19.12.1946
Neðri deild: 42. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
47. mál, sauðfjársjúkdómar
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls gerði hæstv. landbrh. grein fyrir því, að með þessu frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 73, er gengið inn á ákveðna stefnu varðandi þessi sjúkdómamál, sem það fjallar um, þá stefnu að vinna að því með skipulegum hætti að útrýma þessum sjúkdómum, svo framarlega að viss skilyrði séu fyrir hendi frá fjáreigendanna hálfu. Landbn. hefur nú haldið um þetta frv. marga fundi og orðið ásátt um verulegar breyt. á frv., sem liggja fyrir á þskj. 218.
Ég skal leyfa mér að fara hér nokkrum orðum um þessar brtt. til skýringar fyrir hv. dm., þó að margar þeirra séu það einfaldar að augljóst sé, hvað við er átt. Brtt. við 1. gr. er aðeins það að taka inn nöfnin á þessum karakúlsjúkdómum á annan veg, en gert er í frv., og er það eftir till. frá sauðfjársjúkdómanefnd, að taka inn útlenda nafnið á garnaveiki, sem er þekkt annars staðar, og kalla þingeyzku mæðiveikina, eins og hún almennt hefur verið kölluð, þurramæði. Þetta virðist ekki þurfa frekari skýringa við.
Um brtt. við 5. gr. er það að segja, að hún fjallar um það, að feila niður 4. liðinn, sem hljóðar þannig: „Að hafa umsjón með innflutningi erlendra fjárkynja, ef leyfður verður.“ N. leggur til að fella þennan lið niður, og er það í samræmi við það, að hún vill feila niður VIII. kaflann, sem fjallar um innflutning sauðfjár og eldi.
Brtt. við 6. gr. er í fyrsta lagi sú að leiðrétta prentvillu í 1. lið og í öðru lagi að orða 3. lið um, þannig, að í staðinn fyrir: „Einfaldar girðingar, sem settar eru meðfram ám eða öðrum hindrunum“ —komi: Einfaldar gaddavírsgirðingar. — Þetta er byggt á því, að girðingarnar geti verið annars staðar en þar, sem hindranir eru fyrir af náttúrunnar hendi.
3. brtt. við 6. gr. er talsverð efnisbreyting, og hún hljóðar um það að skipta varnargirðingunum niður í tvennt, þannig að annar hluti þeirra sé aðalvarnarlína, en hinn hlutinn aukavarnarlína. Þetta er í samræmi við það, sem kemur síðar og ég skal tala nánar um í sambandi við brtt. við 8. gr.
Þá er 4. brtt., við 7. gr. Hún er aðeins orðabreyt. frá því, sem er í frv. Er einni setningu snúið þannig við, að í stað þess, að það megi því aðeins svipta einstakar jarðir og upprekstrarfélög aðgangi að löndum sínum, að brýna nauðsyn beri til, þá kemur það skýrt fram, að þetta megi gera, ef nauðsyn krefji, og þykist ég ekki þurfa að hafa um þetta frekari skýringar.
Þá kemur brtt. við 8. gr., sem er áframhald af brtt., sem ég var áður að minnast á, við 6. gr. það er um girðingarnar. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir, að girðingar allar séu lagðar á kostnað ríkissjóðs að öllu leyti, en viðhald þeirra sé kostað af fjárskiptafélögum.
Samkvæmt brtt. er girðingunum skipt í tvennt, þannig að girðingar á aðalvarnarlinum séu kostaðar af ríkissjóði og viðhaldið sömuleiðis, en varðandi aukavarnarlinur þá sé ekki lagt til af ríkisins hálfu annað en efni, og hlutaðeigandi fjárskiptafélög annist á sinn kostnað flutning efnis frá hafnarstað, uppsetningu girðinganna og viðhald. Um þetta er meðal annars það að segja, að þegar fara fram fjárskipti á einstökum svæðum, þá getur verið nauðsynlegt að setja upp girðingar, sem þá séu í rauninni ekki nema til bráðabirgða, þangað til fjárskipti fara fram á næsta svæði, en þá verður það, samkvæmt því, sem síðar segir, undir ákvörðun viðkomandi fjárskiptafélags og sauðfjársjúkdómanefndar, hvort slíkri girðingu verður haldið við áfram eða hún lögð niður. Að öðru leyti hefur þessi breyt. ekki þýðingu, en hvað þetta snertir, því að um vörzluna er ákveðið á sama hátt og í frumvarpinu.
6. brtt. n., við 9. gr., er um það, að þegar að því kemur, að varnargirðingar eru lagðar niður, vegna þess að þær eru ekki taldar lengur nauðsynlegar, þá hafi bændur eða upprekstrarfélög, sem löndin eiga að girðingunum, forkaupsrétt að efninu úr slíkum girðingum. Þetta þykir nauðsynlegt að ákveða, og n. er sammála um þessa till. eins og aðrar till., sem hér liggja fyrir.
7. brtt. er aðeins leiðrétting á prentvillu, og sömuleiðis 8. brtt.
9. brtt. er varðandi rannsókn á garnaveikifé, og er það í samræmi við það, sem framkvæmt hefur verið nú síðustu árin, og þótti sauðfjársjúkdóman., sem þessum málum er kunnug, heppilegt að hafa ekki fastákveðið um þetta, eins og er í frv., að ríkið skuli kosta þann mann, sem á að stjórna slíkum rannsóknum, heldur er lagt til, að ríkið leggi aðeins fram lyf, tæki og kennslu við það verk. Annars er ætlazt til samkvæmt brtt., að sveitarstjórnir hafi umsjón með slíkum rannsóknum í samráði við sauðfjársjúkdómanefnd.
10. brtt. er um það, að í staðinn fyrir, að fulltrúafundur sé lögmætur, ef mættir eru fulltrúar frá 2/3 af þeim hreppum eða hreppshlutum, sem eru á fjárskiptasvæðinu, þá verði að vera mættir 2/3 allra fulltrúa frá þeim hreppum eða hreppshlutum, sem eru á fjárskiptasvæðinu, til þess að hann sé lögmætur.
11. brtt. er um það, fyrri hluti hennar, að orðin „í fyrsta lagi“ í 2. lið 26. gr. falli burt, og þá hefur það þá þýðingu, að í fjárskiptafrv. verður það alveg ákveðið, hvenær fjárskipti skuli fara fram, en ekki ákveðið. hvenær það á að vera í fyrsta lagi. b-liður er leiðrétting á prentvillu.
12. brtt. er ekkert annað en leiðrétting.
13. brtt. er um það, að í staðinn fyrir, að hlutaðeigandi menn, sem hafa atkvæðisrétt um félagsstofnun og fjárskipti, þurfi að eiga 20 kindur, þá er það fært í 15 kindur, og er það í rauninni miðlunarleið, því að sauðfjársjúkdóman. lagði til, að miðað yrði við 20 kindur, en í frv. er miðað við 10 kindur. Þetta er lítið atriði og þarf ekki frekari skýringar við.
14. brtt. er aðeins leiðrétting á prentvillu, og 15. brtt. er aðeins leiðrétting á máli. Það þykir betur fara á því að segja „sauðfé“ heldur en „fé bænda“, því að fleiri eiga fé en bændur.
Þá koma brtt. við 37. og 38. gr., sem er um fjárskiptabætur til þeirra manna. sem drepa fé sitt og fá annað í staðinn. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir því, að það sé að hálfu leyti tekið tillit til þeirrar fjártölu. sem hlutaðeigandi fjáreigendur áttu, áður en fjárpestin kom inn í viðkomandi sveit, og skal að hálfu leyti miða við skattaframtal 1946.
Nú hefur orðið samkomulag í n., eftir að leitað var álits sauðfjársjúkdóman. og Búnaðarfélags Íslands, um að breyta þessu mjög verulega, og er breyt. í því fólgin, að það er fellt alveg niður að taka tillit til þess fjárfjölda, sem hlutaðeigandi fjáreigendur áttu, áður en fjárpestin kom inn í sveitina. Enn fremur er fellt niður, að verðið fyrir fullorðna féð, sem slátrað er, þegar fjárskipti fara fram, falli til ríkisins, en í staðinn er lagt til, að hálft lambsverð komi fyrir hverja bótaskylda kind, eins og ákveðið er með 17. brtt. n. En bótaskyldar kindur eru skoðaðar allar fullorðnar kindur og gemlingar, sem taldir eru fram þrem árum áður, en fjárskipti fara fram, en þau fara ekki fram fyrr en 1949, þannig að framlag ríkisins vegna fjárskipta á árunum 1947, 1948 og 1949 miðast við fjártölu eigenda samkv. skattaframtali á árinu 1946. Sú breyt. er einnig gerð þarna á, að þeir menn, sem reisa bú, eftir að þessi l. öðlast gildi, og ekki eru erfingjar að dánarbúi á fjárskiptasvæði, hafi rétt samkvæmt því skattaframtali, sem gert er siðast, áður en fjárskipti fóru fram. Um kaup á líffé eru svipuð ákvæði í brtt. eins og í frv., en að því viðbættu, að fjárskiptafélög eða fjáreigendur verði að kosta þá umsjón sem fjárskiptafélög hafa við fjárkaup, enn fremur að stjórnum fjárskiptafélaga sé heimilt að ráðstafa líffé til fjáreigenda að nokkru með hliðsjón af tekjumöguleikum þeirra, ef mjög fátt líffé er fáanlegt. Það, sem vakir fyrir n. sérstaklega í þessu efni, er það, að þar sem svo kynni að haga til, að í einherjum hluta fjárskiptasvæðisins sé góð aðstaða til mjólkurframleiðslu, en í öðrum engir tekjumöguleikar aðrir, en af sauðfjárrækt, þá megi undir slíkum kringumstæðum láta þá menn hafa lömb fyrr, sem hafa verri aðstöðu, heldur en hina, sem hafa hana betri.
18. brtt. n. er ný, og hún er um það, að sauðfjársjúkdóman. sé heimilt, þegar alveg sérstaklega stendur á, að veita uppeldisstyrk vegna vanhalda á svipaðan veg eins og verið hefur, en þó því aðeins, að þannig hagi til, að samkvæmt áætlun sauðfjársjúkdóman. séu ekki líkur til, að hlutaðeigandi bændur geti vonazt eftir fjárskiptum næstu 3 ár, eða það standi þannig á að þeir hafi ekki viðunandi aðstöðu til mjólkursölu. Ef haldið verður áfram í þessu fjárskiptamáli, þá má eftir öllum líkum telja sennilegt, að á þeim svæðum landsins, sem lakasta hafa aðstöðuna varðandi mjólkurframleiðslu, fari fjárskipti fram næstu 3 ár. svo að þetta ákvæði komi ekki þar til greina og þá nái það aðeins til þeirra tiltölulega mjög fáu staða í öðrum héruðum, sem ekki hafa viðunandi aðstöðu til mjólkurframleiðslu.
19. brtt. n., sem er við 43. gr., fjallar um nokkuð mikið deilumál, þó að n. hafi mælt með henni, þ.e. að fella niður síðasta málslið þessarar gr., sem er um það, að það sé heimilt, ef hrútar eru fluttir inn til kynbóta. að nota þá til eldis á svæði, sem búið er að skipta um fé á. En samkvæmt brtt. n. verður efni þessarar gr. það, að slíkum hrútum megi aldrei sleppa úr sóttkví, þó að flutt sé sæði úr þeim til tæknifrjóvgunar á þeim svæðum, sem ósýkt eru. Loks er svo 20. brtt. n. um, að VIII. kaflinn, um innflutning sauðfjár, falli niður, og er það í samræmi við þann ágreining, sem ég gerði í mþn., sem samdi þetta frv., og er byggður á því, að það sé ekki, eins og sakir standa, hyggilegt að ganga lengra í þessu máli, en ákveðið er með VII. kafla þannig breyttum, eins og n. leggur til, að það sé aðeins heimild til innflutnings á hrútum, sem hafðir séu í stöðugu haldi, meðan þeir lifa. Ég þykist ekki að svo komnu þurfa að fara fleiri orðum um það að fella niður þennan kafla, en það kemur að nokkru leyti frekar til umr. um þetta mál, þegar meðnm. mínir hafa mælt fyrir þeim brtt., sem þeir flytja sérstaklega, og einkanlega þeirri að feila niður úr frv. VII. kaflann.
Ég vil svo fyrir hönd n. vænta þess, að þessar brtt. og frv. í heild sinni fái hér góðar viðtökur og geti orðið afgr. áfram svo fljótt sem kostur er á.