22.05.1947
Efri deild: 142. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í C-deild Alþingistíðinda. (4468)
160. mál, vatnsveita Reykjavíkur
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Því hefur verið haldið fram hér í þessum umr., að frv. um styrk til almennra vatnsveitna væri stöðvað í n. Um sönnur á því veit ég ekki, en hins vegar veit ég, að það er orðið allalgengt, að bæði n. og forsetar standi á þingviljanum með því að lofa málum ekki að fá afgreiðslu á Alþ. Ég get því vel trúað, að þessum brögðum sé beitt í n., og segi því nei.