23.05.1947
Efri deild: 143. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í C-deild Alþingistíðinda. (4482)

160. mál, vatnsveita Reykjavíkur

Pétur Magnússon:

Ég vildi leiðrétta þann misskilning hjá hv. þm. Barð., að ég hafi borið á hann að hann væri að hafa hrossakaup við meðnm. sína, það sagði ég aldrei. Ég sagði aðeins, að þrír hv. þm. hefðu boðið það í d. fullskipaðri og í heyranda hljóði að hafa hrossakaup. En ég átti við það, að hv. þm. Barð. og tveir hv. þm. aðrir hafi bundið fylgi sitt við þetta frv. því, að annað frv. nái fram að ganga. Þeir játa það allir, að þetta frv. eigi fullan rétt á sér, að nauðsyn sé á aukinni vatnsveitu hér í Reykjavík, en það þarf lagastaf til þess að leggja þau gjöld á, sem til þess þarf að koma henni upp, en þegar fylgi við þetta mál er bundið því skilyrði, að annað mál nái fram að ganga, þá leyfi ég mér að kalla það hrossakaup, og, er það í samræmi við þá merkingu, sem lögð er í það orð. Annars eru þessar umr. næsta undarlegar. Á frv. sjálft er varla minnzt. Hv. þm. Barð. skýrði að vísu frá því, að aths. hefðu komið fram við einstök ákvæði þess, en á það ekki minnzt frekar eða því mótmælt, að frv. næði fram að ganga. Umr. eru um mál, sem d. er búin að afgreiða frá sér og hún hefur ekki vald á lengur, og getsakir hv. þm. Str. um, að ríkisstj. hafi af einhverjum slæmum hvötum stöðvað það mál, get ég ekki skilið, að séu á rökum reistar. Vitanlega hefur stj. ekki vald á því máli, ef meirihlutavilji er fyrir því, að það nái fram að ganga. Annaðhvort hlýtur n. þá að vera á móti málinu eða ekki er til fyrir því meiri hl. í d. Að fara að tengja þessi mál saman nær svo engri átt, enda þótt þetta mætti falla, ef hitt yrði að l.