31.01.1947
Neðri deild: 64. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (437)
47. mál, sauðfjársjúkdómar
Sigurður E. Hlíðar:
Herra forseti. Ég vil aðeins í sambandi við brtt. hv. þm. A-Húnv. á þskj. 305, um að breyta nafninu sauðfjársjúkdóman. í sauðfjárvarnastjórn. spyrja hann og landbn., hvort þetta stangist ekki á við dýralæknalöggjöfina og hvort þetta á að vera tilraun til að afnema yfirdýralæknisembættið. Ég veit ekki betur, en að ég hafi yfirumsjón með sauðfjársjúkdómum. og þess vegna vildi ég spyrja hv. landbn., hvort það er þá meiningin að afnema dýralæknalöggjöfina eða ekki.