26.03.1947
Efri deild: 100. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (4508)
206. mál, innflutningur búfjár
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. — Ég skal ekki vera mjög fjölorður um þetta. Þetta frv. er komið hingað til Alþ. frá búnaðarþingi, sem hefur haft það til meðferðar, og fylgir því grg., eins og hún var þar samin og samþ. Í stuttu máli er þetta frv. um það að heimila innflutning búfjár og setja reglur um það, hvernig það skuli einangrað, þegar til landsins kemur. Mörg af þeim ákvæðum, sem eru í þessu frv., voru í því frv. til l. um varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma, sem við nú vorum að samþykkja og afgreiða til Nd., en Nd. lagði strax þar línuna, að um þetta yrði sérstakt frv., sem líka í alla staði er eðlilegra og réttara, eftir því sem mér finnst og flestum, sem um þetta hugsa. Nú liggur þetta frv. fyrir til 1. umr., og þótt landbn. hafi tekið það til flutnings, hafa landbnm. ekki farið yfir frv. og athugað það, en munu að sjálfsögðu gera það og gera við það þær aths., sem þeim þykir ástæða til. Tel ég því ekki neina ástæðu til þess að vísa frv. til n., því að hún mun taka það fyrir, hvort sem það verður gert eða ekki, og sé ég því ekki neina þörf á því, þar sem n. hefur tekið það til flutnings.