18.12.1946
Neðri deild: 40. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (4202)

117. mál, opinberar byggingar bæjar- og sveitarfélaga

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Þetta frv. barst n. á öndverðu þingi. Meiri hl. — þ.e. allir nm. nema hv. 6. þm. Reykv. (SigfS) — treysti sér ekki til þess að svo vöxnu máli að gerast meðflm. frv.

Í þessu frv. er um tvö atriði að ræða. Annars vegar er, að ríkisstj. fái heimild til að ábyrgjast lán, sem bæjar- og sveitarfélög taka til þeirra. framkvæmda, sem í 1. gr. frv. greinir, og það er vafalaust rétt hjá hv. minni hl. og hv. þm. V-Sk., að að því getur rekið — og hafi jafnvel þegar rekið —, að það verður að veita slíka ríkisábyrgð, til þess að sveitarfélögin geti fengið lán til þessara hluta, og þekkjum við það allir. — En hér kemur svo annað atriði til greina, sem 3. gr. fjallar um, en hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Að veittri slíkri ábyrgð ríkissjóðs er Landsbanka Íslands skylt að kaupa skuldabréf, sem bæjar- og sveitarfélög gefa út í þessu skyni.“ En hér er um atriði að ræða, sem ég fyrir mitt leyti taldi ekki rétt að taka út úr þeim miklu vandamálum, sem hafa verið rædd milli stjórnmálafl. í sambandi við stjórnarmyndun, því að þetta er atriði, sem verður að semja um í sambandi við önnur mál.