14.02.1947
Efri deild: 73. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (4492)
167. mál, olíueinkasala
Pétur Magnússon:
Ég ætla mér ekki að þreyta umr. um þetta mál við 1. umr. Ég tel víst, að málinu verði vísað til 2. umr. og n., og mun þá gefast kostur á að athuga það nánar. Ég stend því upp fyrst og fremst til þess að óska nokkru frekari upplýsinga í málinu en fram komu í ræðu hv. flm. En þó get ég ekki látið hjá líða að gera nokkrar athugasemdir við ræðu hans. Mér skilst, að það séu þrjár ástæður, sem hann telur fyrir rökstuðningi frv. síns. Í fyrsta lagi, að olíuverzlunin sé nú að miklu leyti í höndum erlendra manna eða erlendra félaga, í öðru lagi, að það mundi kosta mjög mikið fé að byggja nýja olíugeyma, ef olíuverzlunin væri áfram í höndum einstaklinga, og í þriðja lagi, að með því að taka upp einkasölu á olíu mætti lækka mikið verðið á henni. — Ég vil nú leyfa mér í fáum orðum að athuga hverja af þessum þremur röksemdum hv. flm.
Hann komst svo að orði, að meir en 4/5 hlutar af verzlun með olíu hér á landi mundu vera í höndum erlendra aðila. Ég held, að þetta sé mjög fjarri lagi. Hann gat þess sjálfur, að annað stærsta olíufélagið hér á landi, Olíuverzlun Íslands, væri í höndum erlendra manna, en mér hefur aldrei grunsemd leikið á um það, að þar væri um leppmennsku að ræða. En aðferðin, sem hann notaði til þess að koma Olíuverzlun Íslands á erlendar hendur, var sú, að hann sagði, að það væri erlent félag. sem ætti fasteignir, geyma og lönd o.fl. í sambandi við olíuverzlunina. Það er rétt, að meginhluti hlutafjárins er í höndum erlendra manna, en mér er kunnugt um það, að samningarnir milli Olíuverzlunar Íslands og B.P. á Íslandi eru þannig, að B.P. getur ekki tekið .annað en hóflega vexti að .því fé, sem það hefur fest í olíugeymunum.
Það er því vafasamt, að það sé tap fyrir Ísland, þó að þessar eignir séu á höndum erlendra manna. Um Shell á Íslandi er það að segja, að það mun rétt vera, að nálega helmingur af hlutafé þess félags sé í höndum erlendra manna. Hitt er líka rétt, sem hann sagði, að á sínum tíma var grunur um það, að erlendir menn ættu meira en upp var gefið, en réttarrannsókn, sem fram fór, sýndi, að svo var ekki, og ég held að það sé hæpin fullyrðing, að eignarhlutföllin séu þar önnur en upp hefur verið gefið. Hitt er vitað, að hin nýstofnaða olíufélag, sem S.í.S. gengst fyrir, er innlent félag, og mun enginn grunur um, er erl. aðilar eigi hluta í því.
Að öllu þessu athuguðu vil ég segja, að mér finnst furðulegt, að flm. skuli komast að þeirri niðurstöðu, að 4/5 hlutar séu á valdi erlendra manna, þegar upplýst er, að tvö af félögunum eru alinnlend og hið þriðja að miklum hluta. Það er því naumast um það að ræða, að úr landinu fari sem svarar helmingur hagnaðarins af rekstri Shell. En þótt ég játi, að það geti verið metnaðarmál fyrir okkur, að þessi verzlun sé í höndum innlendra manna, þá er það ekki eitt afgerandi í því efni, hvað þjóðhagslega séð er bezt fyrir okkur. Það sem mestu máli skiptir fyrir okkur, er það, að verzlunin fari vel úr hendi, að olían sé seld við því lægsta verði, sem hægt er að búast við að geta fengið hana. Við getum ekki búizt við því að fá olíuna með beztu kjörum, sem nokkur þjóð fær. Við verðum þar að gæta okkar smæðar, eins og í mörgu öðru. Því stærri sem umsetningin er, því meira magn sem hægt er að kaupa í einu, því hagkvæmara verði munum við sæta. Þegar við lítum á það, hvernig þessi mál horfa við hjá okkur, megum við minnast þess, að það er ekki meira en röskir tveir tugir ára, síðan olíuverzlun hér á landi var rekin á hinn frumstæðasta hátt, olían flutt í tunnum og seld á tunnum um land allt. Og fyrst eftir að þessi olíufélög eru stofnuð og að nokkru leyti fyrir það, að erlent fjármagn bauðst fram til þess að koma upp geymum hér, er það, að verzlunin breytist þannig, að farið er að flytja olíuna inn á tankskipum og farið að geyma birgðirnar hér á landi í geymum, sem fyrst í stað voru eingöngu í Reykjavík. Róm var ekki byggð á einum degi, og það hefur heldur ekki tekizt á mjög stuttum tíma að koma dreifingu olíunnar í sæmilegt horf. Það hefur verið unnið að því stöðugt, síðan félögin voru stofnuð, og voru erfiðleikar á því síðustu árin fyrir styrjöldina vegna þeirrar miklu fjárkreppu, sem þá gekk yfir, en á þeim árum voru olíufélögin rekin með stórkostlegu tapi ár eftir ár vegna þess, hve illa innheimtist. Félögin gátu ekki komizt hjá því fremur en áður að lána meira og minna út til útgerðarinnar, en eins og á stóð fyrir útgerðinni þá, fór þannig, að mikil vanskil urðu. Nú hefur ekki þurft á þessum útlánum að halda síðustu ár, enda bregður svo við nú eftir ófriðinn, að komnir eru geymar á flestar þær hafnir, þar sem nokkur teljandi olíunotkun er. Þetta leiðir til þess, að verðið lækkar og lækkar í heild mjög verulega, en hinu verður ekki komizt hjá, að þeir staðir, sem nota ekki meiri olíu en svo, að það borgar sig ekki að koma þar upp tönkum, verði að sæta verri kjörum. Ég held, að þegar olíufélögin eru búin að koma upp því tankakerfi, sem gert var ráð fyrir eftir samningum við fyrrv. ríkissj., þá verði ekki hægt að kvarta yfir því, að dreifing olíunnar sé mjög óhagkvæm. Ég held, að hún sé nú að færast óðum í það horf, að við ættum að mega vænta þess að fá olíuna með því bezta verði, sem við getum búizt við.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þessa hlið málsins, en víkja að hinum hlutnum, sem hv. flm. lagði mikla áherzlu á, að fjárfestingin mundi verða mjög mikil, ef einstaklingum eða félögum væri leyft að halda áfram að verzla með olíuna.
Eins og ég drap á áður, eru olíufélögin, sem nú starfa hér, búin að koma upp tönkum á flestum höfnum hér kringum landið, þar sem mikil olíunotkun er. Þetta hafa félögin gert sumpart eftir samkomulagi sín á milli og sumpart eftir samkomulagi við ríkisstj., þannig að reynt hefur verið að haga svo til, að geymarúmið á hverjum stað væri ekki mikið fram yfir það, sem nauðsyn krefur. Ég get ekki fullyrt, að þetta sé fundið út með fullkominni nákvæmni, og má vera, að sums staðar sé geymarúmið of mikið, en sums staðar of lítið. Þannig fer jafnan, þegar byrjað er á framkvæmdum, en þetta á sjálfsagt eftir að lagast, og verður væntanlega úr því bætt. En hv. þm. sagði, að nú rísi upp þriðja olíufélagið og það þurfi líka að koma upp sínum tönkum. Ég skal ekki segja, hvort þetta nýja félag getur komizt að góðum samningum við eldri félögin, þannig að það kæmi upp tönkum á þeim stöðum, þar sem tankrúm er of lítið eða ekkert, og félögin skiptu stöðunum milli sín, eins og gert hefur verið undanfarin ár. Samkeppni hefur aðallega verið á stærri stöðum, og þar sem ég geri ráð fyrir, að víða sé geymarúmið ekki mikið fram yfir það, sem nauðsyn krefur, veit ég ekki, hvort má ná svona samkomulagi. En þegar litið er á þá fjárfestingu, sem í sambandi við þetta mun verða, ber þess að gæta, eins og líka hv. flm. lagði mikla áherzlu á, að gera má ráð fyrir, að á næstu árum fari olíusala hér á landi mjög vaxandi, og einmitt af því, að flotinn fer vaxandi og dreifist víða um landið, einmitt þess vegna verður þörf fyrir að byggja fleiri geyma og þá aðallega smærri geyma. Hér í Reykjavík er vitanlega nauðsyn að auka geymarúmið, það er, eins og nú er komið, ófullnægjandi. Shell er vel sett með sína geyma, en Hið íslenzka steinolíufélag hefur lítið geymarúm, svo að það getur varla rekið verzlun sína á hagkvæman hátt, nema að geti haft samkomulag við Shell um geymslu á olíunni, eins og Olíuverzlun Íslands hefur gert á síðustu árum. En hvort sem olíuverzlanirnar eru reknar af einstaklingum eða ríkinu, mun í öllu falli vera óhjákvæmilegt að bæta við miklum geymarúmum. Hér í Reykjavík mun vera hafinn undirbúningur að þessu af hálfu Olíuverzlunar Íslands, og hygg ég, að í ráði muni vera í sambandi við þá aukningu, að B.P. færist meira í áttina til þess að vera innbent félag en verið hefur.
Þegar þess er gætt, að aukin olíusala mun kalla á aukið geymarúm víðs vegar um land, get ég ekki séð, að þjóðhagsleg hætta stafi af því, þó að 3 félög þyrftu að bæta við nokkrum minni geymum úti um land. Möguleikar munu sennilega vera til þess, að aðalbirgðastöðvarnar gætu fyrst um sinn verið í Hvalfirði, þó að ég játi, að ég efast um, að það gæti orðið neitt til frambúðarskipulags, og álíti, að aðalbirgðastöðin sé bezt sett hér. En ef það væri rétt, sem hv. þm. sagði, að gera megi ráð fyrir, að olíusalan tvöfaldist á næstu árum, er auðséð, að sú mikla aukning kallar á aukið geymapláss víðs vegar um land.
Þá drap hv. þm. á það, að með því að stofna til ríkiseinkasölu með olíu mundu vera miklar líkur til þess eða jafnvel víst, að unnt yrði að lækka verulega olíuverðið. Það þýðir ekki að þrátta um það á þessu stigi málsins, úr því fengi reynslan ein skorið. En ég held samt sem áður, að sé öruggara fyrir hv. þm. að vera ekki of bjartsýnn í þessum efnum. Hann verður að gæta að því — þótt ég játi, að það sé metnaðarmál fyrir oss Íslendinga, að olíuverzlunin geti verið að öllu leyti í okkar höndum —, að það er ekki bara tap fyrir okkur að vera í þessu nána sambandi við hin brezku olíufélög. Hv. þm. efast ekki um það, að þau félög hafi möguleika til þess að kaupa olíuna með þeim beztu kjörum, sem hægt er að fá á heimsmarkaðnum, og með því að vera í náinni samvinnu við þau er enginn vafi á því, að við höfum nokkurt öryggi fyrir því, að innkaup Íslendinga á olíu verði sæmilega góð. Ef við svo ættum að taka upp samkeppni við þessa hringi, sem við búum nú í góðri samvinnu við, gæti kannske brugðið til beggja vona um það, hvort verðið lækkaði mikið á næstu árum. Ég vil ekki fullyrða það, en skal játa, að ég hef ekki næga þekkingu á því til þess að koma fram með nokkrar ákveðnar staðhæfingar í þá átt.
Hv. þm. talaði um það, að verðið á olíunni væri hærra hér en t.d. í Noregi. Ég er ekki viss um, að þessi munur sé mikill nú, ef hann er nokkur. En þótt svo væri, að þeir hefðu eitthvað lægra verð, þarf það ekki að vera undrunarefni, þar sem við vitum, að olían er þar miklu meiri en hjá okkur, og reynslan hefur sýnt okkur, að aukin sala á olíu hefur orðið til þess að lækka mjög verulega verð hennar, eins og eðlilegt er og sjálfsagt.
Þá talaði hv. þm. um það, að mannfjöldi sá, sem vinnur nú við dreifingu olíunnar, væri mjög mikill og mætti með því að hafa olíusöluna á einni hendi láta það muna helming. Ég veit ekki, hvaða rök hv. þm. hefur fyrir þessu. Ég hygg, að hvað sem segja má um olíuverzlunina hér hjá okkur að öðru leyti, þá megi fullyrða, að hún sé rekin með hagsýni. Ég hef ekki heyrt olíufélögunum brugðið um það, að þau rækju verzlunina á óhagkvæman hátt fyrir þau sjálf. Um hitt hafa svo aftur staðið deilur, hve hagkvæmt það væri fyrir notendur.
Ég er hv. flm. alveg sammála um það, að okkur ber að gera allt, sem auðið er, til þess að halda olíuverðinu niðri eins og unnt er, þó að það séu kannske hins vegar dálítið hæpin rök hjá honum, að það skipti máli fyrir okkur í sambandi við samkeppni við fiskframleiðsluna, því að sannleikurinn er sá, að olíukostnaðurinn er hjá útgerðinni orðinn svo hverfandi, að varla er tekið eftir honum. Ég held hann sé ekki nema 1/6 á móti beitukostnaðinum. En það er sjálfsagt að halda olíuverðinu niðri, eins og hægt er, og ég held, að verðlagsyfirvöld okkar hafi kannske óvíða gert sér meira far um að ganga úr skugga um það, hvort álagningin væri mikil eða lítil, en í olíuverzluninni, og það er því ekki ástæða til að halda, að olían hafi á undanförnum árum verið miklu hærri en nauðsynlegt er.
Ég sagði í byrjun máls míns, að ég stæði upp fyrst og fremst til þess að óska nokkurra frekari upplýsinga, og það er rétt, að það var aðalástæðan, þótt mér þætti ástæða til að láta nú þegar koma fram þessar aths. við ræðu hv. flm. En þær upplýsingar, sem ég óska að fá og tel nauðsynlegt að fá, áður en ég tek afstöðu til þessa máls, eru þær, hve mikið fé ríkissjóður mun þurfa að binda í þessari atvinnugrein, ef ríkið tæki í sínar hendur einkasölu á olíu. Hv. þm. talaði um það, sem ég held, að sé út í bláinn, að þurfa mundi máske 25 millj. kr. til aukningar tankakerfisins á næstu árum. Kostnaðurinn er naumast svo mikill, að þetta geti náð nokkurri átt. En jafnvel þótt þessi staðhæfing hv. þm. væri fjarri lagi, þá skilst mér þó, að það sé ekki lítið fé, sem ríkissjóður mundi verða að binda hér í þessari atvinnugrein, ef taka ætti eignarnámi alla þá tanka, sem búið er að koma upp hér á landi, og svo er allt það rekstrarfé, sem nauðsynlegt er fyrir jafnstórkostlegt fyrirtæki og hér um ræðir. Þetta er náttúrlega það fyrsta, sem maður verður að gera sér grein fyrir. Mér þætti ekki ósennilegt, að heildarupphæðin þarna mundi hlaupa á nokkuð mörgum tugum milljóna kr., og þá er það atriði, sem Alþ. verður að gera sér fyllilega grein fyrir, hvort ríkissjóður eigi að ráðast í að binda svo mikið fé í einni atvinnugrein og hvort ekki mundi hentara að koma því fyrir á annan betri hátt, að leggja féð í önnur fyrirtæki, sem meiri þörf væri fyrir og gæfu meiri hagnað fyrir landið í heild en að taka olíuverzlunina í sínar hendur, eins og henni er fyrir komið.
Hefði hv. flm. átt sæti hér á Alþ. fyrir aldarfjórðungi, hefði mig ekki undrað, þótt hann hefði borið fram frv. í þá átt, sem hann hefur gert. Hann er það fullorðinn maður, að hann man, hvernig ástandið var í olíumálunum þá, og hlýtur að vera það ljóst, hvað olíuverzlunin er rekin á miklu betri hátt fyrir þjóðfélagið í heild sinni en þá var.