05.03.1947
Neðri deild: 86. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í C-deild Alþingistíðinda. (4314)

187. mál, brunatryggingar á Akureyri

Flm. (Sigurður E. Hlíðar):

Herra forseti. — Þetta frv., sem ég leyfi mér að bera fram, er eftir ósk bæjarstjórnar Akureyrar, sem hefur samþykkt að reyna að fá undanþágu frá brunabótalögunum, þar sem iðgjöld þykja óeðlilega dýr þar. Nú á síðustu árum hefur verið reynt að færa brunamálin í lag, og hafa þau verið lagfærð að mun. Bæði hefur brunalið verið æft og því fjölgað og nýtízku tæki keypt, sem nú eru í fullu lagi, og má því vænta, að bærinn fái lækkað iðgjöldin. Þess vegna vil ég fara fram á, að Akureyri sé leyfð heimild til að semja við önnur brunabótafélög. Ég hef sniðið þetta frv. eftir l. frá 1924 fyrir Reykjavík. Ég óska, að þetta frv. fái að ganga í gegnum hv. d. og verði vísað til allshn.