03.03.1947
Neðri deild: 84. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í C-deild Alþingistíðinda. (4305)

182. mál, út- og uppskipun á Ísafirði

Flm. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi út af þeim ummælum hv. þm. N-Ísf., að enginn vissi fyrir víst, hvað miklar þær tekjur væru, sem fengjust af kvikmyndasýningum á Ísafirði, segja þetta. Ég verð að segja það, að ég er þar engu fróðari en hv. þm. N-Ísf., en hitt veit ég, að húsið er ekki lengur byrði á verkalýðsfélaginu. Ég vil og geta þess, að tekjur verklýðsfélagsins ganga til sjálfrar stofnunarinnar, og ef hv. þm. N-Ísf. hefur verið að gefa eitthvað annað í skyn, þá er það algerlega rangt. (SB: Til hvaða stofnunar? Til kvikmyndahússins?) Já, til kvikmyndahússins. (SB: Mér skildist, að það væri til sjúkrasjóðsins.) Út af afstöðu bæjarstjórans á Ísafirði, er mér óskiljanlegt — þó að ég sé ekki að rengja það — að hann hafi sagt hv. þm. N-Ísf., að hann væri að senda þetta mál til Alþ., þótt hann áliti það ekki nægilega undirbúið. Þetta finnst mér þá eiginlega vera gert til þess að gera gys að Alþ. og flm. þessa máls. Ef bæjarstjórinn á Ísafirði áleit málið ekki nægilega undirbúið, þá átti hann ekki að senda það til Alþ. með þessum ummælum. Hann gat vitanlega sem embættismaður sent samþykktina einfaldlega, en að senda röksemdafærslu til Alþ., sem er frá hans eigin brjósti, að því er bezt verður séð, það er ekki hægt jafnhliða því, sem hann viðhefur þau ummæli við þm. N-Ísf., að þetta mál sé alls ekki nægilega undirbúið til þess, að rétt sé að láta það koma fram á Alþ. Það er ekki hægt fyrir einn embættismann að gera þetta hvort tveggja, jafnvel þótt það sé í umboði hans eigin bæjarstjórnar. — En þetta er vitanlega fyrst og fremst mál milli forseta bæjarstjórnar og bæjarstjórnarinnar, en er orðið mál Alþ., þegar forsvarsmaður bæjarstjórnarinnar skrifar bréf til Alþ., sem hann meinar, að sé allt annað en réttlætanlegt.