23.05.1947
Efri deild: 143. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í C-deild Alþingistíðinda. (4480)

160. mál, vatnsveita Reykjavíkur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég sé ekki neina ástæðu til að fara að deila við hv. þm. Barð. Allir nm. nema hv. 3. landsk. eru hættir að virða hann svars, og tel ég, að orðaskipti þeirra stafi af því, að hv. 3. landsk. er búinn að vera hér svo skamma hríð, annars mundi hann ekki skipta sér af orðaskaki þessa þm., enda sýndi hann meiri þroska en þessi þm., þar sem hann hvarf frá rangsleitni þeirri, sem hann sýndi í nótt, enda hefur það ekki tafið málið, þar sem það fær afgreiðslu á sama sólarhring, þó að þeir heimskuðu sig á að neita afbrigðunum í gær, þvert ofan í vilja meiri hl. d. Þá tók hann fram algerlega ranglega, að ég hefði stöðvað mál í n. og sagt það við hann utan þings, eins og hann gat um áðan. A.m.k.. er einkennilegt, hvernig ég hef getað stöðvað mál í n. í haust, meðan ég var langdvölum burtu. Málið var afgr. síðar í vetur, af því að þá náðist samkomulag á allt öðrum grundvelli en áður var talað um, og það hefur verið sérstök ástæða til þess, að menn vildu ekki afgreiða málið, sem sé að skipa átti mþn. Ég hafði óskað eftir, að þetta mál yrði fyrst um sinn afgr. til Nd., og það var samkomulag um að afgreiða málið á þann veg, en ég veit, að hv. þm. Barð. skilur þetta ekki, það er honum ofvaxið. Hv. þm. Barð. var búinn að lofa því, að þetta mál. yrði afgr. út úr d., ef hitt væri í hættu. Hv. þm. Barð. vissi, að óvíst var um framgang hins málsins. Hann hefur því brugðizt heiti og fer svo með illyrði til mín og hv. þm. Snæf. Um hv. þm. Snæf. er það að segja, að ef frv. um vatnsveitur nær fram að ganga, sem ekki er útilokað, þá er það ekki hvað sízt að þakka framtakssemi hans, svo að hann á allt annað en skammir skilið frá þeim mönnum, sem óska, að það mál nái fram að ganga. En ég veit, að hv. þm. Barð. skilur þetta ekki, enda ætlazt ég ekki til þess af honum. Um efniságreining er það að segja, að þessi hv. d. var búin að afgreiða frv. um ótakmarkaða heimild, en hér er aðeins farið fram á takmarkaða heimild, svo að þeir, sem samþykkja það frv., geti ekki verið á móti þessu. Það var því ekki mikil ástæða til þess, að hv. dm. yrðu sér til skammar með því að neita um afbrigði í nótt, en það er ekki neitt nýtt með hv. þm. Barð., það er dagleg sjón hér í d. Heldur var það nú einkennileg refsing við mig að senda mig í stjórnarráðið, það er harla einkennilegt betrunarhús, og held ég, að hv. þm. hafi verið aftur í gömlum tímum. En annars lýsir skilningur hv. þm. Barð. sér vel í því, að nú lýsir hann því yfir, að hann ætli. að fylgja málinu.