18.11.1946
Sameinað þing: 13. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (4569)

65. mál, húsnæði handa rektor Menntaskólans í Reykjavík

Jónas Jónsson:

Herra forseti. Ég get vel skilið, að hæstv. menntmrh. sé óánægður með meðferðina á sér. Það kom í ljós hjá hv. þm. Barð., að ráðstöfun ráðh. er miklu vitlausari en ég hélt. Þessi hæstv. ráðh. hefur játað, að hann hafi brúkað 300 þús. kr. til að kaupa ónýtan húskofa, en lóðin tilheyrir bænum. Það er því ekki að undra, þótt hann sé heldur geðbágur, þegar svo er komið, og vil ég skora á form. fjvn. að athuga þessa meðferð á ríkisfé. Hæstv. ráðh. hefur þrýst rektor úr íbúð sinni, og þó að húsið sé vont, er vitað, að rektor gat þar haft eðlilega umsjón með nemendum. Síðan þegar sami hæstv. ráðh. sér sig til knúinn, vill hann kaupa hús við Garðastræti, en hv. fjmrh. er því mótfallinn, enda engin fjárveiting til þess. Þegar hann sér, að hann fær ekki keypt, hallast hann að till. meiri hl., sem fjallar um að tala við biskupinn um húsnæði, sem þegar hefur verið ráðstafað. Hæstv. ráðh. sagði það rangt, að rektor hefði sætt sig við endurbót á öðru húsinu. Hann veit auðsjáanlega ekki, hvað okkur fór á milli. Þegar fjvn. veitti heimild til að endurbæta húsið á þessari lóð eða byggja þar að nýju, setti hann sig á móti því af pólitískum ástæðum. Hæstv. ráðh. segir enn fremur, að húsið sé ekki í nothæfu ástandi, þvert ofan í vottorð þar að lútandi. Víða tíðkast það erlendis, að menn byggja einnar hæðar hús á brunarústum. Það mætti því fara eins að hér og byggja bráðabirgðahúsnæði á rústum hins nýafstaðna bruna.

Ég verð að segja það, að mig furðar á því, að hv. þm. Barð. skuli vilja setja rektor í hættu, því þó að ekki sé lagaskylda að útvega honum húsnæði, þá er það siðferðisleg skylda. Rektor hefur orðið að hverfa á brott vegna þess, að hæstv. ráðh. hefur fyllt húsið, og býr hann nú við allt of erfið kjör til að geta gert skyldu sína. Þess vegna má líta á, að rektor er orðinn þreyttur á þessum svikum og vill láta sverfa til stáls í þessu máli.

Nú býr rektor austur í Ölfusi, og í hverri ferð, sem hann fer hingað til að gegna skyldustörfum sínum, felst ásökun á hendur hæstv. menntmrh. fyrir, hve ræfilslega hefur verið tekið á þessu máli. Verður gaman að sjá, hvað margir hv. þm. þora að greiða atkv. gegn minni till.