25.02.1947
Neðri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í C-deild Alþingistíðinda. (4279)
174. mál, veiting prestakalla
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. — Ég ætla aðeins að segja nokkur orð í sambandi við ræðu hv. síðasta ræðumanns og nota tækifærið um leið til þess að segja hv. þm. Borgf., að hann hefur misskilið ræðu mína áðan, þegar hann talaði um, að ég hefði sagt, að mínum vilja væri fullnægt, ef hlutur safnaðanna væri gerður meiri með því móti, að sóknarnefnd eða prófastur fengju að ráða vali prestsins með biskupi. Ég sagði aðeins, að frv. væri betra með því móti en það er nú að mínu áliti. En ég lagði til, að þetta frv. yrði ekki samþ., og þetta hefði hv. þm. Borgf. átt að heyra og skilja.
Hv. frsm. talaði um það, að ég misskildi lýðræðið, eða við hv. þm. Borgf. Hann dró þá ályktun af því, að ég hefði talið, að með því að afnema kosningarrétt safnaðanna væri verið að gefa einræðinu meiri byr og skapa möguleika til þess, að ríkisvaldinu yrði misbeitt í frekari mæli en verið hefði. Þetta vildi ég gjarnan endurtaka fyrir hv. frsm. Og hv. frsm. sagði, að ef þessir andmælendur frv. vildu ekki telja, að réttara væri og heppilegra að kjósa héraðsdómara eins og presta, þá misskildu þeir lýðræðið. Af því að hv. frsm. talaði um héraðsdómara, vildi ég segja það, að það er náttúrlega engin fjarstæða að gefa héruðum einhvern meiri rétt til þess að velja sér dómara en verið hefur. Héraðsdómarar gegna miklu ábyrgðarstarfi í landinu, þeir eru framkvæmdarstjórar sýslunnar. En eins og nú er, þá ræður sýslan engu um það, hvaða framkvæmdarstjóri er ráðinn fyrir sýsluna. Og það getur þessi hv. þm. vitað, að það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir sýslufélagið og fólkið í héraðinu að hafa ekkert vald til þess að hafa áhrif á, hver valinn er í slíkt embætti. Ég hygg, að þau dæmi megi finna, að með þessu fyrirkomulagi hafi ekki alltaf verið valið sem heppilegast og æskilegast í þessum efnum, heldur hafa pólitískir ráðh. skipað menn, sem þeim voru handgengnir, og jafnvel þá gengið fram hjá hæfari mönnum. Ég teldi það t.d. enga fjarstæðu, að sýslunefnd í hverri sýslu hefði ákvörðunarrétt um það, hvaða framkvæmdarstjóri væri valinn fyrir sýslufélagið, og ég teldi það lýðræði, af því að sýslunefndir eru kosnar af héraðsbúum. Hins vegar væri vel framkvæmanlegt, að sýslubúar sjálfir kysu þennan mann.
Ef hv. frsm. hefði flutt frv. um það að gera rétt héraðanna meiri með því, að það gætu valið sjálf héraðsdómara, þá hefði hann sannað ást sína á lýðræðinu. Og hann hefði gert það betur með því en að flytja það frv., sem hér er nú til umr.
Ég tel ekki ástæðu til þess að ræða þetta mál frekar. Það mun fara til n. og verður athugað þar. Ég skal engu spá um það, hvaða meðferð það fær þar, en ég gæti trúað því, að hv. þm. skoði hug sinn um það að samþykkja þetta frv.