20.11.1946
Neðri deild: 20. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í C-deild Alþingistíðinda. (4113)
74. mál, bankavaxtabréf
Flm. (Sigfús Sigurhjartarson):
Herra forseti. Frv. samhljóða þessu flutti ég á síðasta þingi. Tilgangurinn með þessu frv. var að leitast við að tryggja byggingarsamvinnufélögum hagstæð rekstrarlán. Að vísu er það óþarft, ef frv. það, sem hér var á dagskrá áðan, nær fram að ganga. Engu að síður þarf að hjálpa einstaklingum, og vitnaði ég áðan í einstakling, sem hefur átt í höggi við okrara og brask. ara. Ég vænti þess, að þetta mál verði tekið hér til gaumgæfilegrar athugunar. Lagt er hér til, að þessum lögum verði breytt þannig, að lánað sé um það bil 50% húsverðsins og 25% lóðarverðs. Lánin mundu því nema um 40%. Ég fjölyrði ekki frekar um þetta nú, en legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjhn.