03.03.1947
Neðri deild: 84. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í C-deild Alþingistíðinda. (4299)

182. mál, út- og uppskipun á Ísafirði

Flm. (Finnur Jónsson):

Ég flyt þetta frv. eftir beiðni bæjarstjórnar Ísafjarðar. Það er í ráði að hefja stórkostlegar hafnarframkvæmdir á næstunni, sem munu kosta mjög mikið fé. Bæjarsjóði er því mikil þörf á auknum tekjum, og er þetta frv. flutt í þeim tilgangi. Ég get að öðru leyti vísað til grg., en óska, að frv. verði vísað til fjhn. að lokinni þessari umr.