06.12.1946
Neðri deild: 33. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (4164)
98. mál, fiskiðjuver ríkisins
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Hæstv. atvmrh. sendi sjútvn. þessarar d. þetta frv. og óskaði, að n. flytti það fyrir hönd hæstv. ráðh. Í grg. er tekið fram, að n. áskilur sér rétt gagnvart frv.. Frv. barst nýlega, og sá n. ekki fært að tefja það, en áskilur sér rétt til að gera brtt., þar sem enginn tími vannst til athugana. Þá mun n. athuga málið nánar milli 1. og 2. umr. og mælist til við hæstv. forseta, að henni vinnist tími til þess. Annað þarf ekki að taka fram að sinni, en ég mælist til, að frv. verði vísað til 2. umr.