18.12.1946
Neðri deild: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (4200)
117. mál, opinberar byggingar bæjar- og sveitarfélaga
Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson):
Herra forseti. Með bréfi, dags. 29. okt. s.l., fór hæstv. menntmrh. þess á leit við menntmn., að hún flytti fyrir hans hönd þrjú frv. Menntmn. varð sammála um flutning tveggja þessara frv., en um það, sem . hér liggur fyrir, náðist ekki samkomulag, og varð niðurstaðan sú, að ég stend einn að flutningi þess. Í menntmn. hefur ekkert það komið fram, að nm. væru skilyrðislaust andvígir frv., þótt þeir hafi ekki talið sér fært að standa að flutningi þess.
Um efni frv. leyfi ég mér að vísa til grg., sem því fylgir, og til þeirra skýringa, sem hæstv. ráðh. kynni að vilja gefa um það hér í hv.d:
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál, en óska, að því verði vísað til 2. umr. og menntmn., sem að sjálfsögðu mun taka það til athugunar milli umr.