23.05.1947
Efri deild: 144. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í C-deild Alþingistíðinda. (4547)
242. mál, söngskóli þjóðkirkjunar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég er sannfærður um, að það spor, sem talað er um að stíga með þessu frv., muni verða mjög mikið víxlspor, og ef hv. Alþ. gæfist tími til að athuga málið betur en nú er gert, mundi áreiðanlega vera hægt að finna heppilegri leið til þess að leysa það.
Það lítur út fyrir, að með þessum skóla, sem gert er ráð fyrir að stofna með frv., eigi að gera þrennt. Í fyrsta lagi á að kenna prestsefnum þar að tóna, svo sem lögskipað er við guðfræðideild háskólans, og er því ekki sýnilegt, að af þeirri ástæðu sé nein þörf á að stofna nýjan skóla í þessu skyni. Í öðru lagi á að kenna væntanlegum kirkjuorganistum við þjóðkirkjuna að leika á orgel. Hins vegar hefur í mörg ár verið sérstök fjárveiting á fjárl. í þessu skyni, mig minnir 1500 krónur, og hefur gengið ágætlega að fá kennara til þess að kenna í þessari grein fyrir þessa upphæð, þannig að ekki er sjáanlegt, að nein ný þörf sé á þessum skóla af þeirri ástæðu. Í þriðja lagi á svo að kenna mönnum í þessum skóla að beita söngrödd sinni betur og réttar en þeir gera nú, sérstaklega þeim, sem ætla sér að kenna söng. Slík kennsla mun ekki hafa farið fram nema að litlu leyti í sambandi við kennaraskólann, en hins vegar hefur herra söngmálastjóri, Sigurður Birkis, rækt þetta starf á sínu heimili.
Nú lít ég svo á, að þar sem fyrirskipað er við guðfræðideildina að kenna væntanlegum prestsefnum nauðsynlega undirstöðu í hljómlist, þar sem kennaraskólinn hefur einnig með höndum kennslu í þessum efnum og loks þar sem sérstök fjárveiting er á fjárl. til að kenna væntanlegum orgelspilurum þjóðkirkjunnar orgelspil, sé engin þörf á stofnun sérstaks skóla í þessum efnum. Auk þess má í þessu sambandi benda á það, að tónlistarskólinn hefur með höndum kennslu á þessu sviði. — Ég er því viss um það, að ef hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir því að sameina þetta á sómasamlegan hátt, gæti orðið úr því fullkomið vit, en tel það fullkomið óvit að fara nú að stofna sérstakan söngskóla, sem mun hafa tugþúsunda útgjöld í för með sér. Hins vegar vil ég stuðla að því, að hr. Sigurði Birkis verði gert mögulegt að halda áfram kennslu næsta vetur, meðan málið er að komast í það horf, sem það áreiðanlega kemst í, þegar tími hefur unnizt til að athuga það til hlítar.
Ég vil því leyfa mér að koma fram með rökst. dagskrá, sem er dálítið annars eðlis en hin rökst. dagskrá hv. þm. Barð. (GJ), þar sem hann vísar málinu frá og telur sig sjá örugga leið til úrlausnar málsins, en því er ég nú ekki búinn að átta mig á. Í minni dagskrá er því slegið föstu, að ríkisstj. útvegi húsrúm í bænum, þar sem Sigurður Birkis getur haft sína kennslu með höndum, því að hann getur ekki lengur kennt heima hjá sér. Þó skuli þetta fyrirkomulag aðeins vera þannig næsta vetur, því að þá á ríkisstj. að hafa fengið nægilegan frest til þess að vera búin að finna hagkvæma lausn á þessum málum í framtíðinni, því að ég er viss um, að hægt er að finna aðra leið í þessum málum en að fara að stofna þennan sérstaka skóla, sem frv. gerir ráð fyrir. — Leyfi ég mér hér með að afhenda hæstv. forseta þessa rökst. dagskrá og vænti þess, að hún verði samþ.