbúðarhús í kaupstöðum og kauptúnum, í öðrum flokki íbúðarhús í sveitum og aðrar byggingar í þágu landbúnaðar og í þriðja flokki aðrar byggingar og mannvirki í þágu atvinnulífsins, svo og hvers konar opinberar byggingar í þágu félags-, menningar- og mannúðarstarfsemi. Er þetta miðað við það, að sem bezt verði fullnægt þörfum þjóðarinnar, eftir því sem fjárhagur og vinnuorka leyfa. Þegar nýbyggingarráð hefur gert áætlun sína, á byggingarstofnunin að útvega efni til þeirra bygginga, er um getur í fyrsta flokki, og til þess að geta reist hús þarf viðkomandi aðili að fá efnisleyfi hjá byggingarstofnuninni. Ætlazt er til, að úthlutun efnis til bygginga í öðrum flokki sé í höndum nýbýlastjórnar, þar eð með l. frá síðasta fjárlagaþingi er gert ráð fyrir nokkurri forystu hjá nýbýlastjórn í byggingarmálum sveitanna. Ég tek það skýrt fram, að ég tel, að þeir, sem í sveitunum búa, eigi sama rétt og þeir, sem við sjóinn búa, til þess, að húsnæðismál þeirra séu tekin föstum tökum, svo að ekki komi fyrir, að þeir þurfi að búa í ómannsæmandi húsnæði. Og tel ég eðlilegt, að ný ákvæði komi inn í lögin um nýbýlastjórn. Hvað viðvíkur efni til bygginga, er um getur í þriðja flokki, þá er ætlazt til, að nýbyggingarráð hafi úthlutun þess á hendi, enda fái viðkomandi aðilar efnisleyfi hjá ráðinu.

Þetta frv. fjallar fyrst og fremst um húsnæðismál kaupstaða og kauptúna, og mun ég því aðallega halda mig við það efni, en vil aðeins, áður en ég byrja á öðrum kafla, taka það fram, að þessi kafli miðar fyrst og fremst að því, að gerð verði heildarskipulagning í byggingarmálum landsmanna, sem verði felld inn í skipulagningu alls þjóðarbúskaparins, og enn fremur að fá sem mest og bezt húsnæði fyrir hverja vinnueiningu, efniseiningu og krónu svo sem hægt er.

II. kafli, sem fjallar um byggingarfélög, kemur í staðinn fyrir gildandi l. um aðstoð ríkisins til handa byggingarfélögum í kaupstóðum og kauptúnum. Þær meginbreytingar frá gildandi l., sem þetta frv. gerir ráð fyrir, eru: Í fyrsta lagi, að enginn munur sé gerður á byggingarsamvinnufélögum og byggingarfélögum verkamannabústaða og að leyft sé að stofna svo mörg byggingarfélög á hverjum stað sem verkast vill. Í öðru lagi er félögunum lögð sú skylda á herðar að fylgjast með ástandinu í húsnæðismálunum á hverjum tíma og vinna að útrýmingu heilsuspillandi og ómannsæmandi íbúða. Í þriðja lagi eru byggingarfélögunum tryggð lán. Vil ég nú fara um þetta nokkrum orðum. Gert er ráð fyrir, að í Reykjavík megi stofna félag, er lúti l. þessum, ef 50 menn koma saman, í öðrum kaupstöðum 25 og í kauptúnum aðeins 5, og er þá talið kauptún, ef um er að ræða þéttbýli, þar sem minnst 15 fjölskyldur búa, og hafi þá engin fjölskylda svo mikið landrými, að lögbýli geti talizt. Nú kynnu margir að segja, að það virtist óheppilegt að leyfa ótakmarkaðan fjölda félaga á hverjum stað. En ég tel, að þeir eigi að vera sameinaðir, er saman vilja vera. Þetta getur að vísu verið erfiðara í framkvæmdinni en í frv. er gert ráð fyrir, að þar sem fleiri en eitt byggingarfélag er, þá skuli þau mynda með sér samband, og skal sambandið koma fram út á við fyrir hvert einstakt félag. Hin einstöku félög yrðu þá deildir innan sambandsins, þar sem saman gætu starfað þeir, sem vildu.

Í sambandi við skyldur félaganna um athuganir á ástandinu í húsnæðismálunum og úrbætur í því efni, ef með þarf, hef ég sett inn í frv. það ákvæði, að ef ekkert byggingarfélag sé starfandi á einhverjum stað, þá hafi viðkomandi sveitarfélag sömu skyldur og réttindi gagnvart byggingarstofnuninni. Enn fremur er ákvæði um það, að ef byggingarstofnuninni sýnist ábótavant húsnæðismálum á einhverjum stað, þá geti hún skipað viðkomandi byggingar- eða sveitarfélagi að hefjast handa til úrbóta. Aftur á móti geta svo félögin áfrýjað til ríkisstj., ef ágreiningur rís. Það er ætlazt til, að þær íbúðir, sem félögin reisa, séu sameign félaganna, en réttur einstaklingsins til íbúðarinnar þó óuppsegjanlegur og erfist sem aðrar eignir. Réttur þessi verður því nánast ekki eign nema að því leyti, að hann má ekki framselja nema til erfingja eða aftur til félagsins. Þurfi félagi ekki lengur á íbúð að halda né erfingi hans, þá fellur íbúðin aftur til félagsins, en sá, er út flytur, fær endurgreitt það fé, er hann hefur lagt fram til byggingarinnar. Meðlimir byggingarfélags fá íbúð til afnota með þrenns konar kjörum. Í fyrsta lagi, að framlag félagsmanna sé 20% af kostnaðarverði íbúðarinnar. Í öðru lagi, að framlagið sá 10%, og í þriðja lagi ekkert. Þeir einir geta fengið íbúð með þriðja flokks kjörum, sem við rannsókn þá, er um getur í 2. og 21. gr. þessa frv., hafa reynzt búa í heilsuspillandi húsnæði og ekki hafa fjárhagsástæður til að lúta kjörum hinna flokkanna að dómi félagsstjórnar og héraðslæknis. Þessir menn mundu samkv. núgildandi l. fá inni í húsum sveitarfélagsins, er reist væru til að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Rétt til að fá íbúð með 2. flokks kjörum hafa þeir, sem síðustu 3 árin hafa eigi haft meira en 7000 króna árstekjur, að viðbættum 1000 kr. fyrir hvern ómaga, né yfir 10000 kr. eign. Þessar upphæðir skulu þó hækkaðar í samræmi við meðalvísitölu kauplagsnefndar fyrir hvert hinna þriggja ára, sem meðaltalið er tekið fyrir. Samkv. núgildandi l. mundu þessir menn hafa rétt til verkamannabústaða. Til 1. flokks íbúða hafa allir félagsmenn rétt. Þeir, sem til þeirra hafa rétt, svara því samkvæmt núgildandi lögum til þeirra, sem eru í byggingarsamvinnufélögum.

Þá skal ég lauslega drepa á, hvernig útvega skal fé til stofnkostnaðar íbúðanna að öðru leyti. Í fyrsta lagi skal byggingarstofnun ríkisins lána 50% af kostnaðarverði, en til þess afli hún fjár með útgáfu skuldabréfa til allt að 50 ára, sem greiðist með jöfnum afborgunum og vöxtum. Bönkunum sé gert að skyldu að kaupa skuldabréf þessi nafnverði, en selja þau síðan á frjálsum markaði. Það, sem eftir er kostnaðar, er þannig hugsað, að byggingarfélag fái af íbúðum með 1. flokks kjörum 15% af kostnaðarverðinu sem vaxtalaust lán. Þeir, sem koma undir 2. flokk, fá 20% framlag frá ríkinu og 20% frá viðkomandi sveitarfélagi. Þeir, sem koma undir 3. flokk, fá 25% framlag frá ríkinu og 25% frá viðkomandi sveitarfélagi. Þessi lán endurgreiðast með 2% á 50 árum. Nú kynnu einhverjir að spyrja, hvernig eigi að útvega þessi lán, og vitanlega yrði það sveitarfélögum ofvaxið, eins og nú standa sakir, og því er bönkunum gert að skyldu að innleysa þau skuldabréf, er þau kunna að gefa út í þessu skyni. Þessi kostnaður, sem á leggst samkv. frv. þessu, ef að l. verður, kemur þá í stað framlagsins til verkamannabústaða, sem fellur niður. Þá má spyrja, hvort þetta sé ekki of þung byrði á bönkunum. Því er ekki að leyna, að frv. þetta er hugsað með það fyrir augum, að þjóðarbúið sé allt rekið eftir fyrir fram gerðri áætlun, þar sem ákveðið sé, hvernig fé bankanna skuli varið til atvinnuvega landsins, en það eigi háð tilviljunum og duttlungum, hversu fé þjóðarinnar er varið til atvinnuvega og bygginga. Eru þetta þá of miklar byrðar? Ekki ætlast ég til neins, sem ekki þykir kleift að framkvæma á hverju ári, en það ríður á því, að framkvæmdir hvers árs séu áætlaðar og miðaðar við getu þjóðarinnar.

Að öðru leyti get ég svo vísað til grg. frv. Ég vænti þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og félmn., sem mun hafa haft þessi mál til meðferðar á undanförnum þingum.