03.03.1947
Neðri deild: 84. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í C-deild Alþingistíðinda. (4303)

182. mál, út- og uppskipun á Ísafirði

Flm. (Finnur Jónsson):

Mér þykir vænt um að heyra, að hv. þm. N-Ísf. er til viðtals við mig um það að framkvæma vilja bæjarstjórnar Ísafjarðar hér á þingi, sem hann er sjálfur forseti í, og það er alveg í samræmi við þann áhuga, sem hann hefur sýnt fyrir bæjarmálum Ísafjarðar, að hann sé þó til viðtals um að framkvæma hagsmunamál bæjarstjórnar, sem bæjarstjóri telur, að sé til mikilla hagsbóta fyrir bæinn, með tilvitnun til bréfs bæjarstjóra, dags. 29. jan., sem er birt á þskj. 452, þar sem bæjarstjóri óskar þess, að ég ásamt öðrum tilgreindum hv. þm. geri það ýtrasta til, að hafnarsjóði Ísafjarðar verði af Alþ. veitt heimild sú, sem hér er um að ræða. Í öðru lagi leiðir hann mjög sterk rök að því, að hafnarsjóði sé knýjandi þörf á auknum tekjustofnum til að standast aukinn kostnað af framkvæmdum, sem ekki verður komizt hjá að leysa af hendi á næstu árum. Ég hygg, að þetta bréf taki af öll tvímæli um afstöðu bæjarstjóra, a.m.k. þá afstöðu, sem snýr að því opinbera og Alþ. Hvað bæjarstjórinn kann að segja hv. þm. N-Ísf. í einkasamtölum, veit ég ekki um og rengi ekkert, að hann hafi sagt eitthvað á þessa leið, en mér þykir það stinga nokkuð í stúf við það embættisbréf, sem hann sendi til mín sem þm. bæjarins og til forseta bæjarstjórnar Ísafjarðar væntanlega líka, hv. þm. N-Ísf. (SB).

Hv. þm. N-Ísf. gerði bæjarrekstur kvikmyndahúss á Ísafirði að umtalsefni. Það kemur að vísu ekki þessu máli við, enda var það svo, að Ísafjarðarbær rak kvikmyndahúsið á þeim árum, sem alþýða manna hafði ekki nein ráð á að sækja skemmtanir. Ég hygg, að yfirleitt hafi ekki á þeim árum verið mikill tekjuafgangur hjá þeim, sem ráku kvikmyndahús í smákaupstöðum úti um land. Nú er það svo, að þetta er vitanlega ekki til neins samanburðar, en þó hefur farið svo, að með því að leyfa verkalýðsfélaginu á Ísafirði kvikmyndahússrekstur, sem áður hefur verið í höndum bæjarins, þá hefur Ísafjarðarbær fengið mjög sæmilegt samkomuhús, og ég hygg, að það sé mjög vel viðeigandi í smærri kaupstöðum úti á landi, að kvikmyndahús og samkomuhús sé eitt og hið sama, og ég hygg, að verkalýðsfélagið á Ísafirði hafi komizt yfir nokkuð örðugan fjárhag, þar sem það lagði út í að byggja þetta samkomuhús með mikilli bjartsýni á erfiðum tímum, með því að fá kvikmyndahúsreksturinn í sínar hendur, og með því var um leið bætt úr þörf bæjarins fyrir samkomuhús, sem engir möguleikar hefðu annars verið að reisa.

Ég ber ekkert sérstakt traust til núv. bæjarstjórnarmeirihluta á Ísafirði á stjórn bæjarmálanna yfirleitt, en ég held þó, að það traustsleysi, sem kom fram hjá hv. þm. N-Ísf. á núverandi meiri hl., sem hann er forseti fyrir, í því, að þessi meiri hl. mundi ekki geta haft einhverjar verulegar tekjur handa bænum af út- og uppskipun á vörum, ég held, og það traustsleysi sé þó heldur of mikið, og ég fyrir mitt leyti trúi því ekki, að jafnvel þótt flokksmenn hv. þm. N-Ísf. stjórni bæjarmálum Ísafjarðar, að bærinn geti ekki fengið allverulegar tekjur af út- og uppskipun. Ég er ekki sömu skoðunar og hv. þm. N-Ísf. um það.

Ég vil þess vegna eindregið óska þess, að þetta mál verði tekið til ýtarlegrar athugunar í fjhn. og vona, að hún telji fært að verða við tilmælum bæjarstjórnar.