08.05.1947
Neðri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í C-deild Alþingistíðinda. (4151)
96. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum
Frsm. minni hl. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Svo sem hv. frsm. meiri hl. sjútvn. skýrði frá, þá hefur n. ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins. Hún skiptist í raun og veru í tvennt, þannig að þrír nm. (SK, SkG og PO) leggja til, að frv. verði fellt. Ég legg hins vegar til, að frv. verði samþ., en einn nm. (FJ) lýsti yfir, að hann væri ekki við því búinn að taka afstöðu til málsins. Hv. frsm. meiri hl. sagði, að hann teldi vel fært að fylgja málinu fram við 2. umr., vegna þess að þm. Ísaf. mundi fá tækifæri til að láta skoðun sína í ljós við 3. umr., en meiri hl. leggur til, að frv. verði fellt við þessa umr., og það eru fulltrúar tveggja flokka, sem hafa meiri hl. í d., svo að ég er hræddur um, ef flokkar þessara þm. eru þeim sammála um þetta, að þá mundi hv. þm. Ísaf. ekki fá tækifæri til að láta skoðun sína í ljós, en það er illa gert gagnvart honum og sjómannastéttinni að láta hann ekki fá tækifæri til að láta skoðun sína í ljós. Því vænti ég þess, þó að lokið verði framsögu um þetta mál, að umr. verði frestað, til þess að hv. þm. Ísaf. fái tækifæri til að taka afstöðu í málinu, enda hefði hann ekki látið bóka það eftir sér í n., að hann væri ekki við því búinn að taka afstöðu í málinu, ef hann hefði ekki ætlað sér síðar meir að taka einhverja afstöðu.
Svo sem fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl., þá telur meiri hl., að hér sé um einskis nýtt mál að ræða, mál, sem ekki sé flutt af neinni þörf og ekki eftir ósk nokkurs, heldur aðeins til þess að sýnast fyrir kjósendum, og býst ég við, að þessi orð lýsi betur en annað afstöðu þessa meiri hl. til þessa máls yfirleitt. En ég vil aðeins, áður en ég vík nánar að rökunum fyrir frv., benda hv. frsm. á það, að hann hefur ekki kynnt sér rækilega, hvernig þetta mál liggur fyrir og þær undirtektir, sem það hefur fengið meðal sjómanna. Þeir verða nú að búa við það óstand að þurfa að vinna 16 klst. í lotu dag eftir dag. En eins og kemur fram í nál. því, sem ég hef skilað á þskj. 693 og undirskrifað 20. apríl, þá liggja fyrir áskoranir frá 310 starfandi sjómönnum á togaraflotanum um að samþykkja þetta frv., og síðan hafa komið til viðbótar frá 30–40 sjómönnum áskoranir, sem liggja á lestrarsal, þannig að það hafa komið fram áskoranir frá verulegum hluta starfandi sjómanna á togaraflotanum um það, að frv. verði samþ., og það er vitað mál, að það er nú eitt aðaláhugamál togarasjómanna, að þessi hvíldartími verði lengdur. Þannig er það að segja, að þetta sé ekki í samræmi við óskir þeirra manna, sem eiga við þetta að búa, algerlega rangt og byggist á því, að hv. frsm. hefur ekki kynnt sér efni frv. Út af því, sem hv. frsm. sagði um umsögn Sjómannafélags Hafnarfjarðar, þá vil ég taka það fram, að umsögn þessi barst fljótlega, eftir að félagið hafði fengið bréf frá sjútvn. þessarar d., en það hefur af einhverjum misgáningi, sem ekki er Sjómannafélagi Hafnarfjarðar að kenna, heldur starfsmönnum þingsins, lagzt inn á lestrarsal, en ekki verið afhent n., en eins og sjá má á bréfinu, þá er það stílað til sjútvn. Nd. Alþ. Þannig er það ekki Sjómannafélagi Hafnarfjarðar að kenna, og er því ekki rétt að ásaka það fyrir þetta. Þeir svöruðu þessu tiltölulega fljótt, en svarið hefur lagzt inn á lestrarsal, en þetta er ekki stórt atriði.
Ég tel, að í sambandi við þetta mál sé verið að bera fram eitt af þýðingarmestu réttlætismálum, sem við höfum við að glíma hér. Það er svo komið, að 8 stunda vinnudagur er orðinn almennur í landinu og það hefur ekki verið um það spurt, hvort atvinnuvegirnir þyldu það, þetta hefur verið talið menningarmál. Við höfum verið að samþykkja stórfellda tryggingarlöggjöf, sem kostar tugi millj, kr. á ári, en meiri hl. þingsins var sammála um, að það bæri ekki fyrst og fremst að horfa í, hvað það kostaði, heldur hitt, að þarna er nauðsynjamál á ferðinni í þjóðfélaginu, og það hagaði verkum sínum eftir því. Mikill meiri hl. þingsins var sammála um það að setja þetta fram og láta reynsluna skera úr um það, hvort þjóðfélagið gæti undir þessu staðið, og það eru allar líkur til, að það sé hægt, þrátt fyrir það að ekki sé búið að sjá fyrir endann á því fjárhagslega. Þetta sýnir, að þegar nauðsynjamál er á ferðinni og mannréttindamál, þá þýðir ekki að horfa á það frá þröngu sjónarmiði eins og því, hvort það er til pláss á togurunum til að fjölga þar mönnum eða hvort útgerðin kvartar undan því, að þetta beri sig ekki. Á hitt ber að líta, að það skuli vera til menn, sem vinna 16 klukkutíma á sólarhring dag eftir dag. Það er að vísu rétt, eins og kom fram hjá hv. frsm., að það er dálítið annað, þegar skipin eru á ísfiskveiðum. Þá er veiðitíminn stuttur, kannske 9 dagar og getur orðið 12, 13 eða 14 dagar, en þó er 16 tíma vinnutími á dag svona marga daga, og hvers konar ástandi eru menn í eftir svona „törn“? Þetta er að ofbjóða gersamlega heilsu manna. Það væri út af fyrir sig ágætt, ef það væri nóg að taka vinnutímann, sem þeir vinna í svona skorpum, og svo aftur hvíldartíma manna á skipunum, meðan þau sigla til Englands, og deila því með dagafjöldanum, en líkami mannanna er ekki þannig gerður, að það gagni honum. Menn, sem vinna á ísfiskveiðum 16 klukkustundir á dag 9–14 daga, þeir eru eftir þá „törn“ ekki líkir neinum mönnum, þeir eru lamaðir menn andlega og líkamlega. Þar að auki, og það er eitt af stóru atriðum þessa máls, eru saltfiskveiðar mikið að aukast frá því, sem var á stríðstímunum, og þá verður þetta óhæft, því að þá er stöðugur veiðitími. Það er farið úr höfn í Reykjavík, og það tekur kannske einn sólarhring að komast á fiskimiðin. Þá er byrjað að veiða og svo haldið áfram stöðugt, þangað til aftur er lagt af stað til hafnar. Skipið losar á einum degi eða hálfum degi og fer svo aftur út á haf. Þannig gengur „törnin“. Það sér því hver maður, hvaða meðferð er á þessum mönnum. Það er því engin tilviljun, að hinir hraustu og kraftmiklu menn, sem yfirleitt eru á togurunum, koma í land, þegar þeir eru fertugir, svo að segja alveg lamaðir og eyðilagðir menn, eins og særðir menn í ófriðarlöndunum, til þess að leita sér léttari starfa í landi, en hafa þó alls ekki búið sig undir að vera í neinum slíkum störfum. Þetta hefur haft þær verkanir, að þegar svo er komið, að nóga vinnu er að fá í landi, þá fást menn ekki til þess að vera á skipunum, og það er mjög tilfinnanlegt að fá ekki ungt fólk á fiskiskipin. Þegar nýju togararnir koma, þá verða sennilega örðugleikar á því að fá menn á eldri skipin, vegna þess að þau eru lengur að fiska í sig en nýju togararnir, þannig að þrældómurinn verður þá enn þá tilfinnanlegri en nú. En það er náttúrlega til eitt öruggt ráð til þess að fá menn á skipin. Það er að koma á atvinnuleysi, svo að menn hafi ekki annað ráð en að fara á skipin, þó að lífi þeirra og heilsu sé stofnað í háska með því að vinna undir skilyrðum, sem þar eru.
Mér finnst bréf það, sem birtist í nál. meiri hl. frá L.Í.Ú., vera íslenzkum útgerðarmönnum til hneisu.
Ég býst við, að þeir með þessu bréfi, sem vafalaust er samið í fullkominni þröngsýni, séu að reisa sér minnisvarða, sem verði ekki til sóma, þegar fram líða stundir, á sama hátt og þeir menn, sem voru á móti því að lögleiða fyrst 6 og síðar 8 tíma hvíld á togurum. Þeir urðu sér til hneisu fyrir baráttu á móti slíku réttlætismáli, og það mun sýna sig, að baráttan gegn þessu máli, 12 tíma hvíld, þegar vinnutími í landi er almennt 8 tímar, það mun koma á daginn, að þeir menn verða stimplaðir sem þröngsýnir eiginhagsmunamenn, sem hafi barizt á móti góðu máli.
Í bréfi L.Í.Ú. er talað um það, að það þurfi að fjölga á togurunum um 7–10 menn, ef frv. yrði að l. Ég hef farið yfir þessa fullyrðingu með togarasjómönnum og hef fengið þær upplýsingar, að þetta muni vera of í lagt, að fjölgunin sé 4–7 menn, en ekki 7–10, og sýnir þetta út af fyrir sig, að óvarlegt er að treysta fullyrðingum L.Í.Ú. í þessum efnum. Þá er því haldið fram, að ekki sé nægilegt mannapláss á skipunum, ekki einu sinni á nýju skipunum, og það kann að vera, að það sé ekki nægilegt. En ég segi: Lausnin er ekki sú, fyrst ekki et til nægilegt mannapláss á skipunum, að láta menn vinna 16 klst. á sólarhring. Lausnin er sú; að það verður að útbúa mannapláss á skipunum. Þetta eru engin rök til að bera fram í þessu máli. Við getum ekki viðhaldið slíkri kúgun eins og á sér stað á togaraflotanum bara fyrir það, að skipin eru útbúin með hana fyrir augum. Það er leitt til þess að vita, að form. Sjómannafélags Reykjavíkur, sem átti sæti í þeirri n., sem fjallaði um innréttingu togaranna nýju, skuli ekki hafa haft framsýni til þess að benda á þessa hlið málsins, að það hlyti að reka að því, að sjómenn fengju lengri hvíldartíma á skipunum en nú er.
Þá er síðasta röksemdin, sem L.Í.Ú. minnist á, það er röksemdin um það, að útgerðin beri þetta ekki, en L.Í.Ú. fer ekki frekar út í þetta og reynir ekki að rökstyðja fullyrðingar sínar. Það er gefið mál, að þetta hlýtur að auka útgerðarkostnaðinn, en þetta er samt sem áður þannig mál, að það er ekki hægt að koma með þessa röksemd. Ef togaraútgerðin ber ekki þessa aukningu, þá verður að finna önnur ráð til þess að leysa það vandamál en þau að láta togarasjómenn vinna 16 klst. á sólarhring. Það er ekki lausnin á vandamálum sjávarútvegs okkar að ætlast til þess, að togarasjómenn haldi uppi togaraútgerðinni með þessum hætti, enda tel ég, að þetta muni ekki svo miklu fyrir togaraútgerðina, að hún beri sig ekki þrátt fyrir það að þessi réttarbót verði lögfest og togarasjómönnum verði tryggð 12 klst. hvíld á sólarhring. Þannig liggur það fyrir, að röksemdir þær, sem L.Í.Ú. hefur látið frá sér fara, hafa ekki við neitt að styðjast. Það er raunar ekki rétt að segja, að L.Í.Ú. hafi útbúið þessa umsögn, því að það er togaraeigendafélagið, sem hefur samið þetta bréf, og það er blettur á L.Í.Ú., að þetta bréf skuli vera sent í nafni þess.
Eins og fram var tekið af hv. frsm. meiri hl., þá var mál þetta, þegar það barst sjútvn. Nd:, sent til umsagnar þriggja aðila, L.Í.Ú., Sjómannafélags Reykjavíkur Og Sjómannafélags Hafnarfjarðar. L.Í.Ú. hefur svarað og Sjómannafélag Hafnarfjarðar hefur svarað, en Sjómannafélag Reykjavíkur, sem langflestir togarasjómenn landsins eru í, hefur ekki svarað. Þetta er kannske einna gleggst dæmi þess, að þetta mál er ekki gripið úr lausu lofti, heldur borið fram samkv. ósk togarasjómanna í landinu. Sjómannafélagsstjórnin vill ekki stuðla að því, að málið nái fram að ganga, en þorir ekki vegna meðlimanna að leggjast á móti því. Þetta er ástæðan fyrir því, að Sjómannafélag Reykjavíkur sendir ekki umsögn, þó að það sé búið að hafa málið til athugunar í marga mánuði, og þetta er ástæðan fyrir því, að hv. þm. Ísaf. var ekki við því búinn að taka afstöðu í málinu. En svona skollaleikur þýðir ekki. Það verður að taka afstöðu í þessu máli. Það kann að vera, að þeir þröngsýnu menn, sem í bréfinu miða afgreiðslu þessa máls við það, hvort það er mannapláss á skipunum og hvort útgerðin ber þennan kostnað í augnablikinu, það kann að vera, að þeir, sem hafa þessi þröngu sjónarmið, verði ofan á í þessu máli á þinginu nú. En ég get fullvissað þessa þm. um það, að þetta mál verður borið fram aftur og kannske í þriðja sinn. Það verður borið fram, þangað til það verður samþ., af því að þetta er nauðsynjamál og mannúðarmál og þessi óhæfilegi vinnutími er nú orðinn einhver versti smánarblettur á íslenzku þjóðfélagi.
Þegar barizt var gegn þrælal. í Ameríku á sínum tíma, komu menn með þær aths., að landbúnaður Suðurríkjanna mundi fara á höfuðið, ef þrælahaldið héldist ekki, þar sem skipulag og tækni landbúnaðarins væri miðað við þrælahald. Núna sér hver maður, hversu mikil fásinna það var að nefna þessa hluti. En afstaðan er sú sama í þessu máli. Það er fásinna að koma með þau rök, að sjávarútvegurinn beri það ekki, að vaktatíminn sé styttur úr 16 tímum niður í 12 á sólarhring. Við verðum að gera okkur það ljóst, hversu illa við höfum búið að sjómönnum okkar. Á hverju ári er haldinn sjómannadagur hér á landi. Á þeim degi er sagt reiðinnar ósköp af fallegum orðum um íslenzku sjómennina. En þrátt fyrir það hefur íslenzka þjóðin ekki gert sér það ljóst, að á herðum 500–600 sjómanna hvílir velgengni Íslands. Þeir framleiða gjaldeyri fyrir alla aðra atvinnuvegi þjóðarinnar. Ef þjóðin skildi þetta, mundi hún búa þannig að sjómönnunum, að ungir og duglegir menn mundu flykkjast í sjómannastéttina til þess að eyða þar beztu árum sínum og vinna fyrir þjóðina án þess að eiga það á hættu að verða eftir tiltölulega stuttan tíma að hverfa í land sem heilsulausir menn og ekki færir til almennrar vinnu. Það sýnir bezt sinnuleysi þjóðarinnar fyrir sjómönnunum, að aðaláhugamál sjómannadagsins, og dettur mér sízt í hug að kasta rýrð á það merka mál, er að afla fjár til dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Þetta er nauðsynlegt verk. En er ekki jafnnauðsynlegt að hagnýta sjómannadaginn í því augnamiði að skapa sjómönnunum betri skilyrði, bæði hvað vinnu og afkomu snertir, en þeir eiga við að búa nú? Ég vil svo, undirstrika það, að ég tel ekki rétt, að umr. sé lokið í dag, heldur verði hv. þm. Ísaf. og ýmsum fleiri gefið tækifæri til þess að skýra frá afstöðu sinni til þessa máls. Þetta er þýðingarmeira mál en að fært sé, að heill flokkur láti ekki uppi álit sitt á því, þegar það er til afgreiðslu.