22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í C-deild Alþingistíðinda. (4453)
160. mál, vatnsveita Reykjavíkur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég flutti þetta mál í janúar hér í hv. d. og gerði það — eins og segir í grg. frv. — eftir ósk bæjarráðs Reykjavíkur, sem var allt sammála um nauðsyn þess að fá þessar breyt. gerðar á l. Afgreiðsla málsins dróst í n., og kom sú skýring frá n. aðspurðri, að óþarft mundi vera að afgreiða málið, eftir að frv. um styrk til vatnsveitna hefði verið samþ. Eins og það lá fyrir, var það ef til vill vafasamt, en þetta virtist þó fullnægjandi með öllu, ef frv. um styrk til vatnsveitna næði fram að ganga, en jafnframt því, sem ég lýsti mig þá ásáttan um þessa afgreiðslu málsins, tók ég það fram — og var þá tekið undir það og því lofað —, að greitt yrði fyrir mínu frv., ef hitt frv. virtist vera í hættu. — Nú eru ef til vill ekki eftir nema 2–3 dagar af þinghaldi — í mesta lagi 4–5 dagar — og samkvæmt þeim fregnum, sem ég hef haft, er með öllu óvíst um afdrif frv. um styrk til vatnsveitna, og mér er kunnugt um það, að mjög skiptar skoðanir eru um, hvort það mál verði tekið á dagskrá í hv. Nd., og er því óvíst, hvort það nær fram að ganga, auk þess sem óvíst er, nema það þurfi að ganga milli d.
Ég stend við það, að ef frv. um styrk til vatnsveitna nær fram að ganga, er mitt frv. óþarft, en ég hygg, að því frv. sé stefnt í hættu, ef það er áfram látið liggja hér í d. og ekki þokað fram í þinginu og það látið dragast fram á síðustu stundu, og ekki sést enn, hver afdrif hins málsins verða.
Efni frv. míns var eingöngu um það að láta Reykjavíkurbæ um þessi atriði, njóta jafnréttis. við kaupstaði úti um land, sem honum er mjög nauðsynlegt vegna hinnar miklu vatnsveituviðbótar„ sem vonandi verður fulllokið, áður en langt um, líður. Fulltrúar allra flokka í bæjarráði eru sammála um nauðsyn á afgreiðslu þessa máls, og verður sú nauðsyn stöðugt meiri, eftir því sem nær dregur, að vatnsveitunni lýkur, því að það er beint fyrirheit til þeirra lánsstofnana, sem hafa lánað bæjarsjóði fé til þess að ráðast í þessa vatnsveituframkvæmd, að jafnskjótt og henni verði lokið, verði vatnsskatturinn hækkaður til þess að standa undir tilkostnaðinum. Er því beinlínis efnt til vandræða og vanskila af hálfu bæjarsjóðs, ef þessi hækkun á vatnsskattinum nær ekki fram að ganga, er frv. mitt gerir ráð fyrir. — Nú veit ég, að sumum sýnist, að hækkunin á vatnsskattinum samkv. mínu frv. sé óþarflega mikil, en hún er þó enn rýmri samkv. hinu frv., og er því enn meiri ástæða til að ætla, að menn verði móti því frv. en mínu. Sú heimild, sem gert er ráð fyrir í mínu frv., er sú sama, sem er í l. fyrir alla aðra staði utan Reykjavíkurbæjar.
Ég held því, að það geti ekki verið nein skynsamleg ástæða til þess fyrir hv. d. að standa á móti afgreiðslu þessa máls, og vil eindregið skora á menn að veita málinu brautargengi. Ef hitt frv. nær hins vegar fram að ganga, er hægur vandi að stöðva þetta litla mál, jafnskjótt og framgangur hins málsins er öruggur. Get ég heitið hv. dm. því, að ég skal fylgjast með því og hlutast til um það við hæstv. forseta Nd., að þetta mál verði stöðvað þar, jafnskjótt og augljóst er, að hitt málið nái samþykki, sem er meira en vafasamt, eins og nú standa sakir.