09.05.1947
Neðri deild: 125. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í C-deild Alþingistíðinda. (4358)
228. mál, áfengislög
Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. — Af því að fundartími er nú nokkurn veginn liðinn, þá vil ég líta á þessa umr. sem aðeins til þess að koma málinu til n., og skal ég því láta mér nægja að vísa til þess, sem segir í grg. fyrir því. Og ef ekki gefst sérstakt tilefni til þess — sem ég tel varla að muni verða á þessu stigi málsins —, mun ég ekki fara að ræða málið, fyrr en nefnd hefur fjallað um það, og mun láta máli mínu lokið við þessa. umr., en óska, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.