28.02.1947
Neðri deild: 83. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í C-deild Alþingistíðinda. (4292)

180. mál, fávitahæli

Flm. (Arnfinnur Jónsson):

Herra forseti. Þegar þessi l. voru sett árið 1935, var hér í landi fjárþröng, sem hindraði það, að l. kæmust til framkvæmda. Hins vegar kom það skýrt fram hjá hv. flm., frú Guðrúnu Lárusdóttur, að hún vænti þess, að þegar fjárhagur ríkisins batnaði, þá yrðu þau hæli reist, sem gert er ráð fyrir í l., og þau starfrækt. Í fyrstu málsgr. er ákvæði, sem virðist hafa verið notað sem varnagli gegn því, að l. yrðu framkvæmd. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta: „Ríkisstj. sér um, jafnóðum og fé er veitt til þess í fjárl., að stofnuð séu: a. Skólaheimili, eitt eða fleiri, fyrir unga vanvita og hálfvita“, o.s.frv. — Þetta ákvæði virðist hafa gefið átyllu til þess að láta I. ekki koma til framkvæmda á sama tíma og fjöldi annarra stofnana varðandi heilbrigðis- og menningarmál hafa verið reistar. Miða brtt. mínar að því að nema í burtu þennan varnagla og taka af öll tvímæli um, að l. komi til framkvæmda. Höfuðbreyt. á 1. gr. er sú, að ég legg til, að fyrsta málsgr. orðist þannig: Ríkið lætur reisa og starfrækja o.s.frv. — Aðrar breyt. eru ekki á 1. gr., nema a-lið. Þar kemur inn í á eftir orðunum hálfvita, og börn og unglinga, sem að dómi sálfræðinga eru sérstaklega vanþroska, en kenna má þó ofurlítið til munns og handa, eins og í l. stendur. Þessi liður er allrúmur. Hann nær yfir vanvita, hálfvita og börn og unglinga, sem að dómi sálfræðinga eru sérstaklega vanþroska. En það er oft ekki á leikmannsfæri að dæma um það, hvort um er að ræða vanþroska börn, hálfvita eða fávita eða aðeins seinþroska börn. Þess vegna taldi ég rétt að ákveða það í l., að þegar á að dæma um, hvort börn skuli sett á hæli, sem ætlað er vanvitum og hálfvitum, þá skuli kalla til sérfróða menn og þá fyrst og fremst sálfræðinga.

6. gr. er breytt verulega. Í l. er gert ráð fyrir, að ráðh. skipi 3 manna eftirlitsn. með þessum hælum. Mér virðist þetta ekki nauðsynlegt. Í landinu er starfandi barnaverndarráð, sem þetta ætti að heyra undir. Álít ég, að það skuli hafa eftirlit með slíkum barnahælum. Að vísu er til þess ætlazt, að fávitahælin geti tekið að sér sjúklinga á öllum aldri til elliára. En þess ber að gæta, að þeir sjúklingar standa raunverulega, hvað vitsmuni snertir, ekki hærra en ung börn. Fávitar hafa jafnvel ekki greind 2–3 ára barns. Mér finnst því óþarfi að gera ráð fyrir sérstakri umsjónarn. með þessum hælum. Þá tel ég rétt, að sérfróðum lækni, ef hans er kostur, sé falið að hafa umsjón með heilsugæzlu þessa fólks. Ég legg svo til, að 7. gr. l. falli niður, og leiðir það af sjálfu sér. Með l. um ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla er gert ráð fyrir, að þessir sjúklingar, sem l. fjalla um, heyri undir þau l. Þar með eru fallin niður ákvæði 7. gr., sem var um sérstaka framfærslu þessara sjúklinga. Sama gildir um bráðabirgðaákvæði með sömu l., er það líka fallið úr gildi. Þau l. voru til meðferðar á sama þingi og þessi l., enda var gert ráð fyrir, að þegar þau l. yrðu samþ., þá féllu bráðabirgðaákvæði þessara l. niður. Þetta er ekkert annað en formsatriði.

Það hafa ekki verið birtar ábyggilegar skýrslur um þessa sjúklinga í landinu. En vitað er, að þeir eru margir. Í heilbrigðisskýrslum frá landlækni 1943 er talið, að utan Reykjavíkur séu 171 fáviti. Er þó vitað, að þar koma ekki öll kurl til grafar. Foreldrar reyna í lengstu lög að komast hjá því að geta um slík börn og halda ef til vill lengi í þá von, að ekki sé ástandið svo alvarlegt með barnið, að um algeran vanvita sé að ræða. Einnig mun ekki heldur hafa verið gerð veruleg gangskör að því að afla ábyggilegra skýrslna um þetta af öllu landinu. En svo langt sem þessar skýrslur ná, þá er það auðséð, að hér er mikið nauðsynjamál á ferðinni. Í einu þorpi, Ólafsvík, eru t.d. 5 fávitar, í einu héraði á Austfjörðum 10. Það er mjög alvarlegt að hafa slíka sjúklinga þannig. Þeir taka oft upp starfskrafta einnar manneskju eða fleiri. Ég veit dæmi til þess, að það opinbera hafi orðið að ráða mann til þess að annast einn fávita. Auk þess hafa þessir sjúklingar slæm áhrif á umhverfi sitt. Ég þykist vita, að enginn ágreiningur muni vera um það, að hinu opinbera beri að sinna þessum sjúklingum og gera það fyrir þá, sem í mannlegu valdi stendur, engu síður en fyrir aðra sjúka menn. En þar með hefur þetta líka dregizt allt of lengi. Og þessu máli hefur nú verið hreyft hér til þess að reyna að koma skriði á það, svo að það verði tekið sömu tökum og önnur heilbrigðismál. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið á þessu stigi. Ég vona, að hv. þm. sýni málinu skilning, og óska ég, að því verði vísað til allshn.