27.11.1946
Efri deild: 21. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í C-deild Alþingistíðinda. (4395)

86. mál, landshöfn og fiskiðjuver í Höfn í Hornafirði

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Hæstv. samgmrh. kom að nokkru leyti inn á það, sem ég vildi sagt hafa í þessu máli. En ég vildi benda sérstaklega á þetta: Að vísu var það sagt, þegar Njarðvíkurfrv. var samþ., að ríkið ætti að eiga landið, sem lægi að þessari höfn, en áður en nokkrar ráðstafanir voru gerðar til þess að tryggja ríkinu eignarrétt á landinu, þá voru l. sett, með þeim afleiðingum, að landið fæst nú fyrir annað verð — og miklu hærra — en það hefði fengizt fyrir, áður en l. voru sett. Ég vildi benda á það í þessu sambandi, að Hornafjörður er eini staðurinn, þar sem talað hefur verið um landshöfn, þar sem ríkið á allt land, eða svo til allt, og þó að sumir staðir þar kunni að vera festir með lóðasamningum um lengri tíma, þá er það þó annað. Þeir renna þó út, þeir samningar, og að fá þeim breytt er nokkuð annað en ef einstaklingar ættu landið. A.m.k. virtist ekki vera horft í það, þegar ráðizt var í að byggja á Skagaströnd, því að tveimur árum áður en það var gert, þá var allt land sett í erfðafestu til einstakra manna, sem svo þurfti að taka eignarnámi til þess að geta ráðizt í framkvæmdir þar að ráði.

Það, sem ég vildi sérstaklega benda á gagnvart Hornafirði, er, að ég tel alveg nauðsynlegt, að þar komist á landshöfn vegna Austfjarðabáta. En ég tel þó sérstaklega nauðsynlegt, að það sé þegar farið að gera ráðstafanir til þess, að ríkið hafi umráð yfir landi, þar sem hugsað er til að láta landshafnir koma, því að það segir sig sjálft, að landshöfn á einhverjum stað, að öllu leyti kostuð og rekin af ríkinu, gerir ekki það gagn, sem hún á að gera, þegar einstaklingar eiga landið og geta tekið með leigu af landinu allan þann arð og allt það gagn og verðmæti, sem landshöfnin skapar á næstu árum eftir að höfnin er komin, þar sem þeir, sem umráð hafa yfir landinu, geta selt afnotaréttinn af landinu eins og þeim sýnist. Á þetta vildi ég sérstaklega benda og biðja n. að athuga það og kynna sér hjá ríkisstj., sem hefur í höndum alla þá lóðasamninga, sem gilda í Hornafirði, þar sem ríkið á landið, hvernig þeir eru, til hvað langs tíma þeir eru o.s.frv., því að það er það, sem ég tel þurfa að gera fyrst af öllu, helzt áður en byrjað er að tala um landshöfn á þessum stöðum. Hins vegar vona ég, að þær áætlanir, sem hæstv. ráðh. var að tala um og eru á leiðinni hjá vitamálastjórninni, komi bráðlega, svo að n. fái að sjá þær, og má þá vafalaust breyta tölunum í samræmi við þær.

En viðvíkjandi landshöfnum í framtíðinni á hinum stöðunum, þá vil ég benda á það, að það þarf helzt, áður en byrjað er á að tala um landshafnir, að tryggja ríkinu landsréttindi á þeim stöðum, þar sem landshafnir eiga að koma.