18.02.1947
Efri deild: 75. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (449)
47. mál, sauðfjársjúkdómar
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég gat ekki verið á fundi landbn., þegar þetta mál var endanlega afgr. frá n. Ég hef þó samþ. flestar af þeim brtt., sem hér liggja fyrir, en þó ekki allar og skrifa því undir nál. með fyrirvara.
Það er þá í fyrsta lagi varðandi 1. brtt. á þskj. 407 við 8. gr. Þar er gert ráð fyrir því, að viðhald aukavarnarlína verði á ríkisins kostnað. Ég leit svo á, að ekki væri ástæða til að láta ríkissjóð kosta þetta fremur, en verið hefur, og tel, að það ætti að vera hægt að hafa svo fullkomið eftirlit með þessu frá hinu opinbera, að það ætti ekki að saka, þó að fjárskiptafélag annist þetta viðhald á aukavarnarlínum. Hins vegar mundi þetta spara ríkissjóði fé, og virðast honum bundnar það miklar byrðar með þessu frv., að ástæða væri til að reyna að losa hann við þetta. Annað atriði. sem ég er ekki alveg samþykkur, er 10. brtt. við 31. gr., þar sem gert er ráð fyrir því að bæta inn í gr. orðunum „ef ástæða þykir til“. M.ö.o., það á að draga úr því, að skylt sé að rannsaka heilbrigði fjár í héruðum, þar sem líflömb eru tekin úr. Sama er að segja um 13. brtt. við 36. gr. Þar er gert ráð fyrir því, að sauðfjársjúkdóman. skuli heimilt í samráði við stjórn fjárskiptafélags að ráða hæfan mann til að rannsaka sauðfé o.s.frv. Hér er gert ráð fyrir heimild í staðinn fyrir skyldu. Þá er 14. brtt. við 37. gr. Þar er gert ráð fyrir því, að framlag ríkissjóðs vegna fjárskipta miðist við fjártölu eigenda við næstsíðustu áramót á undan, en ekki eins og er í frv. þrem árum á undan. Þetta veit ég, að er nokkuð mikið atriði út frá því sjónarmiði, að miðað sé við skattaframtal þrem árum á undan, því að þá eru þeir, sem eiga von á fjárskiptum, byrjaðir að fækka fé sínu, og virðist vera eðlilegt að gefa þeim tækifæri til þess, en þetta mun verða til þess, að menn viðhaldi sjúkum fjárstofni, þar til fjárskipti eiga að fara fram. Virðist nokkuð hæpið að hvetja menn til þess að gera það með því að fella burtu þetta ákvæði um það, að bætur séu miðaðar við skattaframtöl þrem árum fyrr.