19.11.1946
Sameinað þing: 14. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í D-deild Alþingistíðinda. (4571)

65. mál, húsnæði handa rektor Menntaskólans í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Samkv. beiðni hæstv. ríkisstj. hefur fjvn. haft þetta mál til meðferðar á fundi nú í morgun. En n. hefur ekki getað gengið til fulls frá málinu enn. Vildi ég biðja hæstv. forseta að gefa fundarhlé í 5–10 mínútur, til þess að hægt væri fyrir fjvn. að ganga formlega frá till. í málinu, sem líklegt er, að samkomulag verði um í n., og verður þá till. lögð fram skrifl. [Fundarhlé nokkrar mínútur.]

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. var á fundi hjá fjvn. í morgun út af því máli, sem hér er á dagskrá, og tilkynnti n., að fyrir lægi tilboð um að fá á leigu efri hæð á húsinu nr. 39 við Garðastræti ásamt rishæð hússins til næstu tveggja ára til íbúðar fyrir rektor menntaskólans fyrir 600 kr. á mánuði. En því tilboði fylgdi það skilyrði, að ríkissjóður lánaði húseiganda 300 þús. kr. gegn 1. veðrétti í þessari fyrr nefndu eign í 25 ár, þannig að lánið endurgreiðist með jöfnum afborgunum á ári á þessum árum og 4% ársvöxtum.

Fjvn. hefur rætt um þetta tilboð, og hún hefur fallizt á að mæla með því að leggja til að heimila hæstv. ríkisstj. að leigja nú þegar íbúðarhúsnæði handa rektor Menntaskólans í Reykjavík á þeim grundvelli að ganga að þessu tilboði, sem hér liggur fyrir, enda verði unnið að því á þessum tveimur árum að tryggja rektor íbúðarhúsnæði sem næst menntaskólanum, áður en leigutíminn sé á enda.

Það er að vísu óvenjulegt, að ríkissjóður sé þannig að lána fé beinlínis, og hefði verið eðlilegast, að ríkissjóður hefði ábyrgzt lán fyrir viðkomandi aðila fremur en að ríkissjóður legði fram fé með þeim skilyrðum, sem hér hefur verið minnzt á. En þegar litið er á fjárhagshlið málsins fyrir ríkissjóð, sést, að áætlunin er þannig, að ríkissjóður á að greiða 7200 kr. í leigu, en fær 12 þús. kr. í vexti, meðan upphæðin, sem ríkissjóður mundi samkv. þessu tilboði lána viðkomandi húseiganda, er afborgunarlaus, ef samningar verða gerðir samkv. þessu tilboði, og minnka svo vextirnir, eftir því sem afborganir fara fram. — Og fjvn. skilst, að málið sé bezt leyst á þann hátt, sem n. flytur nú skrifl. brtt. um, þannig að rektor geti flutzt í þessa íbúð, ef fallizt verður á þessa till. — Meiri hl. fjvn. heldur hins vegar fast við það, að reynt verði í framtíðinni að tryggja rektornum íbúð í nánd við menntaskólann. Það hefur minni hl. n. einnig fallizt á.

Það er því samkomulag um það í fjvn., að fjvn. beri fram brtt. við þáltill. á þskj. 93, þannig, að tillgr. orðist svo, með leyfi forseta: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstj. að leigja nú þegar til tveggja ára efri hæð og rishæð í húsinu Garðastræti 39 í Reykjavík til íbúðar handa rektor Menntaskólans í Reykjavík, gegn kr. 600,00 — sex hundruð króna — leigu á mánuði og því, að íbúðin afhendist í leigufæru ásigkomulagi, enda sé rektor tryggð íbúð í nágrenni við skólann, áður en leigutíminn er á enda. Jafnframt er ríkisstj. heimilt að lána úr ríkissjóði kr. 300000,00 — þrjú hundruð þúsund krónur — út á fyrr nefnda húseign, gegn 1. veðrétti í allri eigninni, og endurgreiðist lánið með jöfnum afborgunum á næstu 25 árum með 4% ársvöxtum.“

Í öðru lagi leggur fjvn. til, að fyrirsögn þáltill. verði: „Till. til þál. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að tryggja rektor Menntaskólans í Reykjavík húsnæði.“

Samhliða þessu tekur svo meiri hl. fjvn. aftur till. sína á þskj. 110 — og mér skilst einnig minni hl. fjvn. sína brtt. á þskj. 109. Er þá fullt samkomulag í fjvn. um að leggja til, að málið verði afgr. samkv. þessari skrifl. brtt., sem fjvn. í heild ber hér fram. Og vil ég leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.